Vísir - 03.11.1975, Side 5
Visir. Mánudagur 3. nóvember 1975.
LÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ morgun ÚTLÖND í morgun ÚTL Umsjón: Guðmundur Pétursson
Fjaðrir Kissingers
stýfðar og Schles-
inger vikið frá
Stórtiðinda er vænst
frá stjórn Hvita hússins
i dag þar sem tilkynnt
verði mannaskipti i
nokkrum áhrifamestu
embættum bandarisku
stjórnarinnar.
Fjölmiðlar i Banda-
rikjunum hafa klifað á
þvi i gær og i nótt að
James Schlesinger
varnarmálaráðherra
hafi verið vikið úr emb-
ætti, dregið hafi verið
úr áhrifum Henry Kiss-
ingers utanrikisráð-
herra og annar maður
settur yfir leyniþjón-
ustuna CIA i stað Willi-
ams Colby.
Þetta hefur ekki verið staðfest
af hálfu stjórnarinnar ennþá, en
útvarpsstöðvar i Bandarikjun-
um bera fyrir fréttum sinum
öldungadeildarþingmanninn,
Henry Jackson sem sæti á i
varnarmálanefnd öldungadeild-
arinnar.
Það hefur lengi verið opinbert
leyndarmál að innan stjórnar-
innar hafa þeir Kissinger og
Schlesinger lengi glimt umvöld-
in. Ágreiningur þeirra um
mikilvæg stefnuatriði i utanrik-
is-og öryggismálum hefur verið
svo djúpur að það þykir furðu
sæta að þeir skuli hafa svo lengi
haft samleið án þess að til loka-
uppgjörs kæmi.
Schlesinger varnarmálaráð-
herra hefur verið eindreginn
talsmaður harðari afstöðu
gagnvart sovétstjórninni i and-
stöðu við tilslakanir Kissingers
og hlákutilraunir.
Dr. Kissinger hefur á meðan
legið undir gagnrýni fyrir að
njóta meiri áhrifa en Banda-
rikjamönnum þykir vera hollt
einum manni sem ekki situr i
forsetastóli. — Hann fer með
embætti utanrikisráðherra, er
ráðgjafi forsetans i öryggismál-
um, formaður öryggismálaráðs
stjórnarinnar og stýrir þar að
James Schlesinger, varnar-
málaráðherra: Beið lægri lilut i
valdataflinu við Kissinger.
auk 40 manna nefndinni sem
sett er yfir leyniþjónustuna
CIA. — Enginn maður annar i
Bandarikjunum á eins greiðan
aðgang að forsetanum og dr.
Kissinger.
Hann og Schlesinger hafa
Kissinger og Ford forseti: Eng-
inn hel'ur haft jafngreiðan að-
gang að forsetanum til þess að
haía áhrif á ákvarðanir hans og
dr. Kissinger.
Valdatafli þess-
ara óhrifamestu
embœttismanna
Ford-stjórnar-
innar lokið með
sigri Kissinger
lengi keppt um traust forsetans
og sýnist nú sem Schlesinger
hafi orðið undir i þvi valdatefli.
Þessar breytingar i stjórn-
inni, ef Jackson þingmaður fer
rétt með, eru raktar til andstöðu
þingsins við Kissinger sem
glöggt kom i ljós á föstudaginn
þegar leyniþjónustunefnd full-
trúadeildarinnar yfirheyrði ut-
anrikisráðherrann um störf
leyniþjónustunnar.
Kissinger var þar sakaður um
að hafa tekið lokaákvarðanir
um flestarþær ámælisverðu að-
gerðir leyniþjónustunnar sem
orðið hafa tilefni til rannsóknar
é. starfsháttum hennar. — I
sjálfsvarnarskyni upplýsti ráð-
herrann þá að í öllum slikum til-
vikum hefði Bandarikjaforseti i
gegnum árin lagt blessun sina á
myrkraverkin.
Þessi uppljóstrun kom eins og
reiðarslag á bandarisku þjóðina,
sem aldrei hefur mátt til þess
hugsa, að forsetar hennar, arf-
takar drengskaparmannsins
Georg Washingtons, hefðu ekki
óflekkaðar hendur. Þeir sem
gegnt hafa forsetaembættum
um árin hafa jafnan þvegið
hendur sina af aðgerðum leyni-
þjónustunnar með yfirlýsingum
um, að þeir hafi ekkert um þau
verk vitað. — Það hefur æ ofan i
æ vitnast, að leyniþjónusta USA
er ekki alltaf vönd að meðölum,
fremur en aðrar sambærilegar
stofnanir.
Þessar óstaðfestu fréttir um
mannaskiptin i stjórninni hafa
að vonum þegar vakið spurn-
ingar um hverjir muni taka við
þessum mikilvægu embættum.
Reuter-fréttastofan telur, að
George Bush, ambassador USA
i Peking, muni leysa William
Colby yfirmann CIA af hólmi.
Sömuleiðsis, að Brent Scowcroft
hershöfðingi verði formaður
öryggismálaráðsins en hann
þykir dyggur stuðningsmaður
dr. Kissingers sem setti hann i
starf Alexanders Haigs
hershöfðingja þegar Haig tók
við yfirmannsstöðu Nato-herj-
anna.
Juan Carlos, hinn nýi leiðtogi Spánar, sést hér kanna spænska varnar-
liðið i E1 Aaiun i spænsku Sahara.
Sortnar í
lofti yfir
V-Sahara
Kurt Waldhcim, framkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur
frestað fyrirhugaðri heimsókn
sinni til Kúbu til þess að gefa sig
allan að þvi að reyna að ná sam-
kontulagi i deilunni sem sprottið
hefur upp um spænsku Sahara.
Þykir heldur betur hafa sortnað
i lofti eftir að spænska stjórnin
lýsti þvi yfir, að hún mundi gripa
til örþrifaráða gegn hverju þvi
erlendu riki sem réðist inn i ný-
lenduna. — Þar með er ljóst að
hinn nýi leiðtogi Spánar, Juan
Carlos prins, vilar ekki fyrir sér
að beita hernum gegn gönguliði
Hassans Marokkókonungs sem
hinn siðarnefndi hyggst senda inn
i Sahara.
Hassan hefur eftir þessu yfir-
lýsingu Spánarstjórnar enn árétt-
að, að hann hviki ekki frá þvi að
send 350 þúsund manns fótgang-
andi inn i þetta fyrrverandi yfir-
ráðasvæði soldána Marokkó.
öryggisráð S.þ. fjallaði um
málið á þriggja stunda fundi i
gær, en þá var fundinum frestað.
Forseti ráðsins, Jacob Malik,
ambassador Sovétrikjanna, bað
meðlimi ráðsins að vera við þvi
búna að þurfa að koma saman
aftur i skyndi ef til tiöinda dragi i
Vestur-Sahara.
KSfu dómkirkjuna í
KSIn og stálu ómet-
anlegum verðmœtum
Borgarbúar stóðu
ólengdar aðgerð-
arlausir og köll-
uðust ó við þjófana
Tvennt togar á í hugum
manna í Köln eftir biræf-
inn þjófnað sem framinn
var í dómkirkjunni: að-
dáun á dirfsku þjófanna
og klifurfimi, og hins
vegar gremja yfir af-
skiptaleysi vegfarenda
og sauðshætti.
Eins og fjallgöngumenn með
reipi og kaðalstiga klifu þjóf-
arnir upp 44 metra hátt kirkju-
skipið i kvöldskugganum til
þess að komast inn um loftinn-
tak uppi á þaki. — Loftinntakið
lá inn i geymslu uppi á kirkju-
loftinu, þar sem varðveittir
voru mestu dýrgripir dómkirkj-
unnar.
Þar fylltu þeir sekki sina af
kirkjugripum og völdu úr kjör-
gripi úr gulli og silfri sem sumir
voru perlum og demöntum
skreyttir. Var það gifurlegur
auður sem þeir höfðu með sér i i
góðum málmum og eðalstein-
um, en mest eftirsjá er þó að
mörgum þessara gripa fyrir
þær sakir að þetta voru listmun-
ir, sumir frá 16. öld — ómetan-
legir til fjár.
lbúar i Köln sem voru á gangi
um lágnættið sáu þjófana tvo
Dómkirkjan i Köln
með eigin aukum klifra niður
þakið og kirkjuvegginn með
pokana á bakinu. — Enginn
hreyfði legg né lið til þess að
stöðva þá eða kalla til lögreglu.
,,Það er naumast maður trúi
þvi, en sumir þeirra sem
spankuleruðu þarna um hróp-
uðu hótfyndni til þjófanna eins
og þetta væri eitthvert sýning-
aratriði,” sagði einn lögreglu-
maðurinn sárgramur við frétta-
mann Reuters þegar lögreglan
kom á staðinn alltof seint og
greip i tómt.
Þjófarnir gerðu sér slikar
klyfjar úr gersemunum. að þeir
urðu að skilja innbrotsáhöld sin
eftir á staðnum. Sást hvar þeir
h'öfðu plokkað eðalsteina úr dýr-
lingamyndum. — Nú kviða
menn þvi að þjófarnir séu þegar
búnir að bræða þessa kostagripi
til þess að geta selt gullið og
silfrið án þess að það þekkist
aftur.
Lögreglan fékk siðust allra að
vita um innbrotið. Það var ekki
fyrr en 71 árs gamall nætur-
vörður kirkjunnar kvaddi hana
til. Hann taldi sig hafa hevrt
eitthvert þrusk inni i kirkjunni.
— En lögreglan varð að byrja á
þvi að leita uppi kirkjuþjóninn
til þess að fá kirkjulykilinn svo
að hún kæmist inn.
Umfangsmikil leit stendur nú
yfir. Erkibiskupinn i Köln hefur
boðið 50.000 marka laun fyrir
upplýsingar sem leitt gætu til
þess að þýfið finnist.