Vísir - 22.10.1975, Blaðsíða 3
VÍSIR. Miðvikudagur 22. október
3
Búa sig undir meiri
erlenda samkeppni
Siglingaklubburinn hyggur á bátasmiöanámskeið í vetur.
Frístundagaman í Garðahreppi
Ungt fólk i Garðahreppi
hefur um inargt að velja i fé-
lags- og tómstundastörfum.
Unginennafélagið Stjarnan
býður upp á margs konar
iþróttastarfsemi, Skátafélagiö
Vifiil, Siglingakiúbbur Garða-
hrepps og K.F.U.M. og K.
vinna að ýmsum viðfangsefn-
um bæði úti og inni og auk þess
er Nemendafélag Gagnfræða-
skóia Garðahrepps með fjöl-
breytta félagsstarfsemi.
t kynningarbæklingi Æsku-
lýösnefndar Garðahrepps er
greint frá starfi allra þessara
félaga og nýir félagsmenn
boðnir velkomnir. Sérstaklega
er þvi beint til þeirra sem ný-
fluttir eru i hreppinn að þeir
kynni sér hvað um er að velja i
félags- og tómstundastarfinu.
Bæklingnum hefur verið
dreift til ibúanna en auk þess
liggur hann frammi á skrif-
stofu hreppsins. —EB
MEXICO: talið frá vinstri: Guðmundur—Ragnar—Bjarki—Arn-
ar—Þórðuy. .
Vilja kenna stjórnendum
iðnfyrirtœkja betri rekstur
A næstu fimm árum mun Is-
lenskur iðnaður mæta aukinni er-
iendri samkeppni. Ástæðan er
stigminnkandi aðflutningsgjöid
frá EFTA og Efnahagsbanda-
lagslöndunum.
Félag islenskra iðnrekenda tel-
ur, að með aukinni rekstrartækni
megi bæta samkeppnishæfni is-
lenskra fyrirtækja. Félagið
hyggst þvibeita sér fyrir stórauk-
inni rekstrarráðgjöf.
Lendingar-
staður fyrir
þyrlu við
Borgar-
spítalann
Tveri nýir starfsmenn
ráönir
Um siðustu áramót réð félagið
tvo nýja starfsmenn, Bergþór
Konráðsson, rekstrarhagfræðing,
og Guðmund S. Guðmundsson,
tæknifræðing. Þeir eiga báðir að
starfa að rekstrarráðgjöf við
fyrirtæki i framleiðsluiðnaði. Til
þessara starfa fékk félagið styrk
frá Iðnþróunarsjóði. Mogens
Höst, verkfræðingur, sem hér
starfar á vegum UNIDO hefur
jafnframt unnið með þeim að
þessum málum.
Hafa unnið i 20 fyrir-
tækjum
Rekstrarráðgjafarnir hafa
unnið i um 20 fyrirtækjum, og er
einkum stefnt að þvi að gera
heildarúttekt að stöðu hvers
fyrirtækis. Siðan eru fyrirtækin
aðstoðuð á þeim sviðum rekstrar-
ins, sem helst virðist ábótavant.
Jafnframt þessu hafa
stjórnendur fyrirtækjanna komið
til funda, þar sem ýmis rekstrar-
vandamál eru rædd. Þannig er
reynt að sameina fræðslu og
framkvæmd.
Námskeið um arðsemi
í framhaldi af þessu hefur
Félag islenskra iðnrekenda
ákveðið að gangast fyrir
námskeiði um stjórnun og arð-
semi. Það verður haldið dagana
3., 4. og 5. nóvember i Hótel Loft-
leiðum. Þar veröa tveir erlendir
leiðbeinendur, sem eru kunnir
fyrir störf sin á sviði fyrirtækja-
rekstrar.
Að þessu sinni er námskeiðið
sérstaklega ætlað iðnfyrirtækj-
um, en auk þess hefur nokkrum
starfsmönnum verðlagsstjóra
verið boðin þátttaka. Fjallað
verður um atriði eins og „hvaða
hagnað þurfa fyrirtæki”,
„rannsóknir sýna orsakir taps”
og „aukið hagnaðinn með kerfis-
bundinni hugmyndaleit”. Þegar
hefur fjöldi fyrirtækja tilkynnt
þátttöku.
Væutanlegur árangur
Þessari starfsemi er ætlað að
bæta að einhverju, leyti úr mikl-
um skorti á ýmiss konar þjónustu
á sviði rekstrartækni fyrir iðnað-
inn. Reynt verður að fá fyrirtæki
til að gera sér grein fyrir sam-
keppnisaðstöðu sinni og finna
leiðir til að gera iðnaöinn sam-
keppnishæfari.
— AG.
Fyrirhugað er að lendingar-
staður fyrir þyrlu verði tekinn i
notkun við Borgarspitalann, um
leið og nýja slysadeildin, sem nú
er byrjað að sprengja fyrir. Jón
Björnsson, arkitekt, sagði Visi
að bygging deildarinnar yrði að
öllum likindum boðin út i næsta
mánuði. Hún ætti að vera tilbúin
eftir eitt til eitt og hálft ár.
Um þyrlulendingarstað, sagði
Jón að þeir hefðu i fyrstu verið
að hugsa um að hafa hann á
þaki nýju byggingarinnar, en
horfið frá þvi. Málið hefði nú
verið sent flugmálastjórn til
umsagnar um hvar heppilegasti
staðurinn væri.
Það kemur alloft fyrir að
þyrlur flytja slasaða menn til
Reykjavikur. Nú þarf að flytja
þá i sjúkrabifreiðum frá flug-
vellinum. Dýrmætur timi gæti
sparast með þvi að þyrlan gæti
lent „við dyrnar” á slysadeild-
inni.
—ÓT
Ekkert samband virðist vera
milli gulutilfellanna tveggja
sem Visir skýrði frá fyrir
nokkru.
Annað tilfellið var i Sigöldu,
en hitt i Reykjavik.
Heimir Bjarnason, héraðs-
læknir á Hellu, sagði i viðtali við
Visi, að hann teldi vist, að Júgó-
slavinn sem veiktist i Sigöldu,
hefði fengið guluna áöur en
hann kom hingað til lands.
Júgóslavinn smitaðist við svo-
nefnda stungusmitun. Þegar
þannig stendur á, er ekki hætta
á að hann hafi smitað aðra við
snertingu eða gegnum melting-
arveg. Júgóslavinn var sendur
til heimalands sins, en ekki
hefur frést af honum siðan.
Gulutilfellið i Reykjavik virð-
ist vera eitt af þeim tilfellum
sem upp koma við og við. Ólafur
Ólafsson landlæknir sagði, að á
undanförnum árum hefði orðið
vart við gulutilfelli endrum og
eins. 1 beim tilfellum hefur ekki
komið til fjöldasmitunar.
—ÓH
Ekkert samband
virðist milli
gulutilfellanna
íslendingar eignast
sína eigin Mexico
Um næstu helgi lætur hljóm-
sveitin MEXICO til sín heyra i
fyrsta sinn. Þarna eru þó ekki á
fcrðinni neinir nýliðar i tón-
listarbransanum, heldur
þaulvanir tónlistarmenn, hver á
sinu sviði.
MEXICO skipa nefnilega þeir
Arnar Sigurbjörnsson og Ragn-
ar Sigurjónsson (áður Brimkló)
Guðmundur Benediktsson (áður
Mánum) Bjarki Tryggvason
(áður Ingimar Eydal og Blind-
hæð) og Þórður Árnason (áður
m.a. Rifsberja). Þeir félagarnir
hafa æft að kappi undanfarna
daga og lagt þar mesta áherslu
á danstónlist en vonast til með
aö geta tekið til meðferðar það
frumsamda efni sem hinir
ýmsu meðlimir Mexico luma á.
Er Visir spurði Arnar um
ástæðuna fyrir upplausn
Brimklóar, kvað hann hana
vera „algert áhugaleysi þriggja
meðlima hennar”. Þeir félagar
i Mexico ættu að geta flutt at-
hyglisverða tóniist, þvi hljóm-
sveitina skipa hvorki meira né
minna en þrir gitarleikarar.
Röddun ætti sömuleiðis að
verða nokkuð góð hjá þeim
félögum, þvi ekki hefur neinn
þeirra orð á sér fyrir að vera
raddlaus.
Nafnið Mexico kom til við
fyrstu æfingu, en það var
einmitt lag James Taylors,
„Mexico” sem fyrst var æft.
Bjarki Tryggvason er svo á för-
um til London um miðjan næsta
mánuð en þar mun hann
hljóðrita hljómplötu með lögum
eftir þá félaga Magnús og Jó-
hann, við undirleik hljóm-
sveitarinnar CHANGE. — örp.
Innfluttu tunn
urnar ódýrari
i frétt frá Síldarútvegsnefnd
kemur fram að i febrúarmánuði
sl. hafi verið leitað álits Bæjar-
stjórnar Siglufjarðar og Verka-
lýðsfélagsins Vöku á Siglufirði
uin livort æskilegt væri að hefja
á ný tunnuframleiðslu á Siglu-
firði.
Frá Bæjarstjórn Siglufjarðar
hefur ekkert svar borist, en eftir
itrekuð skrif barst svar frá
Vöku, þar sem félagið lagði til
að ekki yrði tekin upp tunnu-
framleiðsla á Siglufiröi að svo
stöddu, eða a.m.k. ekki fyrr en
Húseiningar hf. sem fengið
höfðu Tunnuverksmiðjuhúsið á
leigu, hefðu möguleika á að
flytja i eigið húsnæði. í svarinu
segir einnig: „Vér teljum það
ekki óraunhæft meðan ekki er
séð, hve mikil þörf er fyrir sild-
artunnur að doka við með fram-
leiðslu þeirra eitt til tvö ár, jafn-
vel þótt flytja þyrfti inn nokkurt
magn....”
Með tilliti til þessa hefur
megnið af þeim tunnum sem
ætlaðar eru til sildarsöltunar á
yfirstandandi vertið, verið flutt
inn. Meðan Tunnuverksmiðjur
rikisins störfuðu var jafnan
fluttur inn verulegur hluti
þeirra tunna sem notaðar voru
til sildarsöltunar, og var verð
þeirra, komið á söltunarhafnir,
mun lægra en verð á islenskum
tunnum
—EB
Sunnlenskar konur
sungu hringinn...
Kvennakór
nýkominn úr
Suðurnesja er
söngför til Vest-
fjarða. Með þessari för hefur kór-
inn lokiö hringferð um landið.
Kórinn hélt tvo samsöngva á
tsafirbi laugardaginn 18. október,
við frábærar undirtektir áheyr-
enda. Einn samsöngur var i
Bolungarvik á sunnudaginn 19.
okt. einnig við afar góðar undir-
tektir.
Kórkonur róma mjög gestrisni
og fyrirgreiðslu vestfirðinga sem
verður ógleymanleg og mikil
uppörvun i starfi kórsins á kom-
andi timum. Kvennakórinn vill
þakka Sunnukórnum á tsafirði og
kirkjukór og tónlistarfélaginu i
Bolungarvik fyrir höfðinglegar
móttökur.
Kórstjóri Kvennakórs Suður-
nesja er Herbert H. Agústsson,
einsöngvari Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir. Undirleikarar eru,
Ragnheiður Skúladóttir, pianó,
Pétur Bjarnason, kontrabassa,
Hálfdán Ingólfsson, ásláttar-
hljóðfæri, Hrönn Sigmundsdóttir
harmoniku og Sigriður Þorsteins-
dóttir, gitar.
Nú eru að hefjast niunda starfs-
ár Kvennakórsins og eru æfingar
hafnar af krafti. Margar ungar
konur hafa bæst i kórinn og i vet-
ur munu 38 konur syngja i kórn-
um.
Kvennakór Suðurnesja hefur
nýlokiö við að syngja inn á plötu
sem mun koma á markaðinn i
næsta mánuöi.