Vísir - 27.10.1975, Page 2
2
nfeffisro
Hefur þú lent í umferðar-
óhappi?
HólmfríOur Bcrglind Birgisdóttir,
8ára nemi.Nei, aldrei, og enginn
sem ég þekki. Jú, jú, ég kann um-
feröarreglurnar, en ég er ekki i
umferðarskólanum lengur.
Asta Eggertsdóttir, húsmóöir.Já,
en aðeins smávægilegu. Það er
eiginlega ekkert til að segja frá,
en það var mikið gert úr þvi i
blöðum. Jú, þegar ég var 3ja ára
lenti ég i bilslysi og verð þess
vegna öryrki ævilangt. En það
man maður ekki.
Valgeröur Jónsdóttir, húsmóöir.
Nei, aldrei lent i sliku og enginn
sem ég þekki.
Einar Páll Einarsson, rafvirki.
Já, ég hef lent i árekstri. fyrir
svona 5—6 árum siðan. Hann var
smávægilegur og það slasaðist
enginn. Jú, ég hef lent i smávægi-
legum óhöppum oftar en i þetta
eina skipti.
Maria Kristinsdóttir, Ijósmóðir
og húsmóöir. Já, ég hef lent i þvi.
Fyrir 20 árum siðan lenti ég i
árekstri fyrir norðan á blindhæð.
Jú, ég slasaðist svolitiö. Siðar
lenti ég i smávægilegu óhappi
þegar ég keyrði sjálf.
lngibjörg Sigfúsdóttir, húsmóöir.
Aldrei. En maðurinn minn lenti i
árekstri fyrir nokkrum árum sið-
an. Þar varö þó ekkert slys.
Nýia
Jesú-
barnið
okkar
J.P. og Á.S. skrifa/
,,Áður fyrr voru það Bitlarnir
og Elvis Presley en nú er það
Donny Osmond sem er fyrir-
myndin. Eins fáránleg blaða-
grein hefur sjaldan verið birt
um poppstjörnu, ef kalla mætti
poppstjörnu. Blaðagrein þessi
var birt i Visi 18. okt. Þar segir:
..Mæður um viöa veröld mega
sannarlega fagna þessari nýju
fyrirmynd og horfa fram' á
framtiðina með björtum aug
um. Hreina, velklædda og um
fram allt velklippta syni sina.”
Er þetta áróður fyrir rakara
og fatahönnuði? Sá sem skrifaði
greinina gerir sér ekki grein
fyrir þvi að þessi poppstjarna er
fyrir lifandi löngu stöðnuð. Og
þetta er þvi engin stórfrétt fyrir
mæður. Osmond hefur aldrei átt
neinum vinsældum að fagna að
ráði nema hjá aldursflokknum 8
til 12 ára.
Næst þegár birt verður grein
um poppstjörnu, ætti það t.d. að
vera David Bowie, Eagles eða
einhverjar poppstjörnur eða
hljómsveitir sem fylgja samtið
okkaren ekki þessi geislabaugs-
súkkulaðistjarna.”
óRÉn-
LÆTI!
Kvenréttindaklika i Alfta-
niýrarskóla skrifar:
,,Á kvennafridaginn, föstu-
daginn, var þeim bekkjum skól-
ans sem konur kenna, gefið fri
en öðrum ekki. Þetta finnst okk-
ur ekki hægt.
1 okkar bekk er karlkennari
og þvi urðum við að mæta i skól-
anum. Við erum konur lika þótt
við séum nemendur og þvi
fannst okkur ekki nema sann-
gjarnt að við fengjum lika fri á
kvennafridaginn, en sem sagt:
svo var ekki.”
Drykkjukvennahœli:
Það er
Arelius Nielsson skrifar:
„Sjáið fyrirsögnina. Óhugn-
anlegt er orðið. Það er ömurlegt
að gera þurfi þær kröfur, sem
I.Þ. gerir um slika stofnun i
„Velvakanda” Morgunblaðsins
23. október.
En þvi miður, þess er þörf.
Samt hefur margt jákvætt gerst
oig gott hin siðari ár til hjálpar
slikum vesalingum, t.d. gisti-
heimili i Grjótagötu og greiðari
aðgangur að Kleppi og „Hvita-
bandið”. En þörfin eykst. Og
það er voðinn. Vonandi verður
einhver kvennadeild á drykkju-
mannahælinu nýja á Vifilstöð-
um.
En heyrið mig, kæru þegnar
O'g samborgarar. Hvar enda all-
ar þessar kröfur i okkar tómu
sjóði? Kröfur til skattgreiðenda
á Islandi.
Þaö er æpt utan af miðum á
hærra fiskverð. Þaö er æpt úr
Háskóla og öðrum skólum um
hærri námsstyrki. Það er æpt
um fleiri varðskip og flugvélar.
Þaö er æpt um brú á Borgar-
œpt...
f jörð. Það er æpt um fleiri hæli
og stofnanir fyrir geðveika og
drykkjusjúka fanga og fjár-
vana. Það er æpt — æpt — æpt
úr öllum áttum.
Hve mörg þúsund greiðum við
með einum fanga eða einum
drykkjusjúklingi i dag? Hvað þá
alla daga ársins og ár eftir ár.
'Gæti það verið 10—15 þúsund á
dag?
Samt finnst þeim að sjálf-
sögðu ekkert að þakka og ekk-
ert fyrir sig gjört. Og fjarri sé
það mér að teija um of ef árang-
ur næðist og einhverjum yrði
heill að.
En væri samt ekki nær að
byrgja brunninn áöur en barnið
er dottið i hann ? Væri ekki betra
að gæta auðs i mannssálum
betur?
Væri ekki nær að konur og
karlar, þetta fólk, sem telst
heilbrigt og heiðarlegt ennþá,
tæki á sig rögg til að spyrna fót-
um við óhófinu og aumingja-
skapnum og stöðva þannig or-
sakir ópanna?”
Æskulýðsróði...?
G.K. hringdi:
„I húsinu númer 11 við Fri-
kirkjuveg hér i borg fer fram
ýmis konar félagsstarfsemi. Aí
sérstökum ástæðum hef ég
mikla löngun til að fá nánari
upplýsingar um eigendur húss-
ins og starfsemi þessi.
Hverjir eiga húsið og hverjir
stjórna þvi? Hvaða skilyrði þari
að uppfylla til að fá inni þar
fyrir félagsstarfsemi? Hvaða
skilyrði uppfylla þeir taflfélags-
menn sem þar eru? Og aö sið
ustu er borguð leiga fyrir afnot
af húsinu og ef svo er hvað er
hún þá há?
Vfsirfékk eftirfarandi upplýs-
ingar á Frikirkjuvegi ellefu:
Reykjavikurborg á húsið og sér
um viðhald þess, en Æskulýðs
ráð hefur afnot af húsinu fyrir
ákveðna leigu á ári. Þar fer
fram nokkur starfsemi á vegum
Æskulýðsráðs sjálfs en lang
mest starfa þar félög sem eru
LIGGUR ÞER
EITTHVAÐ
Á HJARTA?
Utanúskriftin er: VÍSIR „lesendur hafa orðið'
Síðumúla 14 - Reykjavík
hrein æskulýðsfélög, eða ert
með starfsemi sem höfðar jafnt
til ungra sem aldinna t.d. skák
og i þriðja lagi félög sem hafa á
stefnuskrá sinni málefni serr
höfða til barna og unglinga, þótt
þau taki ekki beinan þátt í þvi
t.d. brúðuleikhús.
Vilji félag fá afnot af húsinu
að staðaldri sendir það inr. um-
sókn sem Æskulýðsráð fjallar
siðan um i samræmi við fram
anskráð.
Þeir taflfélagsmenn sem eru i
húsinu eru ekki bundnir aldurs-
flokkum og margir þeirra vinna
leiðbeinendastörf i skólum fyrir
Æskulýðsráð og tengjast þannig
beint starfseminni.
Þeim félögum sem iá inni
með reglulega starfsemi, er
reiknaður húsaleigustyrkur
sem þau kvitta fyrir en þurfa
ekki að borga. Ef fjáröflunar
starfsemi félaga fær afnot af.
húsinu, t.d. tombólur, þá borga
þau húsaleigu. Stofnanir. t.d
skólar, sem fá aðstöðu fyrir ein-
staka námskeiðshópa greiða
einnig húsaleigu.”