Vísir - 27.10.1975, Blaðsíða 4
4
VtSIR. Mánudagur 27. október 1975.
Notaðir varahlutir
í flestar gerðir eldri
Ath. breyttann
opnunartima. Höfum
framvegis opið kl. 9
BILAPARTASALAN
Höfðatúni 10, sirni 11397.
öpið i'rá kl. 9 — 7 alia virka daga og 9—5
iaugardaga
TEKKNESKA B/FRE/ÐAUMBOÐ/Ð
Á ÍSLAND/ H/F
AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42606
Etyrstur meó
fréttimar
VÍSIR
CAIASKÁfAA
ÓDYRIR OG HENTUGIR
I mörgum stærðum og gerðum.
Sendum hvert á land sem er.
Biðjið um myndalista.
STÍL-HÚSGÖGN
. . AUDHHÍ KKU 63 KÓPAVOGI SlMÍ 44600
VÍSIR flytur nýjar fréttir
\ Vísiskrakkarnir bjóða fréttir sem
skrifaðar voru 2 'A klukkustund fyrr.
VÍSIR fer í prentun kl. hálf elíefu að
morgni og er á götunni klukkan eitt.
TILBOD
VETRARHJÓLBARÐAR
(NEGLDIR)
RADIAL Kr.
145 SR 12 OR 7 5.950.-
DIAGONAL
520 12/4 OS 14 4.720.-
550 12/4 OS 14 5.520.-
ap nVb+^GUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN
Waldheim reynir
að bera klœði á
vopnin i Sahara
Vatnsbirgðum hefur veriö safnað saman fyrir gönguna miklu inn I Sa-
hara.
Kurt Waldheim, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, fór i
gær l'rá Marrakesh, aö loknum
viðræðum við Hassan konung
Marokko, tii Mauritaníu til að
ræða framtiö Vestur-Sahara við
forseta Alsir og Mauritaniu.
A meðan drifur að landamæra-
bænum Tarfaya i Marokko liðs-
safnaðurinn, sem Hassan kon-
ungur hefur stefnt til að leggja
fótgangandi út á eyðimörkina. —
Um 100.000 manns eru þegar
komin þangað, en ætlunin er aö
senda 350.000 manns i gönguna.
Hassan konungur hefur gert
kröfu til þess, þegar Spánverjar
sleppa hendi af nýlendu sinni i V-
Sahara, að landsvæðið falli undir
yf irráð Marokko, eins og i valdatið
soldána Serkja. — En Mauritania
gerir einnig kröfu til svæðisins, og
Alsir, sem telur sig hafa hags-
muna að gæta, fylgir Mauritaniu
að málum, en krefst þess að Ibúar
V-Sahara, hjarðmannaflokkar,
fái sjálfir að ráða framtið lands-
ins.
Alsir á landamæri að V-Sahara,
og hefur stutt sjálfstæöisbaráttu
skæruliða þar.
Hassan konungur hyggst leggja
landið undir Marokko á táknræn-
an hátt með „fótgönguliöinu”, en
menn kviða þvi að skæruliðar V-
Sahara, herir Mauritaniu eða
Alsir reyni með valdi að stöðva
gönguna. — Hefur Hassan kon-
ungur hótað að beita her
Marokko, ef göngufólkinu veröi
mein gert.
Þykir þvi liggja við borð, að
strið brjótist þarna út, og fyrstu
fórnarlömbin verði vopnlaust
gangandi fólk, sem á i fyrsta
áfanga leiðar sinnar yfir jarð-
sprengjusvæði að sækja.
Hcr á myndinni til hægri sjást
Marokkobúar liinir „vfgreifustu”
veifa vatnsflöskum sinum, reiöubúnir
til að leggja land undir fót. — En fyrst
verður fyrir þeim jarðsprengjusvæöi,
sem Marokkohermenn (sjá myndina
hérna fyrir neöan) hafa unnið við aö
merkja að undanförnu.
Auðjöfurínn
Slater dregur
sig í hlé
Breski f jármálaheimurinn
stendur á öndinni eftir siðustu
stórtiðindin á þeim vettvangi,
þar sem auðjöfurinn, James
Slater, lét af stjórn hins um-
svifamikia fém iðlunarfy rir-
tækis sins. — Það var sá sami
Slater, sem hækkaði verðlaunin
i skákeinvigi þeirra Spassky og
Fischer i Reykjavik, en það
varð til þess að Fischer lét til
leiðast að tcfla.
Slater skaut upp á fjármála-
himininn i Bretlandi 1964, þar
sem hann hófst af litlum efnum
upp i að verða einn umsvifa-
mesti hlutabréfamiðlari Breta.
1 félagi við Peter Walker rak
hann Slater Walker-fyrirtækiö,
sem hafði milligöngu um fjár-
festingarog rak banka og mörg
dótturfyrirtæki. — Walker hætti
hjá fyrirtækinu 1970, þegar hann
varð ráðherra i stjórn Edwards
Heath.
Slater er aðeins 46 ára að
aldri, þegar hann segir nú af sér
formennsku i stjórn fyrirtækja-
samsteypu sinnar. Astæðuna
fyrir þessari örlagariku ákvörð-
un segir hann vera bæði heilsu-
farslegar og svo og leiðinlegt
umtal um eitt fyrirtækja hans i
Singapore
Opinber rannsókn stendur yf-
ir á viðskiptaháttum Haw Par,
fyrirtækis sem hefur verið undir
stjórn Slater-Walker siðan 1971.
Fyrirtækiö er talið hafa braskað
með fé skjólstæðinga sinna til
gróða fyrir framkvæmdastjóra
og eigendur fyrirtækisins, en
litils ábata fyrir skjólstæðing-
ana.
Slater komst til auðs með þvi
að verja öllu sparifé sinu 2000
sterlingspundum til kaupa á
hlutabréfum i fyrirtæki, sem
hann taldi vera að rétta úr kútn-
um eftir fjárhagsörðugleika.
Reyndist hann forsjáll þar, þvi
að virðing fyrirtækisins átti eft-
ir að aukast og bréfin að hækka
mikið.
Þennan hæfileika nýtti hann
sér i fjármiðlun og gerðist um-
svifamikill verðbréfamiðlari.
Fór orð af honum fljótlega,
þannig að hlutabréf i fyrirtæki
hans sjálfs, hlutabréfamiðlun-
inni, voru i háu verði. — Hélt
hann áfram að skipta á þeim og
bréfum i fyrirtækjum, sem ekki
nutu sannmælis, en hækkuðu
þegar frá leið.
Þessi mylla malaði honum og
félaga hans gull og nutu við-
skiptavinir þeirra góðs af.
Eftir að Walker hætti hjá
fyrirtækinu vegna ráðherra-
annrikis, hófst Slater handa við
fjárfestingar i Austurlöndum,
USA, Kanada, Astraliu og V-
Þýskalandi.
Abur en kreppan sótti að 1972
og verðbréfamarkaðurinn i
Lonaon lagðist i dvala, var Slat-
er enn nógu forsjáll til að selja
obba þeirra hlutabréfa, sem
hann hafði setið uppi með. Hafði
hann þvi komið þeim i peninga,
áður en bréf urðu almennt nær
óseljanleg.
En þar með drógust samt
saman viðskipti fjármiðlunar
hans.
Slater fækkaði seglum, og i
nóvember i fyrra seldi hann
sina hluti i fyrirtækjum i
Austurlöndum fjær. í júli i sum-
ar sprakk svo sprengjan, þegar
fyrirtæki hans i Hong Kong og
Singapore vöktu á sér grun um
misferli.
Misstu þann
Lögreglan leitaöi i gær i skrif-
stofum eins lögmanna Parisar að
ef tirsóttasta glæpamanni
Frakklands, Jean-Charles
Willoquet — Willoquet hafði
sloppið frá launsátri lögregunnar
á laugardag.
Lögreglan hafði komið að hon-
um og konu hans, Martine
Willoquet, sem hjálpaði manni
slnum til að flýja i júli i sumar. —
stóra
Martine varð fyrir skoti lög-
reglunnar, en Willoquet, skýldi
sér á bak við tvo vegfarendur,
sem hann tók fyrir gisla, en lét
siðan aftur lausa, þegar hann var
sloppinn.
í júli hafði Martine laumast inn
i réttarsalinn, þar sem taka átti
mál manns hennar fyrir. Hafði
hún klæðst lögmannsskikkju. en
brá skyndilega, þegar inn var
komiö, handsprengju og skamm-
byssu undan skikkjunni. Lét hún
bónda sinn hafa byssuna, en
ógnaði sjálf með sprengjunni. A
flóttanum úr dómssalnum skaut
Willoquet tvo lögreglumenn og
tók tvo dómara með sér sem
gisla. Þegar lögreglan handtók
Martine i gær, fannst i klæðum
hennar miði með nafni lögmanns
eins, sem lögreglan leitaði hjá i
gær.