Tíminn - 13.10.1966, Blaðsíða 14
4.
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 13. október 1966
Staða skrifstofustjóra
borgarverkfræöings
tf.r lans tíl umsdknar.
Umsóteúr sktilu sendar skrifstofu borgarstjóra,
Austurstráéti 16, éigi síðar en 26. október n.k.
Reykjavík 12. október 1966,
Borgarstjórinn f Reykjavík.
Frá Búrfellsvirkjun
VegAa virkjunárframkvæmda óskum við eftir að
ráða:
1. píptilagningamenn
2. bórmenn vana jarðgangnagerð
6. trésmiði og/eða gérvismiði
4. Stárféétúlkur í mötuneyti og ræstingu
5. nténn vana viðgérðum þungavinnuvéla.
Upplýsingar hjá starfsmannastjóranum.
FOSSKRAFT
SUÐURLANDSBRAUT 32.
LiáJt.--------------------------------------
4
r>
ÞAKKARÁVÖRP
ölium þeim mörgu, sem glöddu mig á sextugsafmæl-
inu með gjöfum, skeytum og heimsóknum, sendi ég
hugheilar þakkir og kveðjur.
Sigríður Björnsdóttir,
Borgarhólsbraut 37, Kópavogi.
vn þSkkwm innNetfa frondum og vinum hér og á Snæfellsnesi
fyrlr avVtýnd* tamúS vlS andlát og (arBarför fiiSur okkar, afa og
Eliníusar Jónssonar
Kriafin Elinfusardéttir, ASalheiSur Eliníusardóttir,
Hfðrdis Magnúsdóttlr, Elnar GuSmundsson og börn.
HtnNogbr kafckir fyrir auSsýnda samúS viS andlát og iarSarför,
Guðmundar Árnasonar
Gitsárstekk.
Sératakar þokkir tN allra, sem sýnt hafa honum vináttu og góðvild
é umlWhium árum.
Mfl GuSmundsson, ASalbjörg GuSmundsdóttir
Hllf P. Magnúsdóttir Óll Kr. GuSbrandsson
Of aBrlr vandamann.
innNaga auStýnda samúS og vinarhug viS andlát og jarSar-
fSr okkor hjarfkæra elgfnmanns og föSur,
Friðriks Teitssonar
vélsmiSa meista rr.
Karítas Bergsdóttlr, Laufey Friðriksdóttlr.
OtfSr
varSur
> sfSdagis.
mins,
Guðlaugs Br. Jónssonar
sférícaupmanns,
fré Vlkurklrkfu, Mýrdal, laugardaginn 15. október, kl.
Þorgrímur GuSlaugsson.
VW kökfcom af athug öllum þaim, tam heiSruSu minningu
GuSrúnar Lilju Oddsdóttur
Sandl
«f aoSsýnda okkwr samúS vlS andlát hennar og útför. Einnig
rítjum ríV fcofcka öfium |mim, sem heimsóttu hana f langri sjúk-
ag lottwSwst vlB aS létta byrSI hennar á einn eða
BSm, tengdabörn og barnabörn.
ÞJÓFNAÐIR
hiamhald at t-ls. 16
ir, auk bílþjófnaða sem - sumir
innbrotsþjófanna hafa einnig ver-
i« viðriðnir. Það scm af er árinu
hefur verið kært til rannsóknar
lögreglunnar vegna 216 falskra á-
vísana, og er það mikil aukning
miðað við nokkur undanfarin ár.
Þessir nítján innbrotsþjófar eru
flestir í gæzluvarðhaldi og bíða
dóms, en aldur þeirra er yfirleitt
frá 16 ára til tvítugs, þó munu
tveir eða þrjr vera eldri. Oftast
voru þeir 2—3 saman. en einn
var viðriðinn 14 innbrotanna.
Til að fyrirbyggja misskilning, þá
er hér ekki um samtök á milli
innbrotsþjófanna að ræða. Ekki
voru þjófarnir alltaf undir áhrif-
um áfengis, þótt það kæmi fyrir.
Stærstu innbrotin voru framin í
Múlakaffi þar sem stolið var 7600
vindlingum og kr. 2.900 í reiðu-
fé, og í. Tónabíó, en þaðan var
stolið 17 þúsund krónum úr pen-
ingaskáp en tæp 16 þúsund feng-
ust til baka, og brutust sömu þjóf
arnir inn á þrem öðrum stöðum
þá sömu nótt. Ekki er hægt að
segja, að miklu hafi verið stolið
á hverjum stað, enda fólk farið
að gæta fjármuna sinn betur. Alls
staðar þar sem brotizt var inn,
var leitað eftir reiðufé, eða ávís-
anaheftum, auk sigarettna og sæl-
gætis, en mjög hefur aukizt upp á
síðkastið alls konar ávísanafals.
Hafa svik, fals og vanskil alls
konar farið mjög í vöxt á þessu
ári, og því til sönnunar eru_ hér
nokkrar tölur um þau mál. Á ár-
inu 1964 voru skráð 535 slík mál.
Árið 1965 voru þau 542, en það
sem af er þessu ári, eru þau þegar
orðin 627 talsins, og er aukningin
mest í fölsuðum ávísunum. Þann-
ig var t.d. á sl. ári kært yfir
57 fölsuðum ávísunum, en nú þeg-
ar á þessu ári eru kærurnar orðn-
ar 216 og fjárhæðin, sem svikin
hefur verið út, nemur rúmum 360
þúsundum. Kemst óheiðarlegt
fólk yfir ávísanaeyðublöð á ýms-
an hátt, miklu er stolið af ávís-
anaheftum, og svo eru eigendurn
ir kærulausir, um hefti sín. Flestar
eru ávísanirnar seldar í verzl-
unum, og þá einkum í kvöldsöl-
um, en stærstu ávísanirnar eru
seldar í bönkum og þannig kom
t.d. fyrir um daginn, að ávísana-
hefti var stolið að morgni, og sex
ávísanir úr því seldar yfir daginn
að upphæð nærri 62 þúsund krón-
ur. Voru allar ávísanirnar seldar
í bönkum eða bankaútibúum hér
í borginni, og virðist eitthvað
meira aðhald þurfa í bönkunum
í sambandi við sölu ávísana. Þá
kemur alltaf til rannsóknarlögregl
unnar töluvert af innistæðulaus-
um ávísunum, sem komast í hend
ur Seðlabankans og var t.d. einn
og sami maðurinn kærður nýlega
fyrir að hafa gefið út 62 inni-
stæðulausar ávísanir og þar af
hafði hann gefið út 32 sama dag-
inn. Upphæðin, sem hér var um
að ræða, var hátt á 4 hundrað þús
kr. og var það starfsmaður við
verksmiðjufyrirtæki nokkurt,
sem gaf út ávísanirnar, en hann
bar við yfirheyrslu að fyrirtækið
Málið í
rannsókn
KJ-Reykjavík, miðvikudag.
Maðurinn, sem naugaði telp-
unni í Hafnarfirði í mánudaginn,
var i dag fluttur til Reykjavíkur,
í gæzluvarðhald, þar sem mál
hans verður rannsakað fyrir Saka
dómi Reykjavíkur.
Mjög hefur verið talað um þetta
óhugnanlega mál, og þá einkum
hvaða refsingu maðurinn muni
hljóta. Er haft fyrir satt, að nokkr
um ríkjum Bandaríkjanna liggi
dauðadómur við verknaði sem þess
um.
hefði átt að leggja inn á reikn-
inginn.
Flest þessara mála upplýstu fjór
ir rannsóknarlögreglumenn, þeir
Ingólfur Þorsteinsson, Magnús
Eggertsson, Njörður Snæhólm og
Leifur Jónsson.
GUÐBRANDSBIBLÍA
Framhald af bls i
næst, veit enginn hvað margar
Guðbrandsbíblíur eru til. Talið er,
að bókin hafi upphaflega verið
prentuð í 5—600 eintökum árið
1584, og fóru flest eintökin lil
kirkna landsins, þa rsem þau að
sjálfsögðu geymdust misjafnlega
vel. Guðmundur í Bókinni gat
upp á því, að til væru um 30
heilleg eintök á landinu, en Har-
aldur Sigurðsson, bókavörður,
taldi, að allmörg eintök væru til,
en hann hefði ekki haft vitneskju
um þetta eintak. Haraldur taldi
sennilegt, að hærra verð hefði
fengizt fyrir bókina á uppboði er-
lendis a.m.k. væri öruggt, að Guð
brandsbíblía færi alltaf hækkandi
í verðri, og ef segja mætti, að
hún hefði verið keypt dýrt nú,
þá yrði hún orðin ódýr eftir eitt
til tvö ár. Það er ekki ýkjalangt
síðan að Vinlandia Þormóðs Torfa
sonar var seld í Englandi fyrir
um 800 pund, eða sem næst 100
þúsund krónur, en sú bók var rit-
uð á latínu og kynni því að vera
verðnaeiri fyrir bragðið. Haraldur
taldi, að Guðbrandsbíblía væri
eini prentgripurinn jslenzkur,
sem telja mætti alþjóðlegan sölu-
varning, enda mjög eftirsótt inn-
anlands sem utan.
Landsbókasafnið á ein 4 ein-
tök af bókinni, Þjóðminjasafnið
3, Skálholtskirkja á eintak, enn-
fremur Bessastaðakirkja, sem
fékk bókina að gjöf frá Jóni Vest
dal og ættingjum hans. Jón Vesl-
dal hafði fengið það eintak ar-
lendis. Davíð Stefánsson, skáld, atti
bókina og meðal núlifandi ein-
staklinga, sem eiga bókina, eru
Sigurður Nordal, séra Sigurður
Pálsson í Hraungerði, Þorsteinn
Jósefsson, séra Eiríkur J. Eiríks-
son, þjóðgarðsvörður, Eiríkur
Einarsson, arkitekt, Gunnar Hall,
Eyjólfur Konráð Jónsson, ritstjóri
Morgunblaðsins og Jóhann Briem
listmálari, sem sagðist hafa keypt
bókina hér á landi fyrir 30 árum.
Fimm myndir eru í bókinni, af
guðspjallamönnunum og Páli post-
ula, eru skornar út hér á landi
eftir myndum í bíblíu Kristjáns
3. Danakonungs, sem kom út ein-
hvern tíma á árunum 1550 — 60.
Myndamótin af Páli postula er til
ennþá í Þjóðminjasafninu. Sumir
telja, að Guðbrandur hafi sjálfur
skorið út þessar myndir og suma
upphafsstafina, en erfitt er að slá
því föstu. Aðrar myndir eru er-
lendar, enda voru sömu mótívin
í öllum löndum í 16. aldar bíbli-
unum.
LÆRA HERNAÐ
Framhald af bls. l.
reisn um 1700 stúdenta við Tsing
hua-háskólann.
Sögðu uppreisnarseggirnir, að
skólinn væri byggður af banda-
rískum heimsvaldasinnum.
Auglýsing
um skoðun léttra bifhjóla í lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur.
Aðalskoðun léttra bifhjóla fer fram í bifreiðaeftir-
liti ríkisins, Borgartúni 7, sem hér segir:
Mánudaginn 17- október
Þriðjudaginn 18. október
Miðvikudaginn 19. október
Fimmtudaginn 20. október
Föstudaginn 21. október
Skoðun hjólanna er framkvæmd fyrrnefnda daga
kl. 09.00 til kl. 12.00 ogkl. 13-00 til kl. 16.30
Sýna ber skilríki fyrir því, að lögboðin vátrygging
fyrir hvert hjól sé í gildi Athygli skal vakin á því,
að vátryggingariðgjald ökumanna ber að greiða
við skoðun.
Skoðun léttra bifhjóla, sem eru í notkun hér í
borginni, en skrásett í öðrum umdæmum, fer fram
sömu daga.
Vanræki einhver að koma hjóli sínu til skoðunar
á réttum degi, verður hann látinn sæta sektum
samkvæmt umferðarlögum, og hjólið tekið úr um-
ferð, hvar sem til þess næst.
R-1 til R-300
R-301 — R-500
R-501 — R-700
R-701 — R-900
R-901 — R-1110
Lögreglustjórinn í Reykjavík,
12. október 1966.
Búrfellsvirkjun
Vegna virkjunarframkvæmda óskum við eftir að
ráða landmælingamenn og aðstoðarmenn við land-
mælingar. — Uppl. hjá starfsmannastjoranum-
FOSSKRAFT
SUÐURLANDSBRAUT 32.
i