Vísir - 03.10.1975, Qupperneq 24
VÍSIR
Föstudagur 3. október 1975
Fituinnihald
mjólkur
3,9%
Ótti við nýtt smjörfjall
hamlar því að tillit sé
tekið til hjartveikra
— Það er ef til vill ekkert þvi
til fyrirstöðu að fiturýrari mjólk
en 3.9% verði framleidd hér,
annað en það, að þá myndum
við sitja uppi með nýtt smjör-
fjall. Það Uggur i augum uppi,
að framleiðsla fituminni mjólk-
ur skapaði gifurlegar birgðir af
fitu, og úr henni verðum við að
búa til smjör. Það smjör getum
við ekki flutt út, þannig að við
fáum nógu gott verð fyrir —
sagði Pétur Sigurðsson, hjá
Framleiðsluráði landbúnaðar-
ins, i viðtali við Visi.
Islensk neyslumjólk er aðeins
framleidd með fituinnihaldinu
3.9%. Er það gagnstætt þvi sem
viða tiðkast erlendis, þar sem
neytendur geta valið milli
mjólkur með mismunandi fitu-
stigi. Algengt er að hún sé fram-
leidd með fitustigi 2-2.5%, auk
venjulegrar mjólkur, og þá fæst
jafnvel einnig nær fitulaus
mjólk, með fitustiginu 0.5-1.0%.
Framleiðsla á fiturýrri mjólk
þykir nauðsynleg, meðal annars
með tilliti til hjarta- og krans-
æðasjúklinga.
t viðtali við Visi sagði Nikulás
Sigfússon, yfirlæknir Hjarta-
verndar, að við athugun á
mataræði islendinga hefði kom-
ið i ljós, að við neytum ákaflega
mikillar mjólkur — allt að þvi
helmingi meira en nágranna-
þjóðir okkar. Sagði hánn, að
þegar tekið væri með i reikning-
inn að fitustig blóðsins i
islendingum er með þvi hæsta
sem vitað væri um og tiðni
kransæðasjúkdóma mjög há,
lægi i augum uppi að æskilegt
væri að hér fengist fiturýrari
mjólk en 3.9%.
Læknar og visindamenn hafa
oft bent á það i ræðu og riti
hérlendis, að greinileg fylgni sé
á milli hjarta- og kransæðasjúk-
dómaogneyslu dýrafitu. Hefur
meðal annars verið bent á nauð-
syn þess, að fitustig fæðunnar
lækki til að mynda með þvi að
hér fáist fiturýr mjólk.
— HV.
Kröfluvirkjun
kostar tœpa
sex milljarða
Áætlað er að heildar-
kostnaðúr við Kröflu-
virkjun verði rúmlega
5,9 milljarðar króna.
Það eru þrir aðilar sem
vinna saman að virkjun-
inni, Kröflunefnd, Orku-
stofnun og Rafmagns-
veitur rikisins.
Jón Sólnes, formaður Kröflu-
nefndar, sagði Visi að verkefni
hennar væri að sjá um stöðvar-
húsið og vélbúnaðinn og sam-
kvæmt nýjustu áætlunum yrði
kostnaður við það fjögur þúsund
og þrjú hundruð milljónir króna.
Karl Ragnarsson, hjá Orku-
stofnun, sagði að hún sæi um bor-
un áholunum og virkjun þeirra og
aðveitukerfi fyrir gufuna. Væri
kostnaður við það áætlaður eitt
þúsund milljónir.
Samúel Asgeirsson, hjá Raf-
magnsveitum rikisins, sagði að
linan yrði áttatiu og einn kiló-
metri að lengd. 1 upþhafi var
reiknað með að lagning hennar
kostaði fimm hundruð og fimmtiu
milljónir. Nú væri verið að gera
nýja útreikninga og mætti reikna
með fimmtiu til hundrað milljóna
hækkun. — ÓT.
LENTIMILLI HLERA
OG GÁLGARÚLLU -
LÉST SAMSTUNDIS
Tuttugu og fimm ára mað-
ur, Rúnar Björgvinsson, til
heimilis að Hraunbrún 2 i
Hafnarfirði, fórstaf slysförum
um borð i BM Ársæli Sigurðs-
syni II i gær.
Slysið varð með þeim hætti,
að Rúnar heitinn varð milli
forhlera og gálgarúllu og mun
hann hafa látist samstundis.
Þegar slysið varð var skipið
statt um 25 sjómilur 260 gráð-
ur réttvísandi frá Garðskaga.
Var þyrla frá Varnarliðinu
fengin til að fara þangað út og
kom hún með lik Rúnars i
land.
Arsæll Sigurðsson kom svo
til Hafnarfjarðar i nótt, en sjó-
próf vegna slyssins munu fara
þar fram.
Hvað kostar 500 króna seðill?
A morgun verður haldið
mynt-uppboð i Tjarnarbúð kl.
2. Er það á vegum Guðmundar
Axelssonar Klausturhólum.
Boðin verður upp mynt frá
alls 30 löndum auk ýmissa
minnispeninga.
Til gamans má geta þess að
m.a. verður boðinn upp isl. 500
krónu seðill frá 1948, en hann
var siðast seldur á uppboði á
62.400 kr. Má segja að „krón-
an” sé á góðu gengi þar'.ABj
EINAR í NORFOLK
SIMAMYND AP I MORGUN
Einar Ágústsson, utan-
rlkisráðherra, kom i
gær til Norfolk í
Bandarikjunum, þar
sem er aðal-flotastöð
Atlantshafsbandalags-
ins. Á flugvellinum
tóku á móti honum
James G. Junigus, að-
miráll i Konunglega
breska flotanum, og
Emery Swink, pólitisk-
ur ráðgjafi yfirmanns
flota Atlantshafs-
bandalagsins. — Utan-
rikisráðherra er nú á
ferðalagi i boði At-
lantshafsbandalagsins.
Óska eftir 4 lóðum
í þógu aldraðra
„ Bygging stofnana i
þágu aldraðra eru for-
gangsverkefni hjá
Reykjavikurborg, ”
sagði Albert Guðmunds-
son sem er formaður
framkvæmdanefndar er
Dauðaslys ó Mallorca
FÉLL
FRAM AF
SVÖLUM
Jarðarför Hauks Kristjáns-
sonar, sem féll fram af svölum
á Mallorca 22. september, fer
fram á Húsavík i dag.
Haukur dvaldist á Niagara
hótelinu á Arenal-ströndinni i
herbergi með félaga sinum.
Að morgni 22. september féll
hann fram af svölum fyrir
framan herbergið. Félagi
hans var sofandi þegar slysið
varð.
Haukur var á tvitugsaldri.
—ÓH
vinnur að þessu verk-
efni.
A þessu fjárhagsári tók
Reykjavikurborg upp þá stefnu
að veita 7 1/2% af útsvarsupphæð
til bygginga f þágu aldraðra. Þeg
ar hefur verið veitt fé til húsa
öryrkjabandalagsins og lán til
Játuðu
á sig 12
innbrot
Innbrotajátningarnar komu
I kippum við yfirheyrslur hjá
rannsóknarlögreglunni i
Hafnarfirði I gær.
Tveir ungir menn játuðu á
sig samtals tólf innbrot. Þeir
áttu saman þátt i innbrotum i
þrjá báta I Hafnarfjarðarhöfn
i júli og ágúst. Þá brutu þeir
hurðir og skemmdu og stálu í
bátunum.
Annar pilturinn á svo þátt i-
fjölmörgum innbrotum i
verslanir, fyrirtæki og iþrótta-
hús i Hafnarfirði. Auk þessara
tveggja áttu fjórir piltar aðrir
þátt í innbrotunum tólf. ÓH
byggingar álmu við Borgar-
sjúkrahúsið.
„Við stefnum að þvi að byrja
sem fyrst,” sagði Albert, ,,og hef-
ur nefndin ákveðið að sækja um 2
lóðir, við Dalbraut og Lönguhlið.
Jafnframt að óska eftir þvi við
borgarráð að það taki frá tvær
lóðir i Fossvoginum nálægt
Borgarsjúkrahúsinu og verði þar
i framtiðinni reist hjúkrunar-
heimili.
í nefndinni sitja 7 manns, frá
öllum flokkum i borgarstjórn. Og
rikir alger einhugur um að koma
þessu máli i höfn,” sagði Albert
Guðmundsson að lokum.
— EKG.
Súla svipuð
og í gœr
— Vatnsstreymið I Súlu er
svipað I morgun og það var i
gærkvöldi, sagði Þorsteinn Jó-
hannsson, bóndi á Svinafelli,
við Visi i morgun. — Ég kom
þarna i gærkvöldi og aftur
klukkan niu i morgun og það
var ekki sjáanleg breyting.
Rennslið er ekki það mikið að
brúnni eða varnargörðúm
stafi nokkur hætta af, ef það
eykst þá ekki til muna.
— ÓT