Tíminn - 13.10.1966, Qupperneq 3
r
FIMMTUDAGUR 13. október 1966
TIMINN
Grein og myndir
BENEDIKT
VIGGÓSSON
Það þóttu stór tíðindi meðal ís-
lenzkra táninga, þegar auglýst var
í blöðum, að hinir brezku The
Kinks væru væntanlegir hingað i
annað sinn til hljómleikahalds, en
um þær mundir var lag þeirra,
„Sunday afternoon," einmitt á
toppnum í Bretlandi. En þegar
umboðsmaður piltanna tilk/nnir
þeim, að næst eigi að halda til
íslands, setur þá hljóða og tveir
þeirra fá skyndilega hálsbólgu . .
Undarlegt, ekki satt? Hraðskeyti
er sent til íslands. Innihaldið:
Komum ekki. The Kinks. Vals-
menn hætta að telja peningsna,
en uppselt var á alla fjóra hljóm-
leikana, og beita nú öllum til-
tækum brögðum til að ná sam-
bandi við The Kinks en allt kem
ur fyrir ekki. Kannski eru þeir
allir í sóttkví. Þá er haft sam-
band við forráðamenn Hennan
Hermit's. Þeir reynast langt frá
því að vera heilsutæpir og það
verður úr, að þeir komi hingað
í stað landa sinna. Nú er áróðurs-
vélin sett á fullt stím aftur og
auglýst af fullum krafti og þar
ber hæst tvö fræg nöfn, Herman
Hermit‘s og Guðmvlidur Jónsson.
Hvað eiga þessir heiðursmenn
sameiginlegt? Jú, reyndar, þeir
syngja báðir, en lengra nær sam-
líkingin ekki. Hlutverk Herman's
á hljómleikunum er að sjálfsögðu
að syngja með sinni heimsfrægu
og geysivinsælu hljómsveit og
hann gerir það svo sannarlega.
Guðmundur óperusöngvari átti að
kynna þetta brezka fyrirbæri, en
gat það ekki. Þótt hann sé vanur
að komast upp fyrir Karlakór
Reykjavíkur, þá tókst honum ekki
að yfirgnæfa þennan 787 manna
kór, ærðra táninga. Er hægt að
ætlast til þess? Nei, jafnvel ekki,
þó Guðmundur Jónsson eigi í hlut.
Tjaldið er dregið frá og hin
mikla stund rennur upp, er brezku
músíkkantarnir birtast í sviðsljós-
inu. Öskrin margfaldast og yfir-
hafnir svífa hátt í loft upp líkt
og blöðrur á þjóðhátíðardegi. Það
eru þeir. Ó, guð, hvar er Herman.
Síðan hálf grátandi af gleði:
Þarna er hann. Ó, er hann ekki
sætur. Stúlkurnar spenna greipar
og horfa stjarfar á sviðið. Aðvar
standa upp í sætum sínum, rífa
í hár sitt af tryllingi og gefa að-
dáun sinni lausan taum með fer-
legum skrækjum. Salurinn er orátt
iðandi af æpandi, veifandi og klapp
andi aðdáendum.
Herman litli Hermit hrífst með
og kreistir hljóðnemann um leið
og hann dansar um allt sviðið.
En í eitt skiptið fer hann heldur
tæpt og Stúlkurnar á fremsta bekk
sem höfðu lengi beðið eftir þessu
tækifæri, grípa snöggt um ökla
! hetjunnar og áður en Herman
getur talið upp að þremur er hann
umvafinn meyjarörmum. Þær bók
staflega kasta sér yfir hanu, en
í sömu andrá koma lögregluþjón-
arnir brezka ríkisborgaranum til
hjálpar og velta honum til baka
upp á sviðið. Herman glottir til
félaga sinna og fer úr jakkanum,
svona til að vera viðbúinn næsía
áhlaupi. •
Áfram heldur gleðin, enn er
veinað, öskrað, hlegið og grátið.
Ég efast stórlega um, að nokkur
hljómsveit hafi fengið jafn heitar
móttökur. En kvenþjóðin lætur
ekki að sér hæða. Tvívegis til við-
bótar er Herman dreginn niður
af sviðinu og knúsaður hátt og
lágt. En nú er þolinmæði lög-
reglunnar þrotin og þeir fjarlægja
allsnarlega þessa blóðheitu mót-
tökunefnd.
Stúlka ein á öðrum bekk hafði
marg reynt að koma til Herman's
árituðum blaðsneplum, en annað
hvort komust þeir ekki á leiðar-
enda eða Mr. Hermit tók ekki
eftir þeim. En nú vill svo til, að
hann kemur auga á einn miðann
og tekur hann upp og les. Ekki
nóg með það, heldur stingur hon-
um í vasann. En þessi sjón var
HávaSinn er að æra lögregluþjón-
inn og þvi ekkert annað að gera en
halda fyrir eyrun.
næstum ofraun fyrir stúlkuna.
Hún kiknaði í hnjáliðunum, byrgði
andlitið í höndum sér og rambaöi
á barmi yfirliðs. Það sama skeði,
er Herman varð það á að brosa
blítt til annarar stúlku. .
! Er þetta múgsefjun eða tima-
bundin sturlun?
Benedikt Viggósson.
STURLADIR ADDÁENDURl
3
Á VÍÐAVANGI
Banki ríkissjóðs
Fjárlagafrumvarpið nýja sýn
ir um 800 milljóna hækkun eða
hækkar því sem næst um sömu
upphæð og öll fjárlögin voru
1958, en frá þeim tíma lætur
nærri, að fjárlög hafi sexfald-
azt. Fjárlagafrumvarpið er skýr
mynd af rekstri í óðaverðbólg í
fimm eða sex sinnum meiri
verðbóigu en á sér stað í na-
grannalöndum, þar sem verð-
bólguvandamálið er þó talið al
varlegt.
Fjárlagafrumvarpið sýnir,
að ríkissjóð vantar sífellt meira
rekstrarfé, og það sækir það í
viðskiptabanka sinn — vasa
þjóðarinnar. Þar gilda eigi regl
ur stjómarinnar um frystingu
sparifjár og lánakreppu, og rík
issjóður borgar enga okurvexti.
Hann tekur aðeins það, er hann
þarf og vill úr fjárhirzlunni.
Hann getur krafizt 25—30%
hækkunar á rekstrarlánum hjá
þjóðinni á ári.
Risahækkanir á rekstrarkostu
aði ríkisins ár frá ári ættu að
geta sýnt ríkistjóminni, hvern
ig verðbólgan leikur atvinnu
rekstur hér á landi. Það ætti
að gera ráðherrunum fært að
líta í eigin barm og lesa þar
lexíu um þann vanda, sem at-
vinnuvcgirnir eru og hafa verið
í hér á iandi. Reksturskostnað-
urinn hefur hækkað um 20—30
% á ári, en rekstrarlánin ekki
að sama skapi. Bankar atvinnu
veganna eru ekki eins auðveld
ir viðskiptis og bankar ríkis-
sjóðs. En ráðherrar ættu að
skilja, að fyrirtæki og atvinnu-
vegir þurfa svipaða hækkun
rekstrarlána og aukningu þá,
sem ríkissjóður sækir í vasa
þjóðarinnar.
Klórað í bakkann
Fólkið í bænum segir að Geir
borgarstjóri sýni nú virðingar-
verða viðleitni til þess að klóra
i bakkann i fjármálavandræð-
um borgarinnar og líklega sé á
standið eitthvað að lagast. Til
dæmis hafi borgarstjóri gripið
til þess ráðs nú síðnst að selja
undan sér fararskjótann, sem
borgin hefur lagt honum tilund
anfarin ár. Skjóti þessi er þýzk
ur öndvegisgripur, gerður í á-
gætri þýzkri bílasmiðju, sem
hefur valinkunna umboðsmenn
hér á landi, og hafa þeir vafa-
laust selt borginni gripinn á
sínum tíma með afslætti og
öndvegiskjörum.
En nú hefur bíllinn sem sagt
verið seldur til þess að fá
aura í kassa, og ekki er ólík-
legt að einhver fórnfús vinur
hafi gert borg sinni og stjóra
hennar þann greiða að kaupa
bifreiðina hæsta verði og borga
út í hönd. Og til þess að auka
ekki á vandræðin, þegar svona
stendur á, hefur heyrzt, að borg
arstjórinn muni kaupa Trabant
með afborgun til þess að notast
við næstu missirin.
FRÍMERKI
Fyrir hvert islenzkt fri
merki. sem þér sendið
mér, fáið þér 3 erlend.
Sendið minst 30 stk.
JÓN AGNARS
P.O. Box 965,
Reykjavík.
t