Vísir - 11.10.1975, Page 3
VtSIR. Laugardagur 11. október 1975.
3
Styttan af ólafi Thors f Hljöm-
skálagarðinum, sem var afhjúp-
uð fyrir nokkrum árum.
Stytta af
Olafi Thors
afhjúpuð í
Keflavík
A morgun, sunnudaginn 12.
október kl. 3 e.h. verður
afhjúpuð myndastytta af Ólafi
Thors sem reist hefur verið á.
opnu svæði milli Brekkubrautar
og Hringbrautar i Keflavik.
Listaverkið er eftir Aka Gránz.
Styttuna afhjúpar frú Ingibjörg
Thors, ekkja Ólafs Thors.
Myndastytta þessi er fyrsta
útilistaverkið f Keflavik og hafa
ýmis fyrirtæki og einstakingar i
kjördæminu staðið fyrir gerð
hennar.
Stutt við bakið á
pólitískum föngum:
Samviskuviko
á sunnudag
hefst
,,Við vinnum að málefnum
langtimafanga, fanga sem hafa
setið inni i 15-20 ár, og eru
„gleymdir”. Það er sameiginlegt
nteð öllum þessu fólki að það hef-
ur verið sett i fangelsi vegna
skoðana sinna, pólitfskra, trúar-
legra eða siðferðislegra, sem
hafa brotið i bága við skoðanir
viðkomandi stjornvalda.”
Þannig svaraði Ingi Karl
Jóhannesson, er Visir spurði
hann um starfsemi Amnesty
International.
Samviskuvikan hefst núna á
sunnudaginn, 12. lktóber. 1
tengslum við hana verður al-
mennur fundur á Hótel Esju kl.
20.30 á sunnudag, þar sem Martin
Ennals, framkvæmdastjóri A.I.
mun skýra frá þvi sem efst er á
baugi hjá alþjóðasamtökunum og
greina frá helstu verkefnum
þeirra Ináinni framtið. Þá verður
einnig fjallað um Islandsdeildina,
vetrarstarf hennar og fjár-
öflunarherferð.
Þá er og í ráði að f jölmiðlar taki
að sérkynningu á 16 föngum sem
sitja I fangelsi iýmsum löndum af
ofangreindum orsökum. Einnig
munu samtökin leita til al-
mennings um fjárhagsstuðning til
styrktar starfseminni.
„Lögfræðileg aðstoð, föngun-
um að kostnaðarlausu, er mikill
þáttur i starfinu. Við reynum að
styja við bakið á fjölskyldum
þeirra sem inni sitja. Við sendum
mótmælabréf til viðkomandi yfir-
valda og notum alla þá löglegu
pressu sem við getum til að fá
fangana lausa.
Rauði þráðurinn i þessari starf-
semi er mannréttindayfirlysing
Sameinuðu þjóðanna, i hana vitn-
um við sifellt,” sagði Ingi Karl.
Þess skal að lokum getið að
skrifstofa samtakanna er nú flutt
á Amtmannsstig 2 og verður hún
opin alla næstu viku milli kl. 5 og
7. Fólk sem hefur áhuga á þessum
málum er hvatt til að koma á
fundinn á Hótel Esju.
-eb-
Fékk 50 þúsund
krónur í
Tropicana-fernu
„Þetta er i fyrsta sinn á æv-
inni, sem ég hef verið svona
lieppin. Ég hef til dæmis aldrei
unnið i dappdrætti.” Þetta sagði
Hólmfriður Stefánsdóttir frá
Akureyri, sem fékk 50 þúsund
krónur fyrir að drekka úr ann-
arri milljónustu Tropi-
cana-fernunni.
Hólmfriður var i Lands-
spitalanum eftir uppskurð á
mjöðm, þegar peningarnir
komu. Hún er ellilifeyrisþegi, og
hefur þvi vafalitið nóg að gera
við aurana.
Hún sagði að þetta væri allt
frænda sinum að þakka, Guð-
steini Þengilssyni, lækni. „Hann
veit hvað mér þykir Tropi-
cana-appelsinusafi góður og
færði mér fernu hingað á spital-
ann, þegar ég var að vakna eftir
uppskurðinn. Þegar hann var að
hella úr fernunni fyrir mig kom
plastpoki með ræmunni i ljós of-
an I fernunni.” Þannig eignaðist
Hólmfriður 50 þúsund krónur og
vart gátu peningarnir i betri
hendur komist. — Guðsteinn
keypti fernuna i KRON-verslun
við Alfhólsveg.
Myndin er af þeim Davið |
Scheving Thorsteinssyni, Guð-
steini Þengilssyni og Hólmfriði
Stefánsdóttur.
„Hef aldrei verið
svona heppin áður"
Opnið fyrír skátunum
i dag, laugardag, er hinn árlegi
merkjasöludagur skátanna. i
fréttatilkynningu frá Bandalagi
islenskra skáta segir: ’
„Þetta er hin eina opinbera
fjáröflun skátanna og aðaltekju-
liður. Viljum við þvi beina þeim
tilmælum til landsmanna að opna
dyrnar fyrir skátunum og styrkja
þá með þvi að kaupa af þeim
merki. Agóðinn rennur beint til
styrktar starfscmi félaganna I
hverju byggðarlagi”.
Hœttuakstur á vél-
hjólum í Breiðholti
Akstur pilta á vélhjólum eftir
gangbrautum i Efra-Breiðholti
hefur undanfarnar vikur skapað
slæmt hættuástand. Nota piltarn-
ir gangbrautirnar sem hrað-
brautir og aka eftir þeim á mikl-
um hraða, oft i hópum.
Þrátt fyrir itrekuð afskipti og
viðvaranir lögreglu halda pilt-
arnir uppteknum hætti og valda
mikilli slysahættu fyrir börn og
aðra gangandi vegfarendur.
Sérstaklega er það löng og bein
gangbraut við Iðufell, sem pilt-
arnir sækja á. Þar hefur vélhjóla-
aksturinn þegar valdið einu al-
varlegu sjysi, auk minni óhappa.
Lögreglan vill gjarna koma þvi
'á framfæri við pilta þessa, að
gangbrautirnar séu ekki ætlaðar
öðrum en gangandi vegfarendum
og að akstur vélhjóla eftir heim
skapi slysahættu, sem þeir sjái
ekki fyrir endann á. Ógætilegur
og ábyrgðarlaus akstur vélhjóls
getur haft i för með sér upptöku
ökuleyfis, svo og það að hjólin
verði tekin af þeim.
Benda má á i þessu sambandi,
að hlaupi barn út á gangbrautina,
framan við vélhjól á ferð, á öku-
maður þess oft litinn eða engan
kost að afstýra slysi. Einkum ef
hjólið er á mikilli ferð.
1 sliku tilviki væri ökumaður
vélhjólsins með öllu ábyrgur, þvi
að honum eróheimilt að aka hjól-
inu á brautinni og er þvi i fullum
órétti.
Afbrot unglinga i umferðinni og
ábyrgðarleysi getur meðal
annars leitt til þess, að viðkom-
andi fái ekki að taka bilpróf þegar
hann hefur aldur til. Getur hann
þurft að biða einu ári lengur en
jafnaldrar hans, jafnvel lengur en
það.
Vilja nómslán
og engar refjar
A stúdentafundi, sem haldinn
var I gær, föstudag, var þvi
harðlega mótmæit, að Lánu-
sjóði islenskra námsmanna
skuli enn ekki hafa verið tryggt
nægilegt fjármagn til að geta
staðið i skilum við námsmenn
með haustlán.
Fundurinn krefst þess, að
stjórnvöld reki þegar i stað af
sér slyðruorðið og útvegi sjóðn-
um það sem á vantar svo að
unnt sé að úthluta lánum með
sama hætti og tíðkast hefur.
Þar sem Alþingi er nú að hefjT
ast, telur fundurinn rétt, að
undirstrika þær kröfur, sem
gerðar eru til Alþingis við af-
greiðslu fjárlaga. Fundurinn
vill, að Alþingi tryggi að lán
nægi hverjum námsmanni til að
standa straum af árlegum
námskostnaði.
Fundurinn bendir á vanda,
sem Félagsstofnun stúdenta
eigi nú i vegna ónógs stuðnings
af opinberri hálfu.
Þvi er mótmælt harðlega, að
rikisvaldið fari með framlög til
námslána, sem einhverja
ópersónulega rekstrarstærð i
rikisbókhaldinu.
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Tónleikar í Háskólabíói
fimmtudaginn 16. október kl. 20.30.
Stjórnandi: Alun Francis
Einleikari: Agnes Löve.
Flutt verður JO 1975, nýtt hljómsveitar-
verk eftir Leif Þórarinsson, Pianókonsert
i A-dúr eftir Mozart og Sinfónia nr. 3 eftir
Schumann.
Aðgöngumiðar i bókabúð Lárusar
Blöndal, Skólavörðustig 2 og bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar, Austurstræti 18.
Auglýsing um starf ó
Bœjarskrifstofum
Sauðárkrókskaupstaðar
Starf skrifstofustjóra er laust til umsókn-
ar. Skrifleg umsókn óskast send bæjar-
stjóranum á Sauðárkróki, bæjarskrifstof-
unum við Faxatorg, fyrir 22. október.
Bæjarstjórinn á Sauðárkróki.