Vísir - 13.10.1975, Blaðsíða 19
Vlsir, Mánudagur 13. október 1975.
19
□AG í PAG | I KVÖLP | í DAG | í KVÖLD | I DAG (
Sjónvarp, kl. 21,20:
NU EIGUM VIÐ AÐ
FÁ AÐ HLÆJA
— nýr gamanmyndaflokkur
hefur „óreglulega"
göngu sína
,,Nei, ég er hérna”,
heitir einfaldlega
myndaflokkur sem hef-
ur göngu sina i sjón-
varpinu i kvöld. Þessi
myndaflokkur kemur
ekki til með að verða
reglulega á dagskrá,
heldur skotið inn svona
öðru hverju.
. Hver þáttur er sjálfstæöur en
alls eru þeir 13. Með aðalhlut-
verkið fer Ronnie Corbett, en
hann höfum við séð i sjónvarp-
inu áður, t.d. i þáttum David
Frost fyrir nokkrum árum.
Ronnie er litill og skemmti-
legur karl, og við eigum
áreiðanlega oft eftir að hlæja að
honum.
Þessi myndaflokkur er að
sjálfsögðu breskur, og það má
líkja honum við myndaflokkinn
um „Elsku pabba’og svo þætt-
ina um læknana, að minnsta
kosti hvað gamanið snertir.
Þátturinn sem sýndur verður
i kvöld, heitir „Mamma.” Hann
gengur út á það að Ronnie og
konan hans þurfa að eyða helgi i
heimsókn hjá móður hans, og
það finnst þeim ekkert allt of
skemmtilegt.
Við höfum fregnað að þessi
þáttur sé bráðskemmtilegur.
Hefst hann klukkan 21.20 i
kvöld. Þýðandi er Dóra Haf-
steinsdóttir. —EA
Hann er sagður skemmtilegur, myndaflokkurinn sem hefst I siónvarninu I kvöld. Með aðalhlutverkið
fer Ronnie Corbett. Hér er hann með frúnni.
Útvarp,
kl. 21,10:
Fóstbrœður
Gunnars Gunnarssonar í útvarpi — Fyrsti lestur í kvöld
Hafinn verður lestur
nýrrar útvarpssögu í
kvöld. Lesinverður sagan
,,Fóstbræðury/ eftir
Gunnar Gunnarsson.
Þorsteinn ö. Stephensen
leikari byrjar lesturinr
klukkan 21.10.
Aður flytur Sveinn Skorri
Höskuldsson formálsorð.
Gunnar Gunnarsson er öllum
svo vel kunnur að það þarf tæp-
lega að kynna hann. Við ætlum
nú samt að segja frá honum
svolitið.
Hann fæddist 18. mai 1889 á
Valþjófsstað i Fljótsdal. Eftir
fermingu var hann við nám einn
vetur frá séra Sigurði P. Sivert-
sen á Hofi.
Hann stundaði nám við Lýð-
háskólann i Askov 1907-1909. Á
unglingsárum sinum stundaði
hann venjuleg bústörf. Siðan tók
við ýmislegt, svo sem fyrirlestr-
arhald og upplestur, auk rit-
starfanna.
Haustið 1938 keypti hann
Skriðuklaustur i Fljótsdal og bjó
þar frá 1939 til hausts 1948.
Þangað til hafði hann verið bú-
settur i Danmörku. Eftir 1948
býr hann hér i Reykjavik.
Gunnar stofnaði Bandalag isl.
listamanna ásamt Jóni Leifs
tónskáldióg var fyrsti formaður
þess. Hann hefur svo viða komið
við að of langt mál væri upp að
telja. En hann er prófessor að
nafnbót, heiðursdoktor, heið-
ursforseti og fleira.
Gunnar hefur skrifað mjög
mikið. Eitt af þekktari verkum
hans er Fjallkirkjan, þar sem
hann dregur upp myndir af
ógleymanlegum persónum.
Verk hans hafa verið þýdd á
fjölmörg tungumál og hafa
komið út i mörgum útgáfum.
Fóstbræður kom út 1918.
—EA
ÚTVARP:
... og
sögur
fleiri
ódagskró
Fleiri sögur verða lesnar i út-
varpinu en Fóstbræður Gunnars
Gunnarssonar.
Klukkan hálf sex i dag verður
til dæmis lesin sagan: „Dreng-
ur, sem lét ekki bugast”. Saga
þessi er eftir James Kinross.
Baldur Pálmason þýddi, en
Hjalti Rögnvaldsson leikari les.
Fyrri hluti sögunnar verður lés-
inn i dag.
Klukkan hálf-niu verður svo
enn ein saga á dagskrá. Þá les
Guðmundur Dani'elsson úr nýrri
bóksinni: „Oratori'a’74, saga úr
sjúkrahúsi’’
Lesturinn stendur yfir i tutt-
ugu minútur. —EA
Boggi
Eigið þið til frumhlaup, A-la-bastin.
| IÍTVARP •
MÁNUDAGUR
13. október
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Á fullri
ferð” Þorsteinn Matthfas-
son byrjar að lesa úr endur-
minningum Oscars Clausen.
15.00 Miðdegistónleikar. Josef
Chuchro og Zuzana
Ruzicková leika Sónötu i G-
dúr fyrir selló og sembal
eftir- Bach. Wilhelm Kempff
leikur á pianó „Waldszen-
en” — „Skógarmyndir” —
op. 82 eftir Schumann.
Barokksveit Lundúna leikur
„Litla sinfóniu” eftir
Gounod, Karl Hass stjóm-
ar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.25 Popphorn.
17.10 Tónleikar.
17.30 Sagan: „Drengur, sem
lét ekki bugast” eftir James
Kinross Baldur Pálmason
þýddi. Hjalti Rögnvaldsson
les fyrri hluta sögunnar.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 Um daginn og veginn Jón
Haraldsson arkitekt talar.
20.00 Mánudagslögin.
20.30 „Oratoria ’74, saga úr
sjúkrahúsi” Guðmundur
Danielsson les úr nýrri bók
sinni.
20.50 „Danzas fantásticas”
eftir Joaquin TurinaHljóm-
sveit Tónlistarskólans i
Paris leikur, Rafael Frilh-
beck de Burgos stjórnar.
21.10 tHvarpssagan: „Fóst-
bræður” eftir Gunnar
Gunnarsson Þorsteinn ö.
Stephensen leikari byrjar
lesturinn. Sveinn Skorri
Höskuldsson flytur formáls-
orð.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Búnaðar-
þáttur: úr sveitum Vestur-
islendinga i Kanada Björri
S. Stefánsson deildarstjóri
segir frá.
22.35 Hljómplötusafnið i
umsjá Gunnars Guðmunds-
sonar.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
SJÓNVARP •
Mánudagur T3.október
20.00 Fréttir og veður
20.30 Dagskrá og auglýsingar
20.40 ÍþróttirMyndir og fréttir
frá iþróttaviðburðum
helgarinnar. Umsjónar-
maður Ömar Ragnarsson.
21.20 Nei, ég er hérna Nýr,
breskur gamanmynda-'
flokkur. Aðalhlutverk
Ronnie Corbett. 1. þáttur.
Mamma. Þýðandi Dóra
Hafsteinsdóttir.
21.45 Kúbudeilan — fyrri hluti
Bandarisk, leikin heimilda-
mynd um Kúbudeiluna 1962,
er heimurinn stóð á barmi
styrjaldar. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
23.00 Dagskrárlok.
— Ef við gerum þetta svona hefur hann lofað aö bita ekki.