Vísir - 27.09.1975, Blaðsíða 16
16
Vlsir. Laugardagur 27. september 197S
Það skemmtilegasta
úr sjónvarpsþáttunum
fer á hljómplöturnar
Monty Python/Match-
ing tie and handker-
chief/Arista/Karna-
bær
Hugleiðingar um vinsæiustu
grinista Bretlands út frá nýj-
ustupiötu þeirra, „Eins siifsi og
bindi.”
Hverjir eru Monty Python?
Hálfbræður Pink Floyd, eða
kannske fjarskyldar frænkur
Davids Bowie? Alla vega eru
þeir ákaflega dularfullt fyrir-
bæri svo ekki sé meira sagt. En
þar sem Brambolt sem einlægur
aðdáandi þessa hóps þekkir
nokkuð til þeirra ætlar hann að
lyfta hulu leyndarinnar af þeim,
ykkur öllum til gagns og gam-
ans.
Monty Python eru hugarfóst-
ur nokkurra pilta sem brugðu á
leik á BBC-skjánum fyrir þrem
fjórum árum. Hófu þeir þá
framleiðslu á sjónvarpsþætti er
einhverra hluta vegna hlaut
nafnið Monty Pythons Flying
Circus, og var I léttum dúr svo
ekki sé meira sagt. Ekki leist
forráðamönnum BBC meira en
svo á Monty, að þátturinn var
sendur út á lélegum tima til að
byrja með. Skemmst er frá þvi
að* segja, að absúrd húmor
þeirra félaga hreif Bretann um
leið, og fljótlega varð Monty
Python vinsælasti gamanþáttur
BBC.
En Monty Python, (Terry
Jones, Eric Idle, John Cleese,
Graham Chapmann og Michael
Palin) sá það þó fljótt út, að þó
að þáttur þeirra nyti óhemju
vinsælda jafnt heima sem heim-
an, þá væri hann of góöur til
þess að hann yrði keyptur til Is-
lands og fleiri landa er fylgja
annarlegum sjónarmiðum I
sjónvarpsþáttakaupum. Brugðu
þéir því á það ráð, að gefa
skemmtilegustu brotin úr þátt-
unum út á hljómsklfum almúg-
anum til heilnæmrar
uppfræðslu. Hafa skifur þeirra
jafnan trónað I efstu sætum vin-
sældalistanna, þó ekki sé um
popplög að ræða, og gefur þetta
nokkra mynd af glfurlegum vin-
sældum þeirra félaga.
Nýjasta sklfa þeirra, Match-
ing tie and Handkerchief er eng-
inn eftirbátur hinna fyrri, sér-
stæður húmor Monty Python
rennir sér fótskriöu eftir svörtu
plastinu, svo að engri vörn
verður viö komið. Þegar kaup-
andi plötunnar ætlar sér að fara
að bragða á góðgætinu kemst
hann að því, að ekki er allt með
felldu. Til að byrja með, þá er
skífan ókeypis, hún fylgir með
umslaginu sem hins vegar er
dýrt mjög. Eitthvaö er þó bogiö
við þessa ókeypis sklfu, þvl þaö
er ekki sama hvar nálin er sett
niður I hana, stundum er ólikt
efni á sama staö. Þegar maður
kolruglaður hefur hlustað á
aðra hliöina rennur upp fyrir
manni, að tveim plötuhliöum
hefur verið komið fyrir á einni á
einhvern óskiljanlegan hátt.
Þannig er hér um eina og hálfa
plötu að ræöa, þó að hún sé
aðeins ein...
Efnið sem þeir taka fyrir er
að venju fjölbreytt, og þeir láta
fátt fara fram hjá sér fara.
Ógerlegt er að lýsa húmor
þeirra'á prenti, þar sem hann er
fastur á hljómskífu. En lysthaf-
endum skal bent á, að „eins
slifsi og vasaklút” má nota við
öll tækifæri, jarðarfarir, dans-
kennslu, innrásir I ókunn lönd, I
afmæli Dalai Lama. Getur
einnig notast eftir að viðkom-
andi hefur sagt „Nix” og „Wa
tow” eða þegar verið er að hinta
að einhverju.
Látum við þetta spjall um
Monty Python og nýjasta fram-
tak þeirra nægja að sinni, en öll
nánari fræðsla fer fram á skif-
unni sjálfri, sem er opin
almenningi milli 5 og 6, nema
milli fimm og sex, þvl þá fær
Monty sér te.
Röddin var ekki léleg,
það voru „raddimar"..
Brambolt spjallar
við Pétur Kristjáns-
son, söngvara
í Paradís
Það er ekki auðvelt að
ná taliaf Pétri Kristjáns-
syni þessa dagana og því
erfiðara að ná af honum
viðtali. Brambolt gerði þó
nokkrar heiðarlegar til-
raunir og tókst það að
lokum eftir að hafa
hlaupið góðan spöl með
Pétri. Birtist hér árang-
urinn.
BB: Það var þetta með plöt-
una, Pétur. Þið tókuð „Super-
man” upp stuttu eftir að Para-
dis var stofnuð og tókuð þar með
nokkra áhættu. Hefur hún
gengið vel?
Pétur: Ahættan er ekki orðin
jafnmikil, eftir að hægt er að
taka plöturnar upp hér heima,
og okkur langaði til að kýla á
litla plötu og gerðum það.
Fyrsta upplag seldist strax upp
og annað upplag er komið I
verzlanir. Við höfum ekki á-
stæðu til annars en að vera á-
nægðir með þennan árangur.”
Þvi næst spyr Brambolt Pét-
ur hvort lög plötunnar endur-
spegli að einhverju leyti stefnu
hljómsveitarinnar i lagavali:
„Að einhverju leyti, já. Við
stefnum að því að hafa góð.er-
lend lög á dagskrá, ekki endi-
lega þau þekktustu. Siðan
blöndum við okkar frumsömdu
tónlist samanvið eftir þvi sem
hún skapast.
„Telurðu að þau lög sem þið
takið séu „einföld stuðmúsik”
eins og Herbert Guðmundsson,
söngvari i Pelican, segir i
blaðaviðtali að þú hafir viljað
spila. Einfaldari en t.d. Cotton-
fields og önnur ámóta lög á
lagaskrá Pelican i dag?
„Nei alls ekki. Mörg laganna
okkar hafa margt annað sér til
ágætis en að vera stuðmúsik og
eru ekki einfaldari en önnur
lög.”
,,Nú hefur oftar en einu sinni
komið fram i viðtölum við með-
limi hljómsveitarinnar Pelican
og framkvæmdastjóra þeirra að
erlendum aðilum þeim er ætl-
uðu að stuðla að velgengni Peli-
can-plötunnar I Bandarikjunum
hefði þótt þú hafa of lélega rödd.
Hefur þú rætt eitthvað við þessa
aðila siðan?”
„Þegar ég fór út til Banda-
rikjanna fyrr i sumar, þeirra
erinda að græja Paradis upp, þá
hafði ég I leiðinni samband viö
einn þessara aðila. Hann tjáði
mér, að það hefði ekki verið min
söngrödd sem var léleg heldur
raddirnar á plötunni, raddir
annarra hljómsveitarmanna.
Það er því alger misskilningur
frá hendi Pelican, að ég hafi
verið of lélegur söngvari fyrir
hljómsveitina. Það er ekki litill
munur á einu essi i enda orðsins
„Vocal”.”
Þá vil ég benda á að það er
ekki rétt sem Herbert Guð-
munds segir I viðtali við Alþ,-
blaðið að það hafi tekið meiri
tima að taka upp mina rödd en
aðrar. Staðreyndin er sú, að það
tók helmingi imeiri tima að taka
upp milliraddirnar á „Litil
fluga” en allan minn söng.”
„Núþegar „Superman” hefur
gengið svo vel, megum við þá
eiga von á stærra framtaki
bráðlega?”
„Það varnú alltaf ætlunin að
vinna efni i stóra plötu sem fyrst
en vegna mikilla anna síðan við
byrjuðum, þá hefur litill timi
gefizt til að sinna þvi. Þau eru
þó orðin nokkur frumsömdu lög-
in sem við eigum i pokahorninu.
Við erum að pæla i textum við
þau, svo þetta er allt I áttina. Ég
treysti mér samt ekki til að
segja til um hvenær hún kemur
út”.
„Telurðu Paradis hafa náð
sömu vinsældum og Pelican á
sinum tima?”
„Hljómsveitin Paradis er vin-
sælli i dag en hljómsveitin Peli-
can var nokkurn tima. Ég dreg
þessa staðhæfingu af þeirri á-
sókn sem er i hljómsveitina og
vegna þess að við höfum meira
að gera en Pelican höfðu þegar
bezt lét.”
„Hvaða augum litur þú til
nánustu framtiðar?”
„Ég lit björtum augum til
framtiðarinnar, Hjómsveitin
Paradis á eftir að verða mun
betri en hún er nú og væntan-
lega vinsælli að sama skapi. Við
stefnum allir að sama takmark-
inu, gera okkar bezta...