Vísir - 03.10.1975, Blaðsíða 6
6
Visir. Föstudagur 3. október 1975
VÍSIR
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Davið Guðmundsson
Ritstjóri og ábm: Þorsteinn Pálsson
Ritstjórifrétta: Arni Gunnarsson
Fréttastjórjerl. frétta: Guðmundur Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611. 7 linur
Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands.
i lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Umsjón: GP
■ ■
BB
INDLAND A
KROSSGÖTUM
Karpið um vísitöluna
Stjórnmálaumræður hér á landi eru óneitanlega
hálf broslegar á stundum. Þegar talsmenn stjórn-
málaflokkanna og blöð þeirra komast i hár saman
er það æði oft jafngildi ágætustu reviu. Eitt gott
dæmi þar um er karp Timans og Þjóðviljans að
undanförnu um efnahagsstefnu rikisstjórnarinnar.
Timinn hefur þrástagast á þvi i sumar, að núver-
andi rikisstjórn fylgi i raun réttri alveg sömu stefnu
og vinstri stjórnin. Fullyrðingar af þessu tagi hefur
Þjóðviljinn að sjálfsögðu ekki mátt heyra nefndar á
nafn án þess að ærast. Menn eiga eðlilega erfitt með
að glöggva sig á tilgangi slikra skrifa, þvi að flestir
eru á einu máli um, að farið hafi fé betra en vinstri
stjórnin.
Karp af þessu tagi hefur þó gildi að þvi leyti, að
það opnar augu manna fyrir, hversu innantómar
stjórnmálaumræður eru oft á tiðum. Eitt af deilu-
efnum þessara tveggja flokksblaða hefur verið visi-
tölubinding kaupgjalds. Allir stjórnmálaflokkar
hafa staðið að afnámi visitölugreiðslna á kaup eða
frestun á greiðslu kaupgjaldsvisitölu eins og það
hefur stundum verið nefnt. Þegar flokkar eru i
stjórnarandstöðu mega þeir hins vegar ekki heyra
aðgerðir af þessu tagi nefndar á nafn.
Visitöluuppbætur á kaupgjald hafa ekki verið
greiddar siðan vorið 1974 fyrir utan láglaunaupp-
bæturnar. Það visitölukerfi, sem við höfum búið við
og gilt hefur samkvæmt samningum aðila vinnu-
markaðarins, er hluti af þvi sjálfvirka verðbólgu-
kerfi sem hér hefur verið við lýði. Þetta er miklu
mun viðtækara kerfi en þekkist viðast hvar annárs
staðar.
1 hvert skipti sem harðnað hefur á dalnum i efna-
hagsmálum hefur reynst óhjákvæmilegt að nema
það úr gildi með löggjöf. Allir stjórnmálaflokkar
hafa komist i þá aðstöðu að þurfa að bera ábyrgð á
lagasetningu um þetta efni. Þegar mest hefur á
reynt hefur ævinlega komið i ljós, að þetta visitölu-
kerfi er ónothæft eins og það er úr garði gert. Það
hefur þvi ekki verið sú trygging sem af er látið.
Þrátt fyrir þessa augljósu staðreynd hefur aldrei
verið léð máls á þvi i fullri alvöru að breyta þess-
um reglum. Það þjónar engum tilgangi að semja
um reglur, sem ekki er unnt að framfylgja og allir
hlutaðeigandi aðilar hafa i verki viðurkennt að sé ó-
gerningur.
Þjóðviljinn hefur svarað frýjunarorðum Timans
með þvi að halda fram, að ráðherrar Alþýðubanda-
lagsins hafi aðeins samþykkt visitölubannið af illri
nauðsyn. Sök núverandi stjórnvalda sé hins vegar
sú að hafa samþykkt þetta með köldu blóði.
Meðan stjórnmálaumræður eru barnalegt stagl af
þessu tagi er varla að vænta umbóta, hvorki á þessu
sviði né öðrum. Vitaskuld yrði það launþegum til
hagsbóta, ef unnt reyndist að ná samkomulagi um
visitölureglur sem ekki þyrfti óhjákvæmilega að
taka úr sambandi i hvert sinn er á reynir.
Stjórnmálamenn og forystumenn hagsmunasam-
taka virðast á hinn bóginn telja vænlegra á at-
kvæðaveiðum sinum að halda áfram uppteknum
hætti. Hér skortir stjórnmálaflokkana þor eða afl til
þess að horfast i augu við staðreyndir og vinna að
nauðsynlegum breytingum.
SÁRINDUM hefur valdið
á Indlandi að stjórn Bret-
lands skyldi aflýsa heim-
sókn Karls prins þangað
austur. Lét sendiráðherra
Indlands það nýverið í
Ijós á blaðamannafundi f
London.
Astæðan er vafalaust sú hve
Indlandsstjórn snerist skyndi-
lega til einræðis á siðastliðnu
sumri. En siðan ritskoðun var
komið á hafa breskir blaða-
menn ekki fengist til að starfa
þar. Sendiráðherrann kom i
máli sinu einnig að þessu atriði
og kvaðst ekki skilja þvi breskir
blaðamenn treystust ekki til að
starfa við þau skilyrði sem koll-
egar þeirra frá mörgum öðrum
löndum létu sér fyllilega lynda.
Hann gat þess einnig að iinað
hefði verið á ritskoðun þótt hann
léti undir höfuð leggjast að taka
fram i hverju það væri fólgið.
Ekki leikur á tveim tungum
að Indland stendur nú á kross-
götum, og viðbrögð bresku
stjórnarinnar og breskra blaða-
manna eru glöggur vottur um
að ekki er séð hver leiðin verður
fyrir valinu.
Er stærsta lýðræðisriki heims
kannski hætt við lýðræði?
Kostir Indiru
Völd sin i Congressflokknum á
Indira Gandhi forsætisráðherra
þvi að þakka að hún er öðrum
snjallari i refskák stjórnmál-
anna, og lýðhylli hennar stafar
af öðru en þvi að hún sé happa-
sæll þjóðarleíðtogi, þótt enginn
dómur skuli lagður á það hér
útaf fyrir sig. Hún hefur einsog
faðir hennar einstakt lag á að ná
til þeirra sem hvorki eru læsir
né skrifandi (sem munu vera
um 60% þjóðarinnar), hún er
dóttir Nehrús og ber sama nafn
og mahatma Gandhi vegna
giftingar sinnar, hún er mjúk-
mál og óspör á fögur fyrirheit,
og hefur til að bera mikla ró og
þrek á hættustund. 1 annan stað
var hún svo séð aö velja sér
kúna, hið volduga helgitákn
heimsmóðurdýrkunarinnar, að
kosningamerki, en á Indlandi er
kosið eftir flokksmerki en ekki
listabókstaf vegna ólæsis
almúgans.
Spilling
Það er ekkert sældarbrauð að
stjórna Indlandi.Sá sem til þess
Sigvaldi
Hjólmarsson
Þartil I sumar var Indland með frjálsustu löndum. En verður
þaö hlutskipti ungu kynslóöarinnar að eiga sifellt yfir höföi sér
afskipti hers og lögreglu?
velst hlýtur að verða fyrir mik-
illi gagnrýni ef gagnrýni er á
annað borð leyfð. Þóað Indira
lægi undir ámæli fyrir vanefnd
kosningaloforð var hitt þó lak-
ara að henni var borið á brýn að
halda verndarhendi yfir mikilli
spillingu i embættisfærslu. Hún
er sökuð um að láta ráðherrum
sinum og vildarmönnum hald-
ast uppi að raka saman fé með
vafasömum aðferðum, láta
safna i sjóði flokks sins með
svipuðum hætti og ala upp með-
al yngri manna flokksins hópa
sem liðið er að hleypa upp
flokksstarfi annarra flokka,
jafnvel fylla sali þeirra fyrir-
fram.
Framanaf ári sjötiu og fjögur
var þessi gagnrýni orðin hávær,
og þá fannst hinu aldna göfug-
menni, Jaya Prakash Narayan,
arftaka mahatma Gandhis, sem
við svo búið mætti ekki lengur
standa. Hann hóf baráttu gegn
spillingu og i þvi augnamiði
stofnaði hann samtök I mai i
fyrra sem fjölluðu um stjórnmál
og stjórnmálamenn, en skyldu
þó ekki verða stjórnmálaflokk-
ur.
Nú sá stjórnarandstaðan sér
leik á borði að færa baráttu sina
meira yfir á hið móralska svið.
Það gerðist lika á þvi ári að
jafnaðarmannaflokkarnir tveir
voru sameinaðir undir forustu
dugandi verkalýðsforingja,
Fernandes, frá Goa. Og greini-
legt var að átökin i þinginu
mundu harðna.
Congressmenn báru stjórnar-
andstöðunni á brýn að hún
reyndi aðeins að koma óorði á
stjórnina sem gæti skaðað land-
ið stórlega útávið en sinntu litt
um aðkallandi vanda. En
stjórnarandstaðan varði sig
með þvi að stjórnin yrði fyrst að
hreinsa til i eigin herbúðum, það
væri ekki nóg að hafa stóran
meirihluta á þingi (bæði i Lok
Sabha og Rajya Sabha), menn-
irnir sem þennan mikla meiri-
hluta skipuðu yrðu að njóta
trausts.
Svindlmól
Um þetta leyti komst
stjórnarandstaðan yfir lög-
regluskýrslur um mikið svindl-
mál þarsem Congressþingmað-
ur, Túlmóhan Ram frá
Pondicherry átti i hlut, og inni
það dróst Mishra járnbrautar-
málaráðherra sem var við-
skiptaráðherra, en hafði auk
þess á hendi það verk að safna
fé i flokkssjóð Congress.
Um haustið sjötiu og fjögur
var mikil herferð hafin gegn
smygli eiginlega i ógáti. Og
mikið reyndist smyglið: heil
þorp lögðust i auðn i Gujarat,
allir flúðu af ótta við málarekst-
ur, og nokkur fyrirtæki bæði i
Dubai og Hpnkong fóru á haus-
mn!
Það bætti gráu oná svart fyrir
Congress að nokkrir framá-
menn þeirra voru bendlaðir við
smyglgróðann.
Eftir mikið þref tókst að
sanna sök á Mishra. Það var
um áramót. En þá er honum
ráðinn bani. Og illar tungur
sögðu að enginn hefði grætt á
dauða hans nema Congress-
forustan. Hann hefði átt að vikja
sakir afbrota sinna, en þá segja
hinar illu túngur að hann hafi