Vísir - 03.11.1975, Blaðsíða 3
Visir. Mánudagur 3. nóvember 1975.
3
FYRIR ÖLD
ÁTTU ÞEIR
REYKJAVÍK
100 ár frá fyrsta hrepps-
nefndarfundi Seltjarnarness
A morgun eru liðin 100 ár siðan
hreppsnefnd kom fyrst saman til
fundar á Seltjarnarnesi. Til eru
gerðarbækur hreppsnefndarinnar
frá upphafi.og segiri fyrstu fund-
argerðinni að séra Hallgrimur
Sveinsson, siðar biskup, hafi stýrt
þessum fyrsta fundi.
Seltjarnarneshreppur var mun
viðáttumeiri fyrir einni öld en
hann er nú. t>á náði hann, með
Trilla sökk
í Hafnar-
fjarðarhöfn
Trilla sökk i höfninni i Hafn-
arliröi i morgun. I'aö var um
klukkan hálf niu i morgun sem
tiikynnt var um að trillan
hel'ði sokkið. Hún hét Sleipnir
og var um li-X tonn að stærð.
llalði hún rekist upþ i nýtt
stálþil i smáhátahöfninni. og
að öllum likinduin komið gat á
liana.
—KA
nokkrum frávikum, alla leið að
Lækjarbotnum. Verulegur hluti
þess landrýmis, sem höfuðborgin
hefur siðan þanist yfir, tilheyrði
þá Seltjarnarneshreppi, og hafði
land hans þá tvivegis verið skert i
þágu Reykjavikur.
Seltjarnarneshreppur varð
kaupstaður I april 1974. — Aldar-
afmælisins verður minnst á ýms-
an hátt. Sérstakur hátiðarfundur
veröur i félagsheimili bæjarins á
morgun klukkan 17:15. Þar verð-
ur litið yfir farinn veg og reynt að
skyggnast fram i timann.
Annars verður afmælisins
minnst á þrennskonar hátt. —
Samin verður 100 ára saga
hreppsins og Mýrarhúsaskóla
sem fyllti öldina i siðasta mánuði.
Skólanum verður fært að gjöf
listaverk eftir Ásmund Sveinsson,
og aðalskipulag bæjarins verður
tekið til endurskoðunar og efnt til
hugmyndasamkeppni í samóanai
við það.
i bæjarstjórn Seltjarnarness
eru nú: Karl R. Guðmundsson,
Snæbjörg Asgeirsson, Sigurgeir
Sigurðsson, Magnús Erlendsson,
Viglundur l'orsteinsson, Njáll
Ingjaldsson og Njáll Þorsteins-
son.
—AG—
VERSLUNARBANKINN
í KEFLAVÍK FLYT-
UR í NÝTT HÚSN/EÐI
Ctibú Verslunarbanka islands í
Keflavik er nú að flytja i nýtt hús-
næði að Vatnsnesvegi 14.
Verslunarbankinn festi kaup á
hinu nýja húsnæði fyrir nokkru,
og er það 178 ferm. að grunnfleti.
Allt frá árinu 1963 er bankinn hóf
starfsemi sina i Keflavik, hefur
hann verið i litlu og óhentugu
leiguhúsnæði að Hafnargötu 31.
Oll vinnuaðstaða breytist mjög
til batnaðar er bankinn flytur i hið
nýja húsnæði sitt. Nú vinna i
bankanum átta manns.
Innréttingu hins nýja húsnæðis
Verslunarbankans annaðist
Gunnar Magnússon arkitekt, en
að öðru leyti var nær öll vinna viö
húsið unnin af heimamönnum.
Útibússtjóri Verslunarbanka
tslands f Keflavik er Helgi Hólm.
— E.K.G.
Sú hin formlega mynd
Þetta er hin formlega mynd, sem árlega er birt af sendinef nd íslands á allsherj-
arþingi Sameinuöu þjóöanna. Andlitin breytast stundum, en staðurinn er hinn
sami, fundarsalur allsherjarþingsins, íslenska deildin. — Þessi mynd er af sendi-
nef ndinni á 30. allsherjarþinginu. Flest andlitin eru íslendingum kunn. í fremri röð
frá vinstri eru Einar Ágústsson utanríkisráðherra, Ingvi Ingvarsson, fastaf ulltrúi
Islands hjá Sameinuðu þjóðunum og Hans G . Andersen, ambassador. í aftari röð
frá vinstri: Hörður Helgason, skrifstofustjóri í utanríkisráðuneytinu, Tómas
Karlsson, vara-fastaf ulltrúi og ívar Guðmundsson, ræðismaður,sem lengsr allra ís-
lendinga hefur starfað hjá SÞ.
Dregið úr ofköst-
um Kísiliðjunnar
KRAGABOLIR OG
VEL0URMUSSUR
HETTU KÁPUR
f ALLAR
STÚLKl
Ástœðan: Samdráttur í sölu erlendis
Að undanförnu hefur verið
dregið úr afköstum Kisiliðjunn-
ar við Mývatn. Ástæðan er sú að
illa gengur að selja framleiðsl-
una erlendis vcgna samdráttar
hjá þeim fyrirtækjum sem
keypt hafa af Kisiliðjunni.
Fyrirhugað var að framleiða
24.500 tonn á þessu ári, en nú er
fyrirsjáanlegt að framleiðslan
verður ekki nema 18 þúsund
tonn. Birgðir hafa safnast hjá
Kisiliðjunni. Þar eru nú 3000
lestir og allar geymslur fullar.
Björn Friðfinnsson, fram-
kvæmdastjóri verksmiðjunnar,
sagði i morgun að samdráttur i
sölu hefði einkum farið að gæta i
ágúst. Þá hefðu verkföll i vor
haft nokkur áhrif á söluna.
Framleiðsla Kisiliðjunnar
hefur verit seld bjórverksmiðj-
um og til sykur-, efna- og málm-
iðnaðar. I öllum þessum grein-
um hefur orðið Samdráttur i
Evrópu. Stærsti viðskiptavinur
verksmiðjunnar hefur verið
NOVO-lyfjaverksmiðjan i Dan-
mörku. Hún hefur orðið að
Mjög mikil
að
sýmngu
Engilberts
Mjög mikil aðsókn hefur
verið að yfirlitssýningu á
verkum Jóns Engilberts sem
opnuð var i Listasafni
íslands 18. október. Sýningin
verður opin til 16. nóvember.
— Hún er opin fimmtudaga,
laugardaga og sunnudaga
frá klukkan 14 til 22 og aðra
daga frá klukkan 14 tií 18.
draga úr áætluðum afköstum,
og eru þau nú 60 af hundraði
þess sem i ársbyrjun var áætl-
aö.
Af þessum ástæðum hefur
Kisiliðjan þegar dregið úr af-
köstum i verksmiðju. — AG.
SAMFESTINGAR
NÚ LÍKA í SVÖRTU