Vísir - 01.09.1975, Side 14
visir. Mánudagur 1. september 1975
Enska knattspyrnan
Sjálf smark kom Manchester
Und. í efsta sœfið
Englandsmeistararnir Derby fengu enn einn skellinn
og hafa unnið aðeins einn leik af fimm
Sjálfsmark kom Manchester
United i efsta sætið i 1. deildar-
keppninni i Englandi um
helgina. Þá lék Manchester við
Stoke i Stoke og varð varnar-
maðurinn Alan Dodd fyrir þvi
óhappi að senda boltann j eigið
mark, þegar hann reyndi að
stöðva skot Gerry Daly. Peter
Shilton i markinu hjá Stoke
virtisthafa öll tök á að verja, en
áttaði sig ekki á þvi fyrr en of
seint, að boltinn breytti stefnu.
Ekki tókst leikmönnum Stoke
að jafna metin, þó að þeir ættu
mun meira i leiknum og oft
skylli hurð nærri hælum við
markið hjá United.
Nýi landsliösfyrirliðinn Gerry
Francis varð að yfirgefa völlinn
i seinni hálfleik i leik QPR og
West Ham og óvist hvort hann
getur leikið með enska landslið-
inu á miðvikudaginn, þegar það
leikur gegn Sviss i Basel.
QPR hafði mikla yfirburði i
leiknum við West Ham og
markatalan 1:0 segir litið um
yfirburði liðsins i fyrri hálfleik.
Mark QPR skoraði Don Givens,
eftir að Mervin Day hafði misst
boltann eftir aukaspyrnu Don
Masson. En Day bætti fyrir
klaufaskapinn með góðri mark-
vörzlu það sem eftir var leiksins
og bjargaði þvivegis mjög vel —
frá Francis, Bowles og
Givens.
1 seinni hálfleik var svo
Francis að yfirgefa leikvöllinn
og þá fóru leikmenn West Ham
að láta meira að sér kveða og
þegar tiu minútur voru til leiks-
loka jafnaði Billy Jennings eftir
sendingu frá Pat Holland.
En þá eru það úrslitin á
laugardaginn.
1. deild:
Aston Villa-Coventry 1:0
Burnley-Middlesbrough 4:1
Everton-Derby 2:0
Ipswich-Birmingham 4:2
Leicester-Liverpool 1:1
ManchesterC-Newcastle 4:0
QPR-WestHam 1:1
Sheff. Utd.-Leeds 2:0
Stoke-Manchester Utd. 0:1
Tottenham-Norwich 2:2
Wolves-Arsenal 0:0
2. deild
Bristol C-Bristol R 1:1
Carlisle-Blackburn R 0:1
Fulham-WBA 4:0
Luton-Chelsea 3:0
Notthingh. For-Notts. C. 0:1
Oldharrt-Hull 1:0
Sunderland-Blackpool 2:0
York-Bolton 1:2
A föstudaginn voru leiknir
þrir leikir og urðu úrslit þeirra
þessi:
Chárlton-Oxford 2:1
Orient-Portsmouth 0:1
Southampton-Plymouth 1:0
Englandsmeistararnir Derby
County fengu enn einn skellinn
nú á Goodison Park i Liverpool,
heimavelli Everton.
Ekkert mark var skorað i
fyrri hálfleik, en i upphafi á
þeim seinni skoraði Mick Lyons
fyrir Everton með skalla eftir
aukaspyrnu Mick Buckley.
Þegar fimm minútur voru til
leiksloka, innsiglaði Bob
Latchford sigur Everton i leikn-
um með fallegu marki. Það er
þvi ekki hægt að segja, að Derby
byrji vörnina á Englands-
meistaratitiinum vel, þvi að
liðið hefur aöeins unnið einn leik
af fimm.
Allt gengur á afturfótunum
hjá Sheffield Utd. og hefur liöið
tapað fjórum af fimm fyrstu
leikjunum.
Eftir að Duncan McKenzie
hafði skorað fyrir Leeds I fyrri
hálfleik, tóku leikmenn Leeds
öll völd á vellinum, en þeim
tókst samt ekki að skora nema
eitt mark i viðbót, það gerði
Alan Clark eftir góðan undir-
búning Peter Lorimer.
Ipswich vann sinn fyrsta sigur
i deildarkeppninni á laugar-
daginn og þótti vist mörgum, að
timi væri kominn til. Leikmenn
Ipswich voru óstöðvandi i fyrri
hálfleik gegn Birmingham og
skoruðu fjögur mörk. Fyrst
David Johnson, þá Trevor
Whymark tvö og Bryan
Hamilton bætti svo fjórða
markinu við.
En mörk Birmingham skoraði
Bob Hatton bæði á sömu minút-
unni i seinni hálfleik — eftir að
leikmenn Ipswich höfðu hægt á
ferðinni og tekið lifinu rólega.
Eftir góða frammistöðu
Newcastle kom tap gegn
Manchester City á óvart. Denis
Tueart skoraði tvivegis fyrir
City úr vitaspyrnum, sem
dæmdar voru á Alan Kennedy.
Hin mörk Manchester skoraði
Joe Royle, en það var Rodney
Marsh, sem var bezti maður
leiksins og átti hann heiðurinn
af öllum mörkunum. Malcolm
MacDonald „hvarf” i leiknum,
enda var hans vel gætt af Dave
Watson.
Peter Noble var eini leik-
maðurinn i 1. deild, sem skoraði
,,hat trick” á laugardaginn. Það
var i leik Burnley gegn Middles-
brough. Dave Armstrong
skoraði fyrsta mark leiksins
fyrir ,,The Boro”, en siðan ekki
söguna meir. Noble skoraði
næstu þrjú mörk i röð og i lokin
bætti Ray Hankin fjórða
markinu við.
Coventry tapaði sinum fyrsta
deildarleik i ár, það var á Villa
Park i Birmingham. Eftir
markalausan fyrri hálfleik
ætluðu leikmenn Coventry að ná
i annað stigið með þvi að leika
varnaleik I þeim seinni, en þar
varð þeim á i messunni. Eftir
eina af mörgum sóknum, Aston
Villa skoraði Ray Greydon, eftir
að markvörður Coventry hafði
misst boltann.
Kevin Keegan misnotaði vita-
spyrnu i leik Liverpool og
Leicester, en hann bætti það upp
stuttu siðar, þegar hann skoraði
mark. En Keith Weller tókst að
jafna fyrir Leicester i sinum
fyrsta leik i haust, þegar langt
var liðið á leiktimann.
Tvivegis náði Tottenham for-
ystunni i leiknum gegn
Norwich, en leikmenn Norwich
voru ekki á þvi að gefast upp og
þeim tókst að jafna i bæði
skiptin. Fyrst skoraði Pratt, en
Phil Boyer jafnaði, Duncan
bætti öðru markinu við fyrir
Tottenham, en Ted MacDougall
jafnaði aftur fyrir Norwich.
Myndin er frá lcik Arsenal og Stoke um siðustu helgi. Það eru
þeir Hornsby, Arsenal og Pejic, Stoke, sem berjast um boltann.
Leikn um lauk með sigri Stoke City og skoraði Alan Hudson eina
mark leiksins.
STAÐAN 1. deild
ManchesterUtd 5 4 1 0 11:2 9 Tottenham 5 12 2 6:7 4
West Ham 5 3 2 0 9:6 8 Ipswich 5 12 2 5:7 4
QPR 5 2 3 0 11:7 7 Leicester 5 0 4 1 6:9 4
Everton 5 3 1 1 8:5 7 Norwich 5 12 2 9:11 4
Leeds 5 3 1 1 6:5 7 Derby 5 12 2 6:11 4
Coventry 5 2 2 1 8:4 6 Wolves 5 0 3 2 4:7 3
Arsenal 5 2 2 1 5:3 6 Birmingham 5 0 14 5:12 1
Liverpool 5 2 2 1 9:7 6 Sheff.Utd. 5 0 14 3:14 1
ManchesterC. 5 2 1 2 8:4 r
Burnley 5 1 3 1 7:5 5 Southampton og Sunderland
Newcastle 5 2 1 2 9:8 5 eru efst i 2. deild með sjö stig,
Middlesboro 5 2 1 2 5:6 5 en Fulham og Notts County eru
Aston Villa 5 2 1 2 7:8 5 með sex stig. Neðst er Carlisle
Stoke 5 1 2 2 5:6 4 með eitt stig.
Celtic tapaði fyrstu lot-
unni í þeirri „stóru
##
Jóhannes Eðvaldsson ótti góðan leik að sögn BBC
Celtic tapaði fyrsta stórleikn-
um i „Top Ten” deildinni á
laugardaginn. Þá lék liðið gegn
erkil'jendunum Glascow Rang-
ers á heimavelli þeirra siðar-
nefndu, Ibrox. Lauk leiknum
með sigri Rangers 2:1 og varð
leikurinn nokkuð sögulcgur, þvi
að um miðjan seinni hálfleik var
einum leikmanni Rangers, Alcx
MacDonald, visað af leikvelli.
Dalglish skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir Celtic i fyrri hálf-
leik, en i byrjun seinni hálfleiks
jafnaði Derek Johnstone fyrir
Rangers og stuttu siðar bætti
Young öðru markinu við.
Færðist þá mikið fjör i leik-
inn, þvi að leikmenn Celtic sóttu
nærri látlaust það sem eftir var.
Sérstaklega voru sóknir þeirra
hættulegar eftir að leikmenn
Rangers voru orðnir einum
færri.
Þulurinn, sem lýsti leiknum i
BBC, talaði mikið um „stóra Is-
lendinginn” Eðvaldsson og
sagði, að hann væri einn af
beztu mönnum Celtic. Jóhannes
skapaði hvað eftir annað mikla
hættu við mark Rangers eftir
horn og aukaspyrnur og var tvi-
vegis nærri því að kora.
Leikinn sáu 73 þúsund áhorf-
endur og gera Skotar sér miklar
vonir um, að þetta nýja1
deildarfyrirKomulag muni laða
fleiri áhorfendur að leikjunum 1
en verið hefur.
Úrslit hinna leikjanna i Skot-
landi urðu þessi:
Dundee — Aberdeen 3:2
Hibernian —Hearts 1:0
Motherwell — Ayer 1:1,
Rangers — Celtic 2:1'
St Johnstone —DundeeUtd 1:0,
Fyrir leikinn höfðu forráða-
menn Celtic látið að þvi liggja,
að ef að vel gengi i fyrsta leikn-
um gæti svo farið, að þeir leyfðu
Jóhannesi að leika landsleikinn
gegn Belgum. En eftir þessi úr-
slit má reikna með, að þeir telji
sig ekki geta séð af Jóhannesi,
þvi að um næstu helgi hefur liðið
ekki efni á að tapa stigum.