Vísir - 11.10.1975, Side 16
16
VÍSIR. Laugardagur 11. október 1975.
D KVÖLD | r* □AG | D KVÖLQ | O □AG | L! KVOLD |
Sjónvorp
sunnudai
Sjónvorp kl. 18.00 sunnudog:
Bessi syngur Aro-
vísur — í
okkor .
Aravísur kannast á-
reiðanlega flestir við.
Við fáum að heyra
þessar skemmtilegu
visur i sjónvarpinu á
morgun og það er eng-
inn annar en Bessi
Bjarnason sem ætlar
að syngja þær.
Þetta er einn liðurinn
i Stundinni okkar, sem
Stundinni
hefst klukkan sex á
morgun. Auk þess
verður svo sýnd önnur
teiknimyndin um kóng-
inn i litla bænum i land-
inu, sem kennir þegn-
um sinum umferðar-
reglurnar.
Nokkrar stelpur
syngja lög eftir Sigurð
Grimsson og fleira
skemmtilegt verður á
dagskrá. —EA
Hér er Þórarinn Guðnason kvikmyndatökumaður á Raufarhöfn.
W
ATTU MINNINGAR
m • •
FRA RAUFARHOFN?
— sjónvarpsmenn heimsóttu staðinn
og sýna árangurinn í kvðld
Sjálfsagt eiga margir ágætar
minningar frá Raufarhöfn.
Þeim gcfs t kostur á að rifja þær
upp þcgar dagskrá sjónvarpsins
hefst annað kvöld.
Meðal efnis er nefnilega þátt-
ur um Raufarhöfn og Sléttu.
Ómar Ragnarsson brá sér á-
samt fleiri sjónvarpsmönnum á
staðinn ihaust. í leiðinni stöldr-
uðu þeir við á bæjunum Leir-
höfn, Höskuldarnesi og Orma-
lóni.
1 dagskrárkynningu segir
m.a.: „Margir óttast, að nyrsta
byggðarlag Islands leggist i
eyði, eftir að sildarævintýrið er
á enda þar.”
Eitthvað náhar um það sjáum
viðíkvöld, kl. 20.35. Kvikmynd-
unannaðist Þórarinn Guðnason.
—EA
Bessi virðist skemmta sér hið besta á æfingu i Þjóðleikhúsinu
SJÓKVARP •
Laugardagur
ll.október
17.00 íþróttir Enska knatt-
spyrnan o.fl. Umsjónar-
maður Ómar Ragnarsson.
Hlé
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.30 Læknir i vanda Breskur
gamanmyndaflokkur.
Glópurinn Þýðandi Stefán
Jökulsson.
20.55 Eins konar jass IV Pálmi
Gunnarsson, Erlendur
S.vavarsson, Magnús
Eiriksson, Halldór Pálsson
og Úlfar Sigmarsson leika
nokkur kunn”jasslög. Þátt-
urinn var tekinn upp i
febrúarmánuði siðastliðn-
um. Stjórnandi upptöku
Egill Eðvarðsson.
21.30 Refurinn (Honey Pot)
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1967. Leikstjóri Joseph
Mankiewicz. Aðalhlutverk
Rex Harrison og Susan
Hayward. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir. Eng-
lendingur, sem búsettur er i
Feneyjum, ákveður að nota
hugmynd úr leikritinu Vol-
pone til að afla sér fjár.
Hann boðar til sin þrjár
fyrrverandi vinkonur sinar,
læst vera dauðvona og telur
hverri þeirra trú um, að hún
ein muni erfa hann. Þær
koma færandi hendi. Ein
kvennanna er reyndar
eiginkona hans og kemur
ásamt þjónustustúlku sinni.
Nótt eina er >iginkonan
myrt, og fer þá þjónustu-
stúlkuna að gruna ýmislegt.
23.40 Dagskrárlok
Sunnudagur
12. október
18.00 Stundin okkar 1 þessum
þætti verður sýnd önnur
teiknimyndin um kónginn i
litla bænum i.litla landinu,
sem kennir þegnum sinum
umferðarreglurnar. Bessi
Bjarnason syngur Aravisur
eftir Stefán Jónsson. Tveir
þjófar brjótast inn i hesthús
Mússu, en hún kann ráö til
að reka þá burtu. Nokkrar
stelpur syngja lög eftir
Sigurð Grimsson, og loks
verður sýndur annar
flokkur myndaflokksins um
litla bangsann Misha.
Umsjónarmenn Sigriður
Margrét Guðmundsdóttir og
Hermann Ragnar
Stefánsson. Stjórn upptöku
Kristin Pálsdóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og aug-
lýsingar
20.35 Heimsókn á Raufar-
höfn og Siéttu Margir óttast,
að nyrsta byggðarlag
íslands leggist I eyði, eftir
að slldarævintýriö er á enda
þar. Sjónvarpsmenn heim-
sóttu Raufarhöfn i haust og
stöldruðu i leiðinni við 'á
bæjunum Leirhöfn,
Höskuldarnesi og Ormaióni.
Kvikmyndun Þórarinn
Guðnason. Umsjónarmaður
Ömar Ragnarsson.
21.25 Allra veðra von Bresk
framhaldsmynd 6. þáttur.
Hvar er Shiriey? Efni 5.
þáttar: Tom Simpkins ber
fram bónorð við Normu
Moffat, en henni finnst of
skammt liðið frá láti manns
sins til að geta tekið
ákvörðun. Philip Hart býöur
sig fram i bæjarstjórnar-
kosningum á móti Simp-
kins. Hann hefyr ekki séð
Andreu Warner I marga
mánuði. Andrea verður
fyrir bil og handleggs-
brotnar, og Philip er fyrsti
maður á vettvang. Shirley
er æ sjaldnar heima, og
kvöld eitt fer Nick að leita
hennar. Hann finnur hana á
krá, þar sem hún er með
Don Bedford, vandræða-
unglingnum, sem rekinn
var frá fyrirtæki Simpkins.
Shirley neitar að fara heim
með Nick, og hann segir
henni þá, að Tom Simpkins
sé faðir hennar. Um nóttina
hringir Norma til Toms og
segir honum, að Shirley sé
hlaupin að heiman. Þýðandi
'Óskar Ingimarsson.
22.20 Litið inn hjá Liv Ull-
mann Norsk blaðakona
ræðir við leikkónuna Liv
Ullmann að lokinni frum-
sýningu á Broadway á
Brúðuheimili Ibsens. Þýð-
andi Ragna Ragnars.
(Nordvision-Norska sjón-
varpið)
22.45 Aö kvöldi dags Séra
Kolbeinn Þoreifsson flytur
hugvekju.
22.55 Dagskráriok