Vísir - 27.09.1975, Side 11
Vlsir. Laugardagur 27. september 1975
11
Umsjon. Stefan Guöjohnsen
Frá meistaratvlmenningi Bridgefélags Reykjavlkur. Taliö frá vinstri: Ragnar S. Halldórsson, forstjóri
isal, Jón Baldursson, Þráinn Finnbogason. Guömundur Arnarson snýr bakilljósmyndarann.
(Ljósmynd Jim)
Spaðanían
gat gert
gœfumun
Hér er athyglisvert spil úr
B-riöli slðustu umferðar. Allir
utan hættu og suður gefur.
samningur og vann þá.
A 9-6-5
V 10-9-5
♦ 7-6-5-4
4 G-10-7
4 K-8-7-2 ♦ A-G
¥ K-G-7-6-4 ¥ A
4 2 ♦ A-K-D-G-9-8-3
4 A-3-2 * D-8-6
4 D-10-4-3
¥ D-8-3-2
♦ 10
4 K-9-5-4
Spilið var spilað á sex boröum
og var misjafn árangur. A einu
borði komust a-v I þrjú grönd á
spilið, en ég held að engin hafi
áhuga á því, hvernig þær sagnir
gengu.
Næst komust a-v I sex grönd,
sem er alveg gulltryggur samn-
ingur, ef tigullinn liggur ekki
5-0.
Þrjil a-v pör fóru alla leið isjö
grönd og það merkilega skeði,
að öll unnu þau spilið. Fljótt á
litið virðist suður vera I óverj-
andi kastþröng, en glöggir les-
endur koma strax auga á, að
SPAÐANIAN hjá norðri getur
haft úrslitaáhrif.
Austur getur taliö 12 örugga
slagi og sá þrettándi hlýtur að
koma með kastþröng. Vandinn
er einungis að finna út hver
lendi I kastþrönginni, norður
eða suður, eða báðir.
Einn sagnhafi spilaði Vlnar-
bragð svokallaö með tvöfalda
kastþröng sem aukamöguleika.
Otspilið var tigull drepinn á ás.
Þá kom hjartaás, laufaás (Vln-
arbragð), síðan hjartakóngur
og heim á spaöaás. Nú tók hann
tlglana I botn og þegar hann tók
þann siðasta var staðan þessi:
4 9-6
¥ 10
♦ enginn
4 ekkert
4 K-8 4 G
V G ¥ ekkert
♦ enginn 4 3
4 ekkert <4 D
4 D
¥ D
♦ enginn
*K
Þegar austur spilar tlglinum,
þá kastar suður spaðadrottn-
ingu og engin leið er að vinna
spilið. 1 reyndinni kastaöi suður
laufakóng I fjögurra spila end-
ingunni og sagnhafi vann spilið
auðveldlega.
Austur þóttist spila upp á
mjög góða möguleika en það er
einfalda kastþröngin á suður 1
laufi og hjarta, sem heppnast.
Austur heldur þá samgangin-
um viö blindan I laufi og spilar
spilið þannig: Fyrsti slagur er
drepinn á tígulás, hjartaás tek-
inn, slðan spaðakóngur og
hjartakóngur. Svo fer sagnhafi
heim á spaöaás og tekur tlglana
ibotn. Þegarslðasta tlglinum er
spilað er suður I kastþröng með
laufakóng og hjartadrottningu.
A síðasta borðinu spilaði aust-
ur sjö tígla, sem er mjög góður
samningur og vannþá.
FRÁ MEISTARATVÍ-
MENNING B.R.
Að tveimur umferðum loknum I meistaratvlmenning Bridge-
félags Reykjavikur er staðan þessi:
1. Einar Þorfinnsson — Páll Bergsson ' 387
2. Sigfús Þórðarson — Vilhjálmur Pálsson 380
3. Hjalti Ellasson — örn Arnþórsson 378
4. Danlel Gunnarsson — Steinberg Rlkarðsson ;373
5. Guðmundur Pétursson — Karl Sigurhjartarson 372
6. Halla Bergþórsdóttir — Kristjana Steingrimsd. 370
7. Ólafur H. Ölafsson — Jón G. Jónsson 357
8. Guðlaugur R. Jóhannsson — Ásmundur Pálsson 354
9. Jakob Armannsson — Páll Hjaltason 354
10. Sigurður Sverrisson — Sigtryggur Sigurðsson 351
Næsta umferð verður spiluð n.k. miðvikudagskvöld I Domus
Medica kl. 20. Alls eru spilaðar sex umferðir.
BJÖRN OG ÞORÐUR
EFSTIR HJÁ TBK
Að tveimur umferðum loknum I tvimenningskeppni Tafl- og
bridgeklúbbsins er staðan þessi:
1. Björn Kristjánsson — Þórður Elisson 401.
2. Bragi Jónsson — Dagbjartur Grlmsson 395
3. Helgi Einarsson — Sigurjón Tryggvason 374.
4. Auðunn Guðmundsson — Sigtrýggur Sigurðsson 362.
5. Inga Hoffmann — Ólafía Jónsdóttir 362.
6. Hilmar Ólafsson — Ingólfur Böðvarsson 361
7. Arni Pálsson — Guðmundla Pálsdóttir 355
8. Bragi Björnsson — Guðmundur Aronsson 344.
9. Ólafur Lárusson — Rikarður Sigfússon 342
10. Hannes Ingibergsson — Jónina Halldórsdóttir 342.
Spássitúr
í Gamla kirkju-
garðinum eru feitustu
ánamaðkar i Reykja-
vik að því er lax-
veiðimaður tjáði mér.
Ég rölti þangað i
sumar með vini minum
sem var nýkominn að
utan.
„Þar er þögn og gott
að tala saman,” sagði
hann og ákvað
stefnuna.
Rétt innan við garðshliðið
gengum við fram á stóran tré-
kassa. Ofani kassanum sat
bústinn þröstur og kroppaði i
bing af jurtaleifum og drasli.
Hann virtist ekki taka eftir okk-
ur og hélt áfram að kroppa þó
við kæmum alveg að kassanum.
„Furðulega spakur fugl,”
sagði ég. „Hann er svo vanur
hinum dauðu.” svaraði vinur
minn.
Spölkom innar lá sofandi róni
á grasigrónu leiði með rifna
hettuúlpu breidda yfir sig.
„Svona gæti ekki gerzt i
Svlþjóð,” sagði ég. „Hann er að
æfa sig fyrir hvfldina löngu,”
svaraöi vinur minn.
Við röltum áfram og leituðum
aðleiði Sigurðar Breiðfjörðs, en
hvemig sem á þvi stóð, gat ég
ómögulega áttað mig á hvert
skyldi halda. Loks komum við
auga á gamlan mann sem
sveiflaði orfi neðst I garðinum.
„Tlmans langi ljár,” sagði
vinur minn.
Við spurðum sláttumanninn
hvort hann gæti visað okkur á
leiði Sigurðar Breiðfjörðs. „Það
er hér ögn utar. Ég skal fylgja
ykkur,” svaraði hann, iagði trá
sér orfið og gekk á undan okkur.
„Finnst þér þú aldrei vera
slátturmaðurinn sjálfur —
líknarmaður, þegar þu ert hér i
garðinum?” spurði ég hátiðleg-
ur I bragði. „Ég er að austan,
svo komu þúfnabanarnir,” var
svarið. Hann stikaði áfram, án
þess að lita við.
„Manstu ekki eftir atriðinu i
Heimsljós— þegar Mr. Kárason
finnur mosagróinn steininn”
skaut ég að kunningja minum,
þegar við stóðum við gröf
rlmnaskáldsins. Hann kinkaði
kolli. Sláttumaðurinn tvísté. Ég
gat ekki á mér setið:
„Prestar hinum heimi frá
hulda dóma segja
en skyldi þeim engum bregða
I brá
blessuðum nær þeir deyja”.
„Hvað segirðu?” spurði
sláttumaðurinn og hélt áfram
aö tvlstiga. Ég endurtók
stökuna:
„Prestar hinum heimi frá
hulda dóma segja
en skyldi þeim engum bregöa
I brá
blessuðum nær -þeir deyja”
Hann hummaði og tróð
krumlunum i vasann. „Þetta er
staka eftir Sigurð BreiðfjörðJ’
sagði ég. „Hann hefur verið
hagmæltur?” spurði hann. „Já
— hann orti,” sagði ég.
Sláttumaðurinn kvaddi.
„Hann þekkir grafirnar eins og
fjármaður sauðina sina,” sagði
vinur minn og horfði á eftir hon-
um. „Ég hefði sennilega getað
spurt hann um eitthvað allt
annað nafn,” sagði ég. „Að
sjálfsögðu,” savaraöi vinur
minn.
Þegar við forum út um garðs-
hliðið gegnum við i flasið á
tveim unglingsstúlkum. Þær
plskruðu eitthvað saman og
héldu hlæjandi áfram upp göt-
una. Stór amerlskur kaggi þaut
hjá og töffi með kúrekahatt
gólaði.