Vísir - 22.10.1975, Síða 2
2
VÍSIR. Miðvikudagur 22. október
vlsiiism:
Hvað ætlar þú að gera
þegar þér fer að vaxa
skegg?
Samúcl Jónsson, 8 ára.Veit það
ekki. Ætli ég kaupi mér ekki bara
rakvél og raki mig. Mér finnst
það bara ljótt að vera með skegg.
Bjartmar Birgisson, 11 ára. Ég
ætla að raka þaö. Hvort ég hlakka
til: Nei, alls ekki og ég ætla að fá
mér rakvél sem fyrst, þvi mér
finnst ljótt að vera með skegg.
Valur Geirsson, 11 ára.Það er nú
ekki gott að segja. Jú, ég ætla að
raka það. Skegg er ljótt. Hvenær
ég fer að fá skegg? Ætli ég verði
ekki 16 eða 17 ára og ég hlakka
ekkert til.
Friðrik Andersen, 12 ára.Ja, nú
veit ég ekki. Ég hugsa að ég raki
það af mér fyrst, en kannski
safna ég einhvern tima seinna.
Pabbi var einu sinni með skegg
og mér fannst það ágætt.
Karl Karlsson, 13 ára.Raka það
af mér. Ég held það sé betra aö
vera skegglaus. Það er bara tómt
vesen að vera með skegg. Hlýrra
I kulda? Nei, það held ég ekki.
Friðrik Arni Pétursson, 17 ára.
Mér er nú aðeins farið að vaxa
skegg og ég raka mig að minnsta
kosti núna. Nei, ég hef engan sér-
stakan áhuga á þvi að láta mér
vaxa skegg.
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Konur þið eruð
eins og loft!
[HORNKLOFl]
mmmmmmmmmmmmmmmMmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmmmmmmBmmmammmammmmmmmmmmmmmmmmmmmam
Hvað verður
nœst kœru
rauðsokkur?
Arelius Nielsson skrifar:
,,Mikið hefur verið rætt og rit-
að og ekki sist nú um kúgun og
misrétti, sem konur verði við að
búa af völdum karla.
Vissulega er slikt vansi og
skömm, sem ekki ætti að liðast i
siðuðu samfélagi sem kallað er.
Karlmenn hafa engan rétt til að
vera né verða rétthærri en kon-
ur, nema siður sé. Þar eiga við
orð spekingsins: ,,Allt skal
frjálst — allt skal jafnt.”
Og séu konur á tslandi kúgað-
ar af karlmönnum — en þvi hef
ég litið kynnst, og á ýmsum
sviðum eru þeir ekki réttmeiri
en þær, jafnvel réttlausir gagn-
vart þeim — en séu þær kúgað-
ar, þá ættu þær ekki að leggja á
sig enn meiri kúgun, með þvi að
likja eftir ósiðum og löstum,
sem karlmenn hafa lengi talist
einir sitja að.
Þar á ég við þá válegu upp-
götvanir visindamanna i
tóbaksbrúkun kvenna, sem sagt
var frá i fjölmiðlum nýlega.
Þá höggur sá er hlifa skyldi,
ef þær nota rétt sinn og frelsi á
svo frumstæðan hátt.
Leika sér með logann og
kveikja þannig á sprengjuþræði
ógæfunnar bæði sér og börnum
sinum til handa. Tóbaksbrúkun
orsakar hryllilega sjúkdóma i
hjarta,lungum, æðum og heila.
Tóbaksbrúkun er hryllileg sóun
peninga. Tóbaksbrúkun veldur
oft tugmilljónatjóni, kveikir i
húsgögnum, húsum, skipum og
heilum skógum.
Tóbaksbrúkun er hryllilegur
sóðaskapur. Hugsið ykkur fall-
ega konu eða fallegan mann at-
aða i tóbakslegi, jóðlandi i
svörtum óþverra um munn og
nef. Þar er neftóbak við völd.
Samt er askan úr sigarettunum
ennþá útbreiddari, leggur undir
sig heilar stofur og húsgögn,
eitrar andrúmsloftið með reyk
og svælu fyrir börnum og
gamalmennum.
Getur það verið satt að við
þessa kúgun séu konur ekki
hræddar — sækist eftir öllum
óþverra á þessu sviði, meðan
þær kvarta undan karlmönnum,
sem þær geta þó sist án verið, af
eðlilegurri orsökum, samanber
sjónvarpsefni siðustu kvölda?
Og nú eru það niu ára stúlku-
börn sem eru sest við sigarettu-
reykingar. Hvað verður næst,
kæru rauðsokkur? Eru þetta
eftirsótt réttindi? Verður ,,rett-
an” kannski við hlið pelans við
vöggustokk og stungið upp i
barn?”
Fjölskyldumaður skrif-
ar:
Dagurinn ykkar er til-
gangslaus.
Hér með gef ég ykkur
kvenfólkinu stærstu við-
urkenningu sem hægt er
að gefa: Án lofts deyjum
við, án kvenfólks deyr
allt mannkynið.
Þess vegna þurfið þið
ekki að vekja á ykkur
heimsathygli, því við vit-
um allir að við þörf numst
ykkar.
35 blindir menn
fá felld niður stofngjöld eöa af-
notagjöld af sima á næsta ári
skv. fjárlagafrumvarpinu.
Þetta er óheyrileg rausn, ekki
sist þegar þess er gætt að aðeins
60 alþingismenn fá ókeypis sima
allt árið, þótt þingið standi ekki
nema sex mánuði. Þessi undar-
lega tala, 35 blindir menn, hefur
staðið óbreytt i fjárlagafrum-
varpinu ár eftir ár. Sumir hefðu
ef tii vill taliö eðlilegra að veita
öllum blindum mönnum þessa
samhjálp, likt og væru þeir
alþingismenn. En engin tillaga
hefur þó komið i þá átt úr röðum
þingmanna.
Afnotagjöld síma
skipta alþingismenn að sjálf-
sögðu litlu, þar sem þau leggj-
ast við alþingisjötuna. Hvað er
eitt afnotagjald til eöa frá segja
þeir og ákveða að þeir skuli ekki
greiða þau. Margt smátt gerir
hins vegar eitt stórt, og það
ekki flutt inn bil vegna tolla,
— hins vegar fær ráðherra á
fyrsta degi meiri friðindi en
100% öryrki, þurfi hann að
kaupa bil. Hefði þó mátt ætla
það, að fyrsta skylda ráðherra
væri að þola þær álögur er hann
leggur á aðra menn.
En dæmi blindu mannanna
skýrir þetta allt saman. t aug-
um opinberra aðila, þeirra sem
fara með fjármál þjóðarinnar,
skiptir það ekki máli, hversu
sárt einstaklingurinn sé leikinn,
heldur hver stór hópurinn er.
Það er i lagi að láta ráðherra fá
ókeypis bil, — þeir verða aldrei
margir. öryrkjar eru hins veg-
ar óviss fjöldi. Það er i lagi að
láta 60 alþingismenn fá ókeypis
sima, þeir verða ekki mikið
l'leiri. Hitt er verra með blinda
menn.
Pétur.
Hús ka:rlcikans.
íseinni tíð
virðist það vera árátta alþingis-
manna aö leggjast á gamalt fólk
og aumingja. Margfrægar
skattahækkanir Halldórs E. eru
mönnum ekki úr minni, — fyrir
stuttu gat Oryrkjabandalagið
verður að halda i við aðra. Tak-
marka fjölda ókeypis sima til
blindra.
Sjálfsagt er það óttinn við
spillingu, sem ræður þvi, að tal-
an er takmörkuð við 35. Sjálf-
sagt óttast fjárveitingarvaldið,
að menn geri sér upp blindu til
þess að fá ókeypis sima, — eða
láti kjósa sig á þing.
é