Vísir - 27.10.1975, Qupperneq 3
VtSIR. Mánudagur 27. október 1975.
Gerð kvikmynda
hefur lengstum átt
erfitt uppdráttar á ís-
landi. Margir hafa sér
til ánægju fiktað við
kvikmyndagerð en ekki
eru það margir sem
hafa lifibrauð sitt af
henni.
Rœtt við höfund
„Iðnaðarbanka-
auglýsingarinnar"
Rmm mánuði að gera
einnar mínútu kvikmynd
Höfundur teiknimyndanna Siguröur örn Brynjólfsson meö
glærurnar, sem pcrsónur teiknimyndanna.eru teiknaöar á.
Við spyrjum hann nú um tildrög
þess.
,,JU, lengsta teiknimynd sem
gerð hefur verið á tslandi er
auglýsingin frá Iðnaðarbankan-
um. Hún tekur eina minútu.
Upphafið var það aö
auglýsingastofa hér i borginni
kom að máli við mig, nú s.l. vor
og æskti þess að ég gerði
auglýsingu i teiknimyndaformi.
Þá lá fyrir hugmynd um pening
sem lendir i ævintýri. Siðan
voru ýmsar hugmyndir ræddar
og við komumst loks að þeirri
niðurstöðu að láta myndina ger-
ast i miðbænum. Að þvi búnu
var hugmyndin kynnt bankan-
um og eftir að samþykki hans lá
fyrir byrjaði ég að teikna.”
Hvað þurftir þú að teikna
margar myndir?
„Myndin er ein minúta að
lengd. Ég nota sex teikningar á
sekúndu. Sumar teikningarnar
get ég notað oftar en einu sinni
svo alls þurfti ég að teikna 230
myndir. Auk 9 bakgrunna.
Hvað tók það langan tima að
gera einnar minútu teikni-
mynd?
Segja má að hugmyndin hafi
fæðst i maí i vor. Myndinni var
svo lokið i september. Sjálf
teiknun myndarinnar tók u.þ.b.
mánuð en kvikmyndatakan tók
innan við viku.
Hvað störfuðu margir við
gerð myndarinnar?
„Það munu hafa verið átta
manns. Söng i myndinni annað-
ist Halldór Kristinsson. Og
tónlistina samdi Hjörtur Blönd-
al.”
Teiknimynd um
Þrymskviðu
Sigurðurernú á starfslaunum
frá menntamálaráöuneytinu og
vinnur að gerð teiknimyndar
um Þrymskviðu. Hann sagði að
sér hefði lengi verið þetta verk
hugleikið og þvi valið það. Þessi
mynd verður u.þ.b. 10-15 minút-
ur að lengd.
Áður hefur Sigurður gert
u.þ.b. 10 stuttar teiknimyndir.
Að lokum sagði Sigurður
örn:
Það þarf að gera mun meira
af teiknimyndum hér á landi.
Teiknimyndagerð er listgrein
sem býður upp á marga mögu-
leika bæði til skemmtunar og
fróðleiks. Teiknimyndir eru
mjög vel fallnar til fræðslu, þar
sem auðvelt er að útskýra á
einfaldan hátt með teiknimynd-
um- — E.K.G.
Þeir eru heldur ekki margir
sem fengist hafa við teikni-
myndagerð á Islandi.
t Hafnarfirði er ungur maöur
sem hefur gert talsvert af
teiknimyndum. Hann heitir
Sigurður örn Brynjólfsson.
Vísir hafði tal af honum og
spjallaði við hann um
teiknimyndagerð.
Hvernig verður
teiknimynd til?
„Það er auðvitað nauðsynlegt
að gera handrit til þess að vinna
eftir. Þar er sagt fyrir um tíma-
lengd, persónur, bakgrunna
o.s.frv. Þvi næst er tekin
ákvörðun um hvaða tækni skuli
nota við gerð myndarinnar, en
þar kemur mjög margt til
greina.
Þá er komið að þeim þætti
sem mestan tima tekur. Það er
teikningin á öllum þeim
hreyfingum sem fyrir koma i
myndinni. 1 stuttum myndum
hef ég fyrst teiknað á pappir og
fært siðan yfir á filmu með sér-
stakri ljósmyndatækni. Þegar
um lengri mynd er að ræða er
kostnaður og vinna við filmu-
yfirfærslur svo mikill að nauð-
synlegt er að teikna beint á
gagnsæjar plastfilmur (glær-
ur).
Þessar filmur eru teiknaðar
þannig að eftir að teiknað hefur
verið á filmu A er filma B lögð
ofaná og áframhald hreyfingar
á filmu A teiknuð þar, og svo
koll af kolli. Þannig verður
hreyfingin samfelld.
Samtimis þessu er unnið að
bakgrunnunum og eru þeir unn-
ir i samræmi við hreyfingar
myndarinnar. Ef t.d. er um að
ræða hliðarhreyfingu eða hreyf-
ingu upp og niður er það bak-
grunnurinn sem hreyfist.
Sérð þú um kvikmyndatöku
sjálfur?
Nei,þaðgeri ég ekki. Viðgerð
teiknimyndar eru margir, sem
leggja hönd á plóginn. Allt frá
þvi að hugmyndin fæðist, teikn-
un fer fram, hljóðupptaka er
framkvæmd, lesinn texti og þar
til kvikmyndun lýkur.
Kvikmyndatakan fer þannig
fram i stuttu máli að bakgrunni
er stillt upp frammi fyrir kvik-
myndavél og siðan er hver filma
sett á bakgrunninn, tekin af
henni mynd og siðan skipt um
Hér heldur Sigurður á lofti bakgrunni teiknimyndar.
Þetta eru persónur þær sem fyrir koma i „lengstu teiknimynd á
islandi! ” Þeir Kalli króna, Gotti, Gæj, og þjófurinn Krókur.
filmu. Að þvi loknu er filman
framkölluð og loks klippt.
Eftir að þessu er lokið er
filman tilbuinn en án hljóð-
setningar.
Lengsta teiknimynd
á íslandi
Sigurður örn hefur gert
lengstu teiknimynd á íslandi.
Ráðherrar þjóðverja og
íslendinga þinga á morgun
„Ég geri ráð fyrir að
ráðherraviðræðurnar við
vestur- þjóðverja um
landhelgismálið hef jist á
morgun, þriðjudag",
sagði Einar Ágústsson,
utanríkisráðherra í við-
tali við Visi í morgun.
Wischnewski, aðstoðarutan-
rikisráðherra, og sex eða sjö
embættismenn taka þátt i við-
ræðunum af hálfu þjóðverja.
„Ég geri ráö fyrir að ég taki
þátt i þessum viðræðum af okk-
ar hálfu, en hvaða ráðherra
annar gerir það, veit ég ekki
enn. Það verður ákveðið á rikis-
stjórnarfundi i dag”, sagði
Einar.
Um nýjar ráðherraviðræður
við breta um landhelgismálið,
i
sagði Einar, að þær yrðu ekki
fyrr en að loknum viðræðum
sérfræðinga beggja aðila i
Reykjavik.
„Sérfræðingarnir þurfa að
semja skýrslur fyrst. En ég held
það sé i næstu viku sem þeir
koma frá bretum”, sagði utan-
rikisráðherra.
Aðspurður um hvar ráöherra-
viðræðurnar við breta yrðu
haldnar næst, sagö’i utanrikis-
ráðherra: „t Reykjav'k. Viö
förum ekki aftur.”
— ÓH