Tíminn - 26.10.1966, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 26. október 1966
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Ársþing Glímusambands íslands:
Kjartan endurkjör
formaður GLÍ
Ársþmg Gb'musambands ís-
Iands var haldið í Reykjavík 23.
rfstóber sl- og sett af formanni
sambandsins, Kjartani Bergmann
Gtíðjónssyni.
f OBphafi foxndarins minntist
formaður þriggja kunnra glímu-
manna, þeirra Helga I-Ijörvars,
Eggerts Kristjánssonar og Erlings
Palssonar.
Þingforsetar voru kjörnir Guð-
jón Einarsson, varaforseti íþrótta
sambands íslands, og SigurSur
BRIDGE
Hjá Tafl- og Bridgcklúbbnum
hófst vetrarstarfsemin .29. sept.
ember í Læknabúsinu (Egilsgötu
3) á sveitakeppni 15 sveita og spil
aSar með hraðkeppnisfyrirkomu
lagi. Eru nú fjórar umferðir bún-
ar og er staðan þessi fyrir síð-
ystu umferð hjá 8 efstu sveitun-
um:
1- Bemharðar Guðmundss. 1102
2. Bjöms Benediktssonar 10Y7
3. Jóns Magnússonar 1071
4. Þorvaldar ‘ Valdimarss. 1050
5. Jóns Ásbj'örnssonar 1046
6- Gunnþórunnar Erlingsd. 1035
7. Júlíönu ísebarn 1031
8. Lárasar Hermannssonar 1024
Næsta keppni klúbbsins hefst
á sama stað fimmtudaginn 3.
nóvember kl. 8 í tvímennings-
keppni. Spilaðar verða 5 umferðir.
Jafnframt fer þar fram kennsla
fyrir byrjendur. Ætlunin er að síð
ar í vetur verði framhald á þessu
námskeiði og verður þá kennt
þeim, sem lengra eru komnir.
Er þarna um sérstakt tækifæri
að ræða fyrir þá, sem áhuga hafa
á því að læra bridge.
Upplýsingar og \ þátttökutil-
kynningar í Símum 10789 og
33339. ,
Öllum, sem áhuga hajfa, er heim
il þátttaka.
Ingason, en ritarar Sigurður Sig-
urjónsson og Valdimar Óskarsson.
Formaður gaf skýrslu um starf-
semi sambandsins á sl- starfsári,
en hún var mjög fjölþætt og mörg
mál í athugun til eflingar glímu-
íþróttinni í landinu.
Ýms mál vom tekin til um-
ræðu ög afgreidd á glímuþinginu.
Meðal annars var samþykkt merki
fyrir Glímusambandið.
Rætt var um reglugerð fyrir ís-
landsglímuna og Grettisbeltið,
sem stjórn Glímusambandsins
bafði lagt fyrir glimuþingið. Var
reglugerðinni að lokipni umræðu
vísað til stjórnar Glímusambands-
ins til nánari athugunar og stað-
festingar. Samþykkt var tiilaga
um að skora á héraðsamböndin,
að þau beiti sér fyrir því að koma
á sveitaglímu í sínu héraði eða
milli héráða.
Samþykkt var tjllaga um að
stjóm Glímusambandsins vinni að
aukinni glímukennslu j skólum,
og þá sérstaklega með tilliti til
•héraðsskóla.
Kosin var milliþinganefnd til að
endurskoða glímulögin. Nefndin
er skipuð þessum mönnum: Þor-
steinn Einarsson, formaður, Haf-
steinn Þorvaldsson, Ólafur H.
Óskarsson, Sigtryggur Sigurðs-
son, Sigurður Sigurjónsson.
í glímudómstól vom þessir
menn kjörnir: Sigurður Ingason,
Ólafur H. Óskarsson, Sigurðnr
Sigurjónsson.
Stjórn Glímusambandsins var
öll endurkjörin, en hana skipa
þessir menn: Kjartan Bergmann
Guðjónsson, Reykjavík, formaður.
Meðstjómendur: Sigurður Er-
lendsson, Vatnsleysu, Biskupstung
um, Sigtryggur Sigurðsson,
Reykjavík, Ólafur H. Óskarsson,
Reykjavík, Sigurður Geirdal, Kópa
vogi. Til vara: Sigurður_ Ingason,
Reykjavík, Valdimar Óskarsson,
Reykjavik, Elías Árnason, Reykja
vík.
Ollerup-skólinn er frægur fyrir sýningar sínar. Hér sést kvennaflokkur skólans sýna. ,
i
Ollerup-flokkurinn sýnir í
Laugardalshöllinni í kvöld
- sýningin hefst kl. 20.15. Sýning fyrir skólaæsku á morgun
Alf — Reykjavík. ■— Fimleika-
flokkurinn frá Ollcrup-lýðskól-
anum í Danmörku, kom til lands
ins í gær, en í kvöld mun flokkur-
inn halda sýningu í Laugardals
hölliiini og hefst hún klukkan
20.15- í flokknum eru 14 sýninga
menn og komu þeir úr langri sýn
ingaför um Bandaríkin, þar sem
þeir fcngu mjög góðar móttökur.
Ollerup-flokkurinn heldur að-
eins tvær sýningar hé.r. Sú fyrri
er í kvöld, eins og fyrr segir, en
annað kvöld mun skólaæskunni gef
ast kostur á að sjá sýningu flokks
ins. Hefst sýningin annað kvöld
á sama tíma.
Margir aðilar standa að ko^mu
danska fimleikaflokkksins, íþrótta
kennarar, íþróttakennaraskólinn í
BR, ÍSÍ og gamlir nemendur skól-
ans íslenzkir. Er þaö vona þessara
aðila, að sýningar flokksins muni
vekja meiri áhuga á fimleikum
hér á landi en nú er. Er áreiðan-
legt, að gaman verður að sjá
sýningar flokksins og er fólk bvatt
til að fara í Laugard alshöHina í
kvöld-
RANGERS leikur til úr-
slita á móti CELTIC
Rangers sigraði Aberdeen í
aukaleik á mánudaginn í undan-
Úrslitum bikarkeppni skozku deild
arliðanna með 2-0 og leikur því
gegn Celtic í úrslitaleiknum á
laugardag. Sömu lið léku einnig til
úrslita í þessari keppni í fyrra-
haust og sigraði Geltic. Það má
segja, að þessi tvö stóra Glasgow
lið einoki alveg skozka knatt-
spyrnu. Þau léku einnig til úrslita
Framhald á bls. 15.
Hvers eiga inniíþróttir að gjalda?
Á að reka íþróttahöllina í
Laugardal sem ,,business“ fyr-
irtæki, án hagsmuna íþróttá-
hreyfingarinnar fyrir augum?
Þetta er spurning, sem vafa-
laust margir íþróttaunnendur
velta fyrir sér þessa dagana,
og ekki að ástæðulausu. Þá
loksins þegar íþróttahölUn er
komin fyrir alvöru í gagnið,
hefur komið á daginn, að
byggingarnefnd hússins krefst
5.000 króna lágmarksleigu fyr
ir húsið, án tillits til þess, að
því er bezt verður séð, hvort
hin ýmsu ráð, svo sem HKRR
eða KKRR, geti staðið undir
slíkum tilkostnaði. Það er sem
sagt orðið mönnum ljóst, að
þessi margumtöluðu og marg-
lofuðu þáttaskil í íslenzkri
íþróttasögu með tilkomu
íþróttahallarinnar, voru aðeins
hismið eitt. íþróttamálefni
Reykjavíkur eru ennþá í sama
ófremdarásástandinu. Megn
ið af öllum kappleikjum
kvenna og ynferi flokkanna
handknattleik, og næstum því
allir körfuknattleiksleikir, fá
ekki húsaskjól í íþróttahöll-
inni sökum fjárskorts. Háloga
Iand verður framtíðarkeppnis-
höll reykvískrar íþróttaæsku,
hlýju búningsklefarnir og
vatnshelda loftið í Hálogalands
höllinni, eiga sem sé eftir að
ylja komandi kynslóð um hjarta
rætur, og menn munu hugsa
með hlýju til hinnar geist-
ligu íþróttaforystu, sem svo
rausnarlega hefur haldið-á má!
um. Skilningur íslenzkra ráða
manna á gildi íþrótta hefur
ætíð verið fremur rýr og þá
oft á tíðum meiri í orði “n
á borði. Játa ber það hins veg-
ar fúslega, að vissulega hefur
margt verjð vel gert í þessum
efnum, en hins vegar alls eksi
nógu vel, og betur má ef duga
skal. Til samanburðar má geta
þess hvaða skilning frændur
okkar á Norðurlöndum hafa a
gildi íþrótta, bæði uppeldis- og
bjóðhagslega séð. T fyrrahaus*
skeðu þeir atburðir í höfuð-
borgum Norðurlanda, K.höfn,
Oslo, Stokkhólmi svo og í
Gautaborg, að þar brutust út
unglingaóeirðir þ.e.a.s. að ungl
ingar söfnuðust saman í mið-
hverfum borganna og létu öll-
um illum látum. Þessir atburð-
ir endurtóku sig kvöld eftir
kvöld og fékk lögreglan ekki
við neitt ráðið. Var nú mikið
skrafað og lagt á ráðin um
það, hversu koma mætti í veg
fyrir að slíkir hlutir endur
tækju sig. Niðurstaðan varð sú
a-m.k. hjá Svíum. að sænska
ríkisstjórnin ákvað að hækka
framlög sín til íþróttamála til
muna og höfðu Svíar þó síður
en svo skorið þessa hluti við
nögl sér áður fyrr. Þannig
sýndu Svíar hug sinn í þessum
málum og væri vel éf íslenzk
yfirvöld væru einnig gædd
slíkum skilningi. Hér
er á ferðinni mál, sem krefst
skjótrar úrlausnar. Á því er
varla nema ein lausn, en hún
er sú, að byggingamefnd húss
ins falli frá þessari fáránlegu
kröfu sinni og láti sér nægja
vissar prósentur af aðgöngu-
miðasölu hvers leikkvölds, burt
séð frá því, hversu margir
áhorfendur komi til þess að
horfa á ieikina. Gróðasjónar-
miðið verður að hverfa, því sá
hugsunarháttur, að íþróttahöll-
ina eigi að reka sem ágóða
fyrirtæki, er svo fáránlegur, að
ekki tekur neinu tali- íþrótta-
höllin á fyrst og fremst að
vera þjónustufyrirtæki og ef
halli verður á rekstri hennar,
þá ber borgarstjórn Reykjavík
ur, eða öðmm sambærilegum
aðilum. að greiða þann mis-
mun. Hins vegar' ætti það
varla að þurfa að koma til
því hversu stórar upphæðir
ætli byggingarnefnd hússins
taki a£ íþróttafélögunum, þeg-
ar stórleikir fara fram? Sú
upphæð skiptir vafalaust tug-
um þúsunda í hvert sinn. Þeir
aurar ættu vafalítið að geta
haldið höflinni gangandi, enda
þótt sú innheimtuaðferð virð-
ist í fljótu bragði dálítið vafa-
söm að hirða svo stórar upp-
hæðir af fjárhagslega „fallít“
fyrirtækjum eins og sum
íþróttafélögin era.
En iátum það liggja milli
hluta. Virðist undirrituðum
nærtækast að viðkomandi að-
ilar, þ.e.a.s. Reykjavíkurborg.
Sýningarsamtök atvinnuveg-
anna og ÍBR ættu að setjast
nú þegar á rökstóla og kippa
þessum málum í lag til gagns
og ánægju fyrir land og lýð.
Þ.Ó.