Vísir - 01.09.1975, Síða 16
16
Vfeir. Mánudagur 1, september 1975
AKSJON MAN OG LONE
RANGER GEGN PABBA
TÍU ÁRA STRÁKAPOLLA
Eitt af þvi skemmtilegasta,
sem ég geri, er að vera pabbi tiu
ára stráks, sem þarf að glima
við óteljandi vandamál, eins og
tiu ára strákar yfirleitt. Það
opnar óteljandi möguleika að
eiga slikan rolling. Til dæmis
hef ég þannig fengið afsökun til
að sjá aftur allar Roy Rogers
inyndirnar, sem ég sá, þegar ég
var á hans aldri og ég get gengið
hnarreistur inn í hvaða kvik-
myndahús sem er til að sjá Pet-
er Pan eða einhverja aðra
barnamynd.
Ég flækist lika hitt og þetta,
sem ég myndi aldrei fara
annars og hefði þá ekki einu
sinni hugmynd um, hvers ég
væri að fára á mis. Ég veit til
dæmis ekki, hvor okkar
skemmti sér betur i Sædýra-
safninu eða hvor öskraði hærra
á landsleiknum við Norðmenn.
„Hvað segirðu gott?"
Hann hringir oft I mig I vinn-
una. Stundum er það bara til að
segja mér frá einhverju, sem
hann hefur upplifað en stundum
er það eitthvert vandamálið,
sem hann er að glima við og vill
fá hjálp til að leysa. Ég veit um
leið og ég tek upp simann, hvort
svo er.
Ef það er eitthvað, sem hann
hefur upplifað gusar hann þvi
nefnilega út úr sér, um leið og
ég tek upp simann. Hann gefur
sér jafnvel ekki tima til að segja
halló, það er bara byrjað eins og
skot: — Pabbiégskoraðiþrjú-
mörkifótboltaifriminútunumi-
dag.
Ef hins vegar eitthvað bjátar
á, kynnir hann sig mjög kurteis-
lega:
Pabbi?
Já.
Það er ég.
Sæll vinur.
(Löng þögn, svo:)
Hvað segirðu gott?
Svo eru málin rædd fram og
aftur nokkra stund, áður en
hann kemur sér að efninu.
Vandamálið er svo rætt af mik-
illi alvöru og oftast nær tekst
okkur að leysa það.
Fjárhagsáhyggjur
Undanfarin 2-3 ár hefur hann
þó átt við nokkuð einkennilegt
vandamál að striða. Einkenni-
legt, vegna þess að hann er jú
ekki nema tiu ára polli. Hann
hefur haft töluverðar fjárhags-
áhyggjur.
Skaðvaldurinn er leikfang,
sem heitir „Action man”. Ég
man vel, að þegar ég var á hans
aldri, þótti mér ákaflega gaman
að leika mér að tindátum. En
þeir voru lika reglulegir tindát-
ar, úr tini, og siðar úr plasti.
Þeir voru lika tiltölulega ódýrir.
„Tindátarnir” sem sonur
minn leikur sér að, eru hins veg-
ar rúmlega 20 sentimetra háir
og þvi virðast engin takmörk
sett, hvað þeir geta gert.
Þeir geta talað, allir þeirra
útlimir eru hreyfanlegir, þeir
geta haldið á byssum eða tal-
stöðvum og eru i fám orðum
sagt nokkurs konar súpermenn.
En verðið, tannlæknir
góður.
Ég er viss um, að ég hefði
flogið upp i sjöunda himin, ef ég
hefði fengið svona leikfang,
þegar ég var krakki, svo að ég
skil ósköp vel hrifningu sonar
mins. Gallinn er bara sá, að
einn dáti kostar meira en heilt
herfylki af minum gömlu tin-
dátum.
Og það er ekki nóg með það.
Þegar búið er að kaupa talandi
Aksjón-mann i stifpressuðum
einkennisbúningi, þarf lika að
kaupa „græjurnar”. Og það er
ekkert smáræði. 1 aukapökkum,
sem kosta frá 1500 og yfir 2000
krónur, er hægt að fá á kvikind-
ið einkennisbúning brezku fall-
hlifasveitanna, bandarisku fall-
hlifasveitanna, rússnesku fall-
hlifasveitanna, frönsku fall-
hlifasveitanna, þýzku fallhlifa-
sveitanna...
Og ekki er allt búiö enn. Al-
vöruútgáfurnar af þessum
herramönnum eiga auðvitað
einkennisbúning fyrir hin og
þessi tækifæri. Þeir eiga t.d.
einn til að slást i, annan til að
nota við hátiðleg tækifæri og þar
fram eftir götunum. Og auðvit-
að er þetta lika til á Aksjón-
manninn.
Allar deildir hersins
Það er heldur ekki bara fall-
hlifaliðum fyrrnefndra landa,
sem gert er svona hátt undir
höfði. Flugherinn og flotinn fá
sömu afgreiðslu. Auk þess eru
svo alls konar sérpakkar. Það
er hægt að fá sérstök byssustat-
Skipholti 19
N símar 23800 og 23500
■ iL.m.iiiNH.U
Heimilistœki, hillutœki
með góðum hljómi, langdrœg
og falleg, í hnotu, palisander,
rauðu eða hvítu
Verð fró kr. 20 - 30 þú$.
Sendum um land allt
AAITTISÚLPUR
fyrir unglinga og fullorðna
Verð síðan fyrir gengisfellingu
Amerískar
KULDAÚLPUR
fyrir börn og fullorðna