Vísir - 27.09.1975, Blaðsíða 1
VÍSIR
65.árg.— Laugardagur 27. september 1975 —220. tbl.
„Það voru þeir sem Hvað gerist
voru lélegir - Ekki ég" um helgina?
— sjó viðtal við Pétur Kristjúnsson bls. 16 — sjó bls. 14
Engar tillögur fró
V.-Þjóðverjum
- vilja fund í október, en litlar
líkur eru á því oð hann verði
haldinn fyrir útfœrslu landhelginnar
Vestur-Þjóöverjar virðast nú
aðeins sveigjanlegri i afstöðu
sinni til landhelgismálsins en
þeir voru áður. Gkki er þó um
neina stefnubreytingu að ræða,
eins og fram kom á fundi Einars
Ágústssonar, utanrikisráð-
herra, meö Hans Dietrich
Gencher, utanrikisráðherra
Vestur-Þýzkalands i New York i
gær.
Fundurinn stóð i um það bil
eina klukkustund og ásamt Ein-
ari AgUstssyni tóku þátt i fund-
inum Hans G. Andersen, þjóð-
réttarfræðingur, og Hörður
Helgason, deildarstjóri i utan-
rikisráöuneytinu. Gencher hafði
sér til aðstoðar þrjá sérfræðinga
á sviði landhelgismála, ritara
og túlk.
Eftir fundinn sagði Einar.
AgUstsson, að árangur hefði
ekki orðið mikill. Hann kvaðst
hafa átt von á nýjum tillögum
frá Vestur-Þjóðverjum, en á
þeim hefði ekki bólað. Hann
sagði, aö afstaða Vestur-Þjóð-
verja hefði verið vinsamlegri,
en hann hefði átt að venjast i
þessu máli, og þeir ekki eins ó-
sveigjanlegir. Gencher hefði
lagt á það áherzlu, að Vestur-
Þjóðverjar vildu leysa málið.
Einar ÁgUstsson greindi hin-
um þýzka starfsbróður sinum
frá afstöðu fslendinga til lönd-
unarbanns i ýmsum höfnum i
Þýzkalandi og þeirrar ákvörð-
unar Efnahagsbandalagsins að
Islendingar skuli ekki njóta toll-
friðinda samkvæmt samningi
fyrr en landhelgisdeilan er
leyst. Kvað hann þetta hvort
tveggja illa séð á Islandi. Hann
sagði, að skýrsla um viðræðum-
ar yrði send rikisstjórninni, og
hUn tæki siðan ákvörðun um
samningafund með V-Þjóðverj-
um. Þeir vilja fund i október,
þar sem ráðherrar kæmu sam-
an, en Einar AgUstsson taldi
engar likur á slikum fundi áður
en landhelgin yrði færð Ut.
—AG—
VILJA 30%
HÆKKUN
HITAVEITU
A fundi borgarráðs Reykja-
vikur i dag var samþykkt, að
lcita eftir þvi við rikisstjórnina
að Hitaveita Reykjavikur fái að
hækka gjaldskrá sina um 30%.
óskað er eftir 15% hækkun þeg-
ar i stað og 15% hækkun 1. janú-
Skammt er siðan aö Hitaveit-
an fékk að hækka gjaldskrá sina
verulega, en hUn hefur átt i
miklum fjárhagsörðugleikum
vegna mikilla framkvæmda.
Einkum er það um að ræða-
kostnað vegna lagningar hita-
veitu til nágrannabyggða
Reykjavikur. — Þvi er haldið
fram, að þrátt fyrir þessar
hækkanir sé hitaveitan hlut-
fallslega ódýrari nU en hUn var
fyrir nokkrum árum. AG
Fœrð þyngist ó fjall-
vegum ó Norðurlandi
Snjókoma var viða á Norður
og Vesturlandi i gær og færð
sums staðar farin að þyngjast á
fjalivcgum. A Akureyri snjóaði
alian gærdaginn og þegar við
töluðum við lögregluna i gær-
kvöldi var bærinn aihvitur.
Snjórinn var þó ekki meiri en
svo að bilar héldu götunum auð-
um með umferð.
En það er spáð áframhald-
andi snjókomu á þessum slóðum
og ekki þarf honum að Tcyngja
lengi niður til að bæjarbúar
verði að draga fram skóflurnar.
Það snjóaði lika á Siglfirðir/ga
og lögreglan þar sagði að þótt
viðast væri fært um sveitir,
myndi Lágheiðin, milli Ólafs-
fjarðar og Skagafjarðar, nú
vera mjög erfið yfirferðar, ef
ekki alveg ófær.
Ekki fundum við nákvæmlega
hvar snjólinan endaði, en elsku-
leg frú á Þingeyri sagði okkur
aö þótt þar hefði verið kalt hefði
veður verið bjart og fallegt og
engin snjókoma.
—ÓT.
EGAR VEIÐAR
í ELLIÐAÁNUM
i EUiðaánum, einni beztu laxveiðiá landsins er
aðeins heimilt að veiða á maðk og flugu. Ljóst er,
að ýmsir brjóta þessar reglur, og við hreinsun á
ánum hafa fundizt hin ótrúlegustu veiðarfæri,
auk þess sem froskmenn hafa verið þar á ferð. —
Garðar Þórhallsson hefur um árabil stuðlað að
bættri umgengni við árnar, og unnið þar meira
starf en flestir aðrir. Hér sýnir hann nokkur
þeirra veiðarfæra, sem fundizt hafa við og i án-
um, og fleiri geta lesendur séð á baksiðu.
Ljósm. JIM.