Vísir - 27.10.1975, Blaðsíða 5
VÍSIR. Mánudagur 27. október 1975.
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Ú1 UmsjÓn: GP/ABj.
b .fjjjjaB
Rœningjar Herrema
neita að gefast upp
Skæruliðarnir tveir, sem
undanfarið hafa haldið Tiede
llerrema, irskum iðjuhöidi i
gíslingu neituðu i dag að verða
við áskorunum uin að láta
Herrema lausan.
Irska stjórnin neitar að verða
við óskum þeirra, og er ekkert
útlit fyrir að þetta mál leysist.
Hundruð lögreglumanna og her-
manna hafa setið um mann-
ræningjana, Eddi Gallagher 28
ára og Marian Coyle 19 ára.
Nokkrir lögreglumenn
komust i gær upp á þak hússins
þar sem hinn 54 ára dr.
Herrema er i haldi. Heyrst hef-
ur að lögreglan hafi fjarlægt
nokkrar plötur af þakinu og
hyggist koma fyrir hlustunar-
búnaði til þess að hlera samtöl
mannræningjanna.
Þau Coyle og Gallagher eru
fyrrverandi félagar úr irska
lýðveldishernum (tRA) Rory
O'Brady, formaður Sinn Fei,
sem er stjórnmáladeild irska
lýðveldishersins, fór i gær fram
á við mannræningjana, ;að þeir
létu Herrema lausan.
O’Brady sagði að það þjónaði
ekki neinum nýtum tilgangi að
halda Herrema i gislingu. IRA
hefur þegar lýst andúð sinni á
ráninu.
Ekki var talið öruggt að
mannræningjarnir hefðu heyrt
tilkynningu O’Bradys, en sagt
var að lögreglan, sem hefur að-
setur á neðstu hæð hússins, hafi
komið skilaboðum til þeirra.
Likamlegri heilsu Herrema er
talið hætt i kulda og trekk, hefur
hann heyrst hósta, en lögreglan
hefur sagt að andleg jafnvægi
fangans sé þó öllu betra en
ræningjanna.
Herrema var rænt 3. október
s.l. i bænum Limmerick i
námunda við stáliðjuverið
Ferenka, sem Herrema er
framkvæmdastjóri fyrir.
Ræningjar hans fóru fram á að
þrir félagar þeirra yður látnir
lausir úr fangelsi. Þeir hafa
verið umkringdir af lögreglu,
siðan s.l. þriðjudag, er komist
var á snoðir um felustað þeirra.
Ferenka stáliðjuverið var
opnað á ný i dag eftir að lokað
hafði verið þar i 18 daga, sam-
kvæmt fyrirskipunum mann-
ræningjanna. Talsmaður fyrir-
tækisins sagði, að það gæti
naumast skaðað Herrema, en
framtið fyrirtækisins væri hins-
vegar i veði.
SAMKOMULAG I OLYMPIU-
ÞORPINU í MONTREAL
Biðja dómarann
að leyfa dóttur-
inni að deyja
Ráðgert var að vinna við fram-
kvæmdir á Olympiusvæðinu i
Montreal hæfist að nýju i dag.
Framkvæmdir á svæðinu hafa að
mestu legið niðri siðan fyrra
mánudag er um 3000 verkamenn
lögðu niður vinnu i mótmæla-
skyni. Verkamennirnir voru að
mótmæla „svörtum lista” sem á
voru um 300 manns sem bannað
var að vinna á svæðinu.
Verkamannasamband Quebeck
sagði i gær að komist hefði verið
að samkomulagi um „svarta list-
ann” sem settur var saman af
lögreglunni eftir fund með verka-
mannasambandinu og borgar-
yfirvöldum.
Samkvæmt samkomulaginu
verður sett á laggirnar nefnd
skipuð sjö fulltrúum verka-
mannasambandsins og borgar-
innarsem munu taka til athugun-
ar öll nöfn sem sett hafa verið á
þennan lista siðan 1. mai s.l. Lög-
regla og atvinnuveitendur þurfa
að gera verkamannasambandinu
grein fyrir hvers vegna ákveönir
verkamenn verða útilokaðir frá
vinnu.
Málflutningi er að Ijúka I liinu
einstæða máli fósturforeldra
Karen Anne Quinlan. sem lcita
eftir dómsúrskurði til þess að
leyfa dóttur sinni að deyja.
Lögmaður þeirra mun slá
botninn i mál sitt i dag með þvi að
biðja dómaranna i Morristown i
New Jersey að fyrirskipa að
öndunarvél verði tekin frá hinni
21 árs gömlu stúlku,sem legiö
hefur i sex mánuði án þess að
komast til meðvitundar.
Sjö læknarhafa verið leiddir til
vitnis umþað, að stúlkunni verði
ekki hugaðurbati. Báru þeir það,
að það sé nær útilokaður mögu-
leiki, að hún geti nokkurn tima
lifað lifi eðlilegrar manneskju.
Hið opinbera, sem ver málið
fyrir fósturforeldrunum. mun
leiða sérfræðinga fram i dag til
vitnis um. að t æknilega útskýrt sé
stúlkan enn lifandi, meðan likami
hennar getur andað fyrir tilstilli
öndunarvélarinnar, og að enn sé
'veikur möguleiki á þvi að hún geti
fyrir eitthvert kraftaverk náð sér
af veikindunum.
Jafnaðarmem
og kommún-
istar skiptast
á pústrum
Hnúum og hnefum var beitt i
átökum, sem brutust út á bæjar-
skrifstofum Faro i Portúgal i
morgun, þegar kommúnistum
var rutt úr skrifstofunum.
Tiu menn hlutu minniháttar
meiðsli, en rúður og húsgögn voru
brotin i fyrirganginum.
Um 300kommúnistarhöfðu lagt
skrifstofurnar undir sig i gær-
kvöldi i mótmælaaðgerðum
vegna frávikningar bæjar-
stjórans i síðustu viku, en hann
var þeirra maður.
Jafnaðarmenn höfðu liðssafnað
i bænum i morgun og tóku hönd-
um saman við félaga úr miðflokki
alþýðu demókrata um að ráðast
til inngöngu i bæjarskrif-
stofurnar.
Flestir setuliðsmanna voru
hraktir úr skrifstofunum, en
nokkrir bjuggust um i einu her-
bergi, og vörðu innra’sarliðinu
inngöngu, þar til lögreglan
skakkaði leikinn. En nýi bæjar-
stjórinn var borinn á gullstól inn i
skrifstofubygginguna.
Francisco da Costa Gomes,
forseti, er nú kominn aftur heim
að lokinni fjögurra daga heim-
sókn til ftaliu og Júgóslaviu.
Mikil ólga hefur verið i Portúgal i
fjarveru hans og allskonar sögur
á kreiki um byltingarsamsæri
ýmist hægri manna eða vinstri
manna.
A föstudag var hernum skipað
að vera við öllu búinn, en þá höfðu
sprengjur verið sprengdar i
Lissabon, og loft var lævi blandið.
De Azevedo forsætisráðherra
hafði á útifundi i Oporto sagt, að
borgarstyrjöld væri hugsanleg. —
Neyðarástandslög hafa veriö i
gildi i Oporto vegna aðgerða
borgarbúa gegn kommúnistum,
en forsætisráðherrann aflétti
þeim loks á föstudag.
Herflokkur varð að skakka
leikinn i Santiago de Cacem sem
er um 150 km suður af Lissabon.
Kommúnistar höfðu lagt undir sig
skrifstofur búnaðarfélagsins, en
jafðarmenn bjuggu sig undir að
ryðja þeim út.
Logar enn í Beirút
Kmi eitt vopnaliléð var gert i Libanon milli hinna striðandi
Ivlkinga i gærkvöldi, en þessi niynd var tekin fimm klukkustund-
uni siöar i nótt og barst hún Visi i morgun. — Reykjamökkinn
leggur l'rá logandi luisi i Beirút, sem orðið liet'ur sprengju að bráo
— Skotlirið glumdi þá við i borginni liér og hvar. Attunda vopna-
liléð var á enda.
SSa,