Vísir - 22.10.1975, Blaðsíða 14
14
VtSlR. Miðvikudagur 22. október
Hinn mjói vegur
dyggðarínnar er
þyrnum stráður
Xaviera er höfð að hóði og spotti og al-
menningur búinn að fó nóg af bersögli í bili
Xaviera Hollander
var frábærlega ieikin i
starfi sinu. Ein sú allra
besta seni veriö hefur
uppi. Þá var hún þekkt
undir nafninu ,,The
Happy Hooker”, sem á
islensku gæti útlagst
,,glaða gleðikonan”.
Svo ákvað hún skyndilega að
Skyldi Kún snúa aftur til ,,elsta
atvinnuvegarins”? þaö liefur
livort eð er enginn trú á henni i
nýja ,,hefðarkonu”-hlutverkinu.
feta hinn mjóa veg dyggðarinn-
ar og hafa á sér hefðarkonusnið
en enginn trúir á hana i þvi híut-
verki. Þá fór að halla undan fæti
fyrir henni. Nú er hún kölluð
„The Unhappy Hooker” eða
„sorgmædda gleðikonan”.
Xaviera hefur staðið að út-
gáfu þriggja bóka sem hún er
ekki talin hafa skrifað nema að
nafninu til. Tvær af bókum
hennar hafa verið kvikmyndað-
ar.
Úr myndinni „Starfið er ánægjan min". Hún þykir ekki vera mjög
kiámfengin, en mikið er uin nektarsenur i sundlauginni.
Xaviera, á meðan allt lék I lyndi. Þá vann hún sér inn miklar
upphæðir á stuttum tima og kunni vel við starfið.
Bækur hennar seljast ekki
lengur, — almenningur er búinn
að fá nóg af berorðum lýsingum
hennar, i bili a.m.k. Kvikmynd-
ir hennar voru tættar i sundur af
gagnrýnendunum. Þær áttu þar
að auki erfitt uppdráttar þvi
þær voru sýndar á sama tima og
tvær aðrar krassandi myndir
„The Devil in Miss Jones” og
„Deep Throat II”.
1 annari mynd Xavieru lék vel
metin bresk leikkona, Lynn
Redgrave, en henni tókst ekki
að bjarga kvikmyndinni.
I hinni mynd sinni lék Xaviera
sjálf aðalhlutverkið, og nefnist
sú mynd „Starfið er ánægjan
min”. 1 sjálfu sér fékk hún ekki
svo slæma dóma fyrir leik sinn,
en myndin sjálf var fyrir neðan
allar hellur.
— Framleiðendurnir vissu
ekki hvað þeir vildu fá, er haft
eftir vini Xavieru. — Hún hafði
sjálf ekkert vit á þessum málum
og lét þá fá það sem hún hélt að
þeir vildu. Nú er henni kennt um
öll mistökin og hún tekur það
mjög nærri sér.
Undanfarið hefur Xaviera
verið i fyrirlestrarferð um Kan-
ada, hefur viðdvöl á nýjum stað
á hverju kvöldi. Þetta hefur
veriðhræðileg pislarganga fyrir
hana. Hún horfir með söknuði til
þeirra daga þegar ekki tók hana
nema klukkustund að vinna sér
inn 50-100 dali (-8-16 þús. isl. kr.)
og samkvæmt þvi sem hún segir
sjálf, hafði hún mikla ánægju af
þvi starfi sinu.
Nú er hún hædd og spottuð af
öllum.
Hvar sem hún sýnir sig á götu
starir fólk á hana eins og hún
væri með horn og klaufir og
þegar hún kemur á mannamót
verður jafnan uppi fótur og fit.
Fyrirnokkru kom hún á bóka-
markað i Montreal. Karlmenn,
sem þar voru viðstaddir vildu
ólmir komast i tæri við hana og
fá eiginhandaráritun hennar.
Einhver fékk þá hugmynd að
láta hana skrifa með tússi á bert
bakið á sér, og eftir það fór
bókamarkaðurinn meira eða
minna út um þúfur, þvi enginn
endir varð á vitleysunni.
Þótt merkilegt megi virðast
er Xaviera gift, en hún þráir
samt enn auðæfi og frægð. Ekki
eru miklar likur á að henni
hlotnist það, — nema ef vera
skyldi að hún sneri aftur til sins
fyrra lifernis.
Hvort hún gerir það eða ekki
getur timinn einn skorið úr um.
Húsmóðir
setur heims-
met í loftbelg
Þrjátiu-og-f imm ára
gömul húsmóöir í Augs-
burg, hefur sett eitt
glæsilegasta met í heimi.
Nýlega komst hún upp í
6.200 metra hæö en hærra
hefur engin kona komist
á undan henni í loftbelg.
Renate Peter, sem er
þriggja barna móðir, tók
próf sem loftbelgsstjóri
sautján ára gömul. Hún
er alls ekki eina konan,
sem flýgur loftbelg í
Vestur-Þýskalandi, eins
og þriöja kvennakeppnin í
Augsburg sýndi. Inge-
borg Stensche frá Augs-
burg (t.h.) sem hérna
sést meö aðstoðarkonu
sinni, Ruth Czesny, vann
meistaratitilinn. Hún
flaug, ef svo mætti oröa
þaö, hátt yfir keppinuata
sína. Þær frú Czesny
fengu púðurdósir úr gulli
i verölaun.