Vísir - 22.10.1975, Blaðsíða 4
4
VtSIR. MiOvikudagur 22. október
Nauðungaruppboð
sem auglvst var I 35. 37. og 39. tölublaOi Lögbirtingablaös
1975 á vélbátnum Sólbjörgu EA-142, 8 rúmlestir aö stærö,
þinglesin eign Einars M. Jóhannessonar, fer fram viö bát-
inn sjálfan, þar sem hann stendur upp á lóö Slippstöövar-
innar hf., föstudaginn 24. okt. n.k. kl. 15.00.
Uppboöshaldarinn á Akureyri.
Auka aðalfundur
handknattleiksdeildar Stjörnunnar, verð-
ur haldinn fimmtudaginn 23. okt. kl. 20 i
Gagnfræðaskólanum.
Allir eru hvattir til að mæta, bæði ungir og
fullorðnir.
Stjórnin.
BÚRIÐ s/f Hveragerði
Eiginmenn, komið með börnin i mat þann
24. okt. Eiginkonur þið þurfið ekki að
svelta 24. okt.
Karlmenn afgreiða grillrétti allan daginn.
BÚRIÐ sf. HVERAGERÐI.
Fró Sigrúnarbúðunum
Tviskiptir barnagallar frá kr.
6.460/-
Heilir barnagallar frá kr.
2.587/-
Velúr bolir barna, verð frá kr.
1302/-
Sigrún Heimaveri
Sigrún Hólagarði, Lóuhólum 2-6
Fró Sigrúnarbúðunum
Handklœði frú kr. 245
Núttfataflónel
Sigrún Heimaveri
Sigrún Hólmgarði
Lóuhólum 2-0.
Cand. philol. GRO HAGEMANN frá Oslo
flytur fyrirlestur i Norræna húsinu
fimmtudaginn 23. október 1975 kl. 20:30
um „KVINNENS LEVEFORHOLD OG
BEVEGELSEI NORGE 1880-1914”.
Aðgangur er öllum heimill
Kaffistofan er opin. Verið velkomin.
vSlkommen
NORRÆNA
hCjsio
Fyrstur meó fréttimar VÍSIR
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN
Mikill hugur er I Marokko-mönnum vegna yfirlýsinga Hassans konungs, og hafa þeir sýnt þaö I kröfu
göngum og á útifundum, að þeir styöja hann i tilkallinu til Sahara.
GANGAN STíFN-
IR Tll SAHARA
Marokkostjórn virðist
ekki verða af þvi skekin
að stefna 350.000 manns
fótgangandi inn i vestur-
hluta Sahara, en kviðir
þó þvi, að til bardaga
komi við nágrannarikið,
Alsir, sem véfengir til-
kall Marokkó til þessar-
ar fyrrverandi nýlendu
Spánar.
Sameinuðu þjóðirnarhafa verið
beðnar um að láta málið til sin
taka, og aðstoðarutanrikisráð-
herra Bandarikjanna, Alfred
Atherton, er kominn til Marra-
kesh til viðræðna við Hassan kon-
ung. — Atherton ræddi i gær við
Boumedienne, forseta Alsir.
Hassan konungur segist ekki
munu aflýsa göngunni, nema
Spánn tryggi það, að samninga-
viðræður fari fram um að landið
falli undir yfirráð Marokkó.
Fréttir hafa borist af þvi, að
Alsir hafi eflt herlið við landa-
mæri Marokkó. Stjórn Marokkó
segist hafa sent 20.000 manna
liösauka að landamærunum til að
mæta þessari ógnun og hafa
30.000 manna varalið, bryn-
vagnasveitir og flugher, til taks.
— Hefur Hassan konungur lýst
þvi yfir, að hann muni senda her-
sveitir sinar inn i Sahara, verði
ráðist á göngufólkið.
En leiðtogar sjálfstæðishreyf-
ingar Sahara (kölluð Polisario),
sem Marokkómenn segja að séu
verkfæri i höndum Alsirstjórnar,
segjast ætla að reyna að stöðva
gönguna, —Fjölmiðlar i Marokkó
klifa jafnt og þétt á þvi, að liðs-
menn Polisario séu þjálfaöir I
Alsir, sem sömuleiðis sjái þeim
fyrir vopnum.
Hefur magnast upp i Marokkó
mikil andúð gegn Spáni og Alsir,
og þúsundir ungmenna fóru um
götur Marrakesh i gær, hrópandi
slagorð gegn þessum þjóðum.
A sama tima streymir göngu-
fólkið i átt til landamæra Mar-
okkó við Sahara. Langferðabiiar,
járnbrautarlestir og flutninga-
tæki önnur hafa verið látin þessu
fólki I té til að taka af þvi fyrsta
spölinn.
Á vegi þeirra verður fyrst, eftir
að komið er yfir landamærin,
jarösprengjusvæöi, sem skæru-
liðar Marokkó kunna einir að rata
um.
Baka Japönum miksð
tjón á veiðarfœrum
Japanir hafa aukið gæsju sina
meö sovéskum fiskiskipum, sem
veiðar stunda við eyjuna Iiokk-
aido, nyrst i Japan, vegna vciðar-
færatjóns, sem japanskir fiski-
menn á þessum slóöum hafa orðiö
l'yrir.
Siglingamálastofnun Japans
upplýsir, að strandgæsluskip hafi
brýnt fyrir rússneskum skipstjór-
um, sem hafa stundað þessi mið
af miklu kappi frá þvi i júni i
sumar, að halda sig fjarri jap-
önskum fiskibátum.
Tiðir veiðarfæraskaðar hafa
verið kærðir til yfirvalda á Hokk-
aido og er sovésku skipunum
kennt um. Nemur það tjón mill-
jónum króna.
Að staðaldri hafa verið á þess-
um miðum um 75 sovésk veiði-
skip, þar á meðal 12 þúsund smá-
lesta verksmiðjuskip. Halda þessi
skip sig nokkuð nærri landi, og
eru stundum aðeins sex milur
undan.
7. júni i sumar undirrituðu Jap-
an og Sovétrikin samninga, sem
áttu að girða fyrir deilur vegna
ásóknar sovéskra fiskiskipa á
Japansmiðum. Þar voru settar
reglur um bætur vegna tjóns á
veiðarfærum. — Er nú búist við
þvi, að Japansþing staðfesti
þessa samninga innan skamms.
Franco á batavegi
Francisco Franco,
hershöfðingi, er sagður
á góðum batavegi eftir
vægt hjartaslag, sem
hinn 82 ára einvaldur
Spánar varð fyrir.
Heil sveit lækna
undir forystu mark-
greifans af Villaverde,
tengdasonar Francos,
fylgist með honum þar
sem hann liggur i E1
Pardo-höllinni i
Madrid.
Veikindi einvaldsins hafa
vakið nýjar vangaveltur um, að
Juan Carlos prins muni taka við
stjórnartaumunum áður en
langt um liði. — Franco valdi
þennan 37 ára gamla sonarson
siðasta konungs Spánar eftir-
mann sinn fyrir sex árum.
Hefur prinsinn einu sínni hlaup-
ið i skarðið fyrir Franco i veik-
indum þess siðarnefnda.
En I Madrid heyrist þvi fleygt,
að Carlos prins sé að þessu sinni
tregur til að verða staðgengill
Francos. Hann er sagður vilja
fá völdin i eitt skipti fyrir öll,
eða alls ekki að öðrum kosti.
Veikindi Francos höfðu spurst
út, áður en hið opinbera gaf út
tilkynningu um þau. Fyrstu
fréttir ABC-sjónvarpsstöðvar-
innar I Bandarikjunum hermdu,
að Franco væri látinn, sem
stjórnin i Madrid var fljót að
bera til baka.
Var sagt að Franco væri þeg-
ar tekinn til við stjórnarstörfin
aftur, og hefði til að mynda átt
45 minútna langar viðræður við
Carlos Arias Navarró, forsætis-
ráððherra i gær. — Kom
Navarro til þeirra viðræðna
beint af fundi með þeim Juan
Carlos prins og Alejandro
Rodriguez de Valcarcel, en sá
siðarnefndi er formaður rikis-
ráðsins, sem sjálfkrafa mundi
taka við völdum, ef Franco félli
skyndilega frá.