Vísir - 27.09.1975, Blaðsíða 7
Visir. Laugardagur 27. september 1975
7
HVAÐ
KOSTA
SKÓR?
— við könnuðum verð ó skófatnaði og þó
helzt þeim skóm sem kallast tízkuskór.
Við völdum verzlanir af handahófi
Hafið þið keypt ykkur skó
nýlega? Ef svo er, þá hlýtur
ykkur að hafa blöskrað verðið
sem nú er á þeim. En það gildir
ekki eingöngu um skótauið held-
ur allan fatnað og yfirleitt flest
annað sem við teljum okkur
þurfa á að halda.
Einum af blaðamönnum Visis
hafði með einhverjum óskiljan-
legum hætti tekizt að nurla
saman svo stórri peningaupp-
hæð (að minnsta kosti í okkar
augum) að hann gat sprangað i
bæinn og keypt sér skó sem
kosta tæpar 12 þúsund krónur.
Að sjálfsögðu tilheyra þessir
skór tizkunni eins og hún gerist
mest 1 dag og það hefur örugg-
lega eitthvað að segja varðandi
verðið. En eftir þetta lék okkur
forvitni á að vita nánar um
verðlag á skóm.
Við skunduðum i bæinn — með
engar 12 þúsund krónur — og
komumst fljótlega að raun um
aö tizkuskór eru nokkuð sem við
getum ekki veit okkur að sinni.
En það er margt annað sem fólk
getur tæplega veitt sér, svo
þetta virðist allt saman haldast
i hendur.
Verzlanir af
handahófi....
Við völdum verzlanir af
handahófi. Engin ein verzlunin
virðist dýrari en önnur. Við kus-
um þó i þetta skipti að kanna
Umsjón: Edda
Andrésdóttir
verö á þeim skóm, sem eru
vinsælastir og eru i tizku.
Auðvitað er hægt að fá
ódýrari skó og margar fleiri
verzlanir verzla með skó en þær
sem við fórum i. Svo ef einhver
er i þeim hugleiðingum að
kaupa skó, þá má hann ekki
meö þessu verða úrkula vonar
um að fá eitthvað ódýrara.
Við byrjuðum á þvi að lita inn
i Kastalann. Við spenntum
bogann hátt og báðum um að fá
aö sjá dýrustu skóna i búðinni.
Okkur voru sýnd stigvél, hin
syokölluðu Baggy-stigvél, sem
eru gifurlega vinsæl i dag.
Verðið á þeim var 14.900 krónur.
Skórnir eru mjög fallegir úr
mjúku og góðu leðri og sann-
kallaðir tizkuskór. Maður flettir
ekki tizkublaði án þess að sjá
slika skó.
Næst-dýrustu skórnir eru
,,kúreka”-stigvélin, sem lika
eru mjög vinsæl. Verðið á þeim
er 11.800 krónur. Skórnir eru
með hrágúmmisólum.
Eldri stigvél voru á 9.980
krónur. Götuskór, sem lika eru
algjörir tizkuskór, kostuðu
meðal annars 9.490 krónur, 8690
og 7.990 krónur.
Karlmannaskórnir fóru upp i
10.700 krónur. Það eru þá eins-
konar stigvél en götuskór af
allra nýjustu gerð, sem reyndar
eru margir hverjir mjög finir,
kosta frá 9.250 og upp i 9.500.
„Verða að endast
út árið.”
t einni skóverzlun hittum við
fyrir „litil hjónakorn”, eins og
þau kölluðu sig. Þau kváðust
heita Elsa Sveinsdóttir og
Heiöar Hreiðarsson.
— Finnast ykkur skór ekki
dýrir?
,,Jú, ofboðslega dýrir.” —
„Þessir skór sem ég er i
kostuðu 8 þúsund krónur fyrir 3
mánuðum siðan,” sagði
„Skór eru ofbogslega dýrir,” sögðu Elsa Sveinsdóttir og Hreiðar
Hreiðarsson sem við hittum í einni skóverzluninni. Hreiðar benti á
skóna sina: „Þeir kostuðu 8 þúsund krónur og verða lika að endast
út árið.” Ljósm: LA.
Þessi stigvéi, sem bæði fást á karlmenn og kvenfólk, fundum við I
Casanova á 9.900 krónur.
Hreiðar okkur. „Þeir verða að
nægja mér út árið. Ég hef ekki
efni á þvi að fá mér aðra svona
dýra skó á næstunni. En þessir
eru lfka mjög góðir ennþá.”
Elsa benti á sina skó. „Þessir
kostuðu eitthvað um tvö
þúsund krónur, þegar ég keypti
þá fyrir löngu siðan. Ég er að
fara með þá til skósmiðs
núna....” Það reyndust vera
svokallaðirtrampskórsem Elsa
var i og þeir eru vinsælastir hjá
skólafólki núna, fréttum við.
Hvað kosta
trampskórnir?
Við litum inn i Skóverzlun
Þóröar Péturssonar til þess að
forvitnast um það. Þeir kosta
frá 4.595 krónum og fara upp
fyrir 6 þúsund krónur. Skómir
fást I ýmsum gerðum, bæði háir
og reimaðir og svo lágir.
Skór þessir þykja mjög þægi-
legir og börn og unglingar not-
færa sér þá mikið. Karlmanna-
skór i verzluninni voru dýrastir
11.445 krónur og voru frá 6.790
krónum. Dýrustu kvenskómir
kostar þar 7.685krónur. Ódýrari
skó má þó að sjálfsögðu fá i
verzluninni.
Skór á rúmar
17 þúsund krónur
Það var það hæsta sem við
fundum. Baggy-stigvél sem
kosta 17.400 krónur. Þau fund-
um við i Karnabæ. Óneitanlega
falleg en dýr . Þarna mátti þó
á sama stað fá stigvél sem gáfu
þessum dýru litið eftir i útliti og
þau kostuðu 7.900 krónur. Það er
sérlega ódýrt af stigvélum að
vera.
Kvenskó er annars hægt að fá
frá 4.900 krónum. Ódýrustu
karlmannaskórnir kostuðu 4.900
krónur og fóru hæst i 8.500
krónur. Þeir dýrustu ná nokkuð
hátt upp á fótinn.
,,Ættu að kosta
svona 4000 krónur”
Við hittum tvær stúlkur sem
voru að skoða götuskó sem
kostuðu um 12 þúsund krónur.
Þeim fannst það heldur dýrt svo
við spurðum þær hvað þeim
fyndist hæfilegt verð á götu-
skóm vera?
„Alls ekki meira en 4 þúsund
krónur,” svöruðu þær. En verð
á stigvélum? „Alls ekki meira
en 6-7 þúsund krónur,” voru
þær fljótar að svara.
Og loks i Casanova
Þangað litum við inn að
siðustu. Margar fleiri
skóverzlanir eru i bænum, en
við ákváðum að láta þqtta
nægja eins og við sögðum fyrr.
Við báðum að sjálfsögðu um
dýrsutu skóna i Casanova.
Skórnir til vinstri kosta 5.950
en til hægri, 9.490 kr. Þeir
fást I Kastalanum.
Okkur voru sýnd þessi geysi-
vinsælu ,,kúreka”-stigvél, sem
koma hingað beint frá Spáni,
9.900 kronur kosta þessi stigvél i
verzluninni, jafnt á stelpur sem
stráka.
Það sýnir sig að þessi stigvél
sem fást i nokkrum verzlunum i
borginni kosta ekki alls staðar
það sama. Við fyrstu sýn virðast
þau eins en eini munurinn sem
við sáum var að sums staðar
má fá þau með hrágrúmmisóla
en annars staðar ekki.
Verðmismunirinn veltur þó
oftast á þvf, hvort stigvélin eru
keypt beint inn af verzluninni.
Svo reyndist um Casanova.
Ódýrustu kvenskórnir
kostuðu 1.500 krónur en fóru upp
i 5.950 krónur að stigvélunum
undanteknum. Karlmanna-
skórnir voru frá 5.790 krónum,
en okkur var sagt að tizku-
skómir færu naumast undir
8.500 krónur.
Og þar höfum við þaö!
-EA.
Þessi stigyél kosta 17.400
krónur i Karnabæ. Óneitan-
lega falleg og vönduö var
okkur tjáð.