Tíminn - 13.10.1966, Page 1
Gerizt áskrifendur að
Trnianum.
Hringið í síma 12323.
233. tbl. — Fimmtudagur 13. október 1966 — 50. árg.
Auglýsing ! Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesenda.
Öðlingur á strandstað nokkru fyr ir vestan Dyrhólaey.
(Tímamynd: SAÞ).
Öðlingur VE 202 strandaði vestan Dyrhólaeyjar
SKIPVERJARNIR GENGIIA
LAND ÞURRUM FðTUM!
SÁÞ—Vík, miðvikudag.
Skömmu fyrir klukkan tvö
í nótt strandaði Öðlingur VE
202 nokkru fyrir vestan Dyr-
hólaey, eða beint fyrir neðan
bæinn Hvol í Mýrdal. Boð um
strandið bárust til slysavarna-
deildarinnar í Vík í Mýrdal um
tvö-leytið, og var 11 manna
björgunarflokkur kominn á
strandstað klukkan hálffjög-
ur. Skinverjar, sem voru fimm
að tölu, voru þá enn um borð
í bátnum, en þar sem hann
stóð á þurru landi eftir að fór
að fjara, komust mennirnir
allir þurrum fótum í land.
Varðskipið Albert kom á strand
staðinn um hádegið, og einnig kom
lóðsinn úr Vestmannaeyjum þar
að, og í dag var unnið að því að
koma vírum úr hinu strandaða
skipi út í björgunarskipið, og hafði
í upphafi verið ætlunin að reyna
að ná því út á flóðinu um fjögur
Framhald á bls. 15 I
Læra hernaðog
vinna á ökrum
NTB-Hongkonfi, miðvikudag.
Fréttastofan Nýja Kína lýsir í
stórum dráttum í dag, einum degi
í skóla „rauðu varðliðanna" í Pek
ing. Klukkan 8 hvern morgun
skipta menn sér í smáhópa til
að lesa og ræða verk Mao. Því
næst kemur hernaðarkennsla, þar
sem nemendur læra að beita
byssustingjum, skjóta, kasta hand
sprengjum, o.s. frv. Seinni hluta
dagsins vinna nemendur á ökr-
unum með alþýðunni, en frístund
irnar á milli eru notaðar til frek-
ari lestrar á verkum Mao.
Segir fréttastofan, að ungt fólk
komi hvaðanæva að til að fylgjast
með námi þessu og ræða við nem
endur.
Lýsir fréttastofan því með vel-
þóknun, hvemig forsprökkum nem
enda í skólanum hafi tekizt á ör-
skömmum tíma að skipulaggja upp
Framhald á bls. 14.
Þorsteinn M. Jónsson
ÁTTIAÐMYRÐA
MACNAMARA í
SUÐUR- VÍETNAM?
NTB—Saigon, miðvikudag.
Haff er eftir lögreglunni í Saigon, að aðeins fjórum klukku
stundum fyrir komu McNamara, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna til S-Vietnam, hafi komizt upp um samsæri Vietcong
um að ráða hann af dögum.
Segir í fréttinni, að sérstök
morðsveit hafi fengið þetta verk-
efni til framkvæmdar og hafi
henni verið veittar hinar nákvæm
usrtu upplýsingar um komu ráð-
herrans til Saigon.
f dag hélt ráðherrann áfram
ferð sinni um S-Vietnam undir
gífurlega öflugu eftirliti.
Samtímis gengu um 4000 banda
rískir hermann á landi í Mekong-
héraði suður af höfuðborginni. Er
þá tala bandarískra hermanna í
Vietnam komin upp í 323.000 her
menn.
Óttazt er, að á svæðinu suður sf
borginni hyggist Vietcong hefja
stórsókn, en síðustu daga hafa
hermenn Vietcong gert tólf stor
árásir á hersveitir stjómarinnar.
f dag fór McNamara flugleiðis
til herstöðvar norðaustur af Sai-
gon, en þaðan fór hann um borð
í bandaríska beitiskipið Oriskaney
þar sem hann gistir í nótt.
Skóli „Rauðu varðliðanna":
BALTIKA
Blaðamaður Tímans, Guð-
rún ESilson, er meðal far-
þega um borð í Baltika.
Mun hún senda blaðinu
myndir og greinar úr ferða
laginu eftir því sem hægt
er. og birtist fyrsta grein
hennar frá ferðinni í blað-
inu í dag. Fyrir utan að
vera fjölmcnnasta hópferð
fslendinga erlendis, er ferð
in þegar orðin sögufræg af
fréttum, þótt oft reynist
það nú meira í munni en
tilefni gefst til. Grein Guð
rúnar fjallar um lífið um
borð á siglingunni suður
eftir. Greininni fylgja mynd
ir frá skemmtanalífinu um
borð. Væntanlegar eru á
næstunni greinar eftir Guð
rúnu frá ýmsum viðkomu
stöðum Baltiku.
góðu ásigkomulagi, og það skipti
ekki miklu máli, þótt tvö blöð
vantaði, en á þeim var registar
og nokkrar línur til lesenda. Hann
sagði einnig, að vissulega væru 61
þúsund krónur mikið fé, en harin
teldi bókina vel þess virði.
Ekki vissi Þorsteinn hvaðan ból:
in kom, en auðséð væri, að mjög
vel hefði verið farið með hana.
og það væri reyndar einkenni á
bókum, er koma erlendis frá. Bók
in hefur verið bundin inn hér
heima, árið 1820, en lítið er í band
ið varið.
Eftir því sem fréttamaður komst
Framhald á bls. 14.
GuSrún Egilson
Grein og myndir
á blaðsíðu 8-9
_______________________i
Þ0RSWNN M. JÓNSS0N
KEYPTI GUÐBRANDSBIBLÍU
SJ-Reykjavík, miðvikudag.
Fyrir livern skyldi Helgi
Tryggvason, bóksali, hafa keypt
Guðbrandsbíblíu fyrir 61 þúsund
krónur? Það hafa áreiðanlega
margir velt þessu fyrir sér I gær,
og þegar fréttamaður Tímans fór
á stúfana, til að grafa upp hinn
raunverulega kaupanda, var fyrsta
tilgátan sú, að bókin hefði verið
keypt til Bessastaða en síðar kom
í Ijós, að það var rangt — kaup
andinn var Þorsteinn M. Jóns-
son, hinn landsþekkti bókasafn-
ari og bókaútgefandi.
Þegar Tíminn hafði samband
við Þorstein, vildi hann sem
minnst veður gera út af þessu.
Hann sagðist ekki hafa getað stað
izt freistinguna, þar sem ekki
mætti búast við, að hægt væri að
kaupa Guðbrandsbíblíu á uppboði
nema á margra ára fresti.
Þorsteinn á hið Ijósprentaða ein
tak af Guðbrandsbíblíu, en þegar
hann var skólapiltur keypti hann
ræfilslegt eintak af hinn uppruna-
legu Guðbrandsbíblíu fyrir 2
krónur. Þetta eintak gaf Þor-
steinn síðar Guðmundi heitnum
Magnússyni skáldi fyrir stóran
greiða.
Þorsteinn sagði. að eintakiö,
sem hann hefði keypt, væri i mjög