Vísir - 07.11.1975, Side 2

Vísir - 07.11.1975, Side 2
2 VtSIR. Föstudagur 7. nóvember 1975. vtentspro Fylgist þú með skák- mótinu? Droplaug Svavarsdóttir, vegfarandi: Ekki neitt, aldrei haft neinn áhuga á skák. Sigurður Simonarson, nemi: Voðalega litið. Ég tefli einstaka sinnum sjálfur. Geirlaugur Árnason, organisti: Ég hef fylgst með þvi i fréttunum. Ég vona að Friðrik komist á millisvæðamótið. Jón G. Hilmarsson, tré- smiður: Nei, ekkert fylgst með þvi. Sigríður Vilhjálmsdótt- ir: Alls ekkert. Ég fylg- ist litið með skák. Þórður Óskarsson, sál- fr.nemi: Nei, það hef ég ekki gert. Ég vona bara að Friðrik standi sig vel. LESENDUR HAFA ORÐIÐ i s|onvarpi Jón Jóhannesson skrifar: Ég ætla að byrja á þvi að þakka Visi fyrir góða og liflega iþróttasiðu, sem örugglega hef- ur hjálpað blaðinu mikið i hinni hörðu samkeppni að undan- fömu. Efniðerfjölbreytt og ekki ein- göngu um handbolta og fótbolta. tþróttaunnendur eins og ég hafa gaman af að lesa fréttir um aðr- ar iþróttagreinar, eins og til dæmis blak, karate, tennis, skauta, skiði, og fleira i þeim dúr. En hugmyndin hjá mér var ekki að skrifa um iþróttafréttir Visis. Þær eru nógu góðar. Það sem ég ætlaði að skrifa um eru iþróttafréttirnar i sjónvarpinu. Blaðrið i Bjarna og ómari Þær hafa verið ömurlega lé- legar á undanförnum árum, en eru nú víst eitthvað að skána, og er það vegna þess, að sjónvarp- ið er farið að fá efni frá danska og sænska sjónvarpinu. Þessar fréttir eru ágætar. Stuttar myndir og vel teknar. En það sem ég hef þó séð af þeim og öðrum fréttamyndum i iþróttaþáttum sjónvarpsins hafa þó verið stórlega skemmd- ar með kjaftagangi umsjónar- manna þáttanna, þeim Bjarna • Felixsyni og Ómari Ragnars- syni. Þeir eru blaðrandi i tima og ótima, og oftast um eitthvað sem ekkert skiptir máli. Mynd- irnar mundu njóta sin mun bet- ur ef erlendu þulirnir fengju að komast að fyrir þeim við og við. Það er allt i lagi að segja nokkur orð, svona til skýringar, en það er óþarfi að kjafta allt i hel. Þurfa að komast i kaffi! Annað sem mig langar til að ræða um er enska knattspyrn- an, sem hefur verið án efa vin- sælasta efnið i sjónvarpinu á undanförnum árum. Siðustu þættirnir hafa þó verið eyði- lagðir með þvi að klippa aftan af þeim viðtölin og siðari leikinn, sem alltaf hefur fylgt með. Ég veitekki hvað það á að þýða, þvi það hefur tekið litinn tima að sýna þá. Það eina sem mér dett- ur i hug er að sjónvarpsliðið þurfi að komast i kaffi áður en fréttirnar byrja klukkan átta á laugardögum. En er ekki hægt að sleppa þessum kaffitima og lofa fólki að sjá alla filmuna? Loks er það ein ábending til sjónvarpsins. Er ekki nokkur leið að fá að sjá glefsur úr leikj- um liðanna, sem islendingarnir leika með i Belgiu, Þýskalandi og Skotlandi. Þar eru einir átta af okkar bestu handknattleiks- og knattspyrnumönnum, og ég er viss úm að það yrði vinsælt efni ef sjónvarpið sýndi myndir af þeim. Erlendar myndir af islendingum Ég sá fyrir nokkrum dögum þegar ég var á ferðalagi um Þýskaland og Skofland, iþrótta- fréttir, þar sem meðal annars voru sýndir leikir þar sem is- lendingarnir voru að keppa, og voru þær mjög góðar, og mik- ilauglýsing fyrir ísland. Ég trúi þvi ekki að það sé ekki hægt að fá keyptar stuttar fréttamyndir frá til dæmis skoska og þýska sjónvarpinu, og einnig þvi belg- iska. Þessar myndir eru ekki notaðar aftur eftir eina sýningu, ekki frekar en islenskar frétta- myndir, og þvi ætti að vera auð- velt að fá þær fyrir litinn pening þegar þær eru orðnar gamlar. Þær geta verið jafngóðar fyrir það handa okkur Islendingum. Gaman væri að heyra svar sjónvarpsmanna við þessu, og að vita hversu hart þeir hafi lagt að sér til að ná I þessar myndir. Það getur ekki hafa verið mikil harka eða áhugi fyrst þær eru ekki komnar enn. Visir hafði samband við ómar Ragnarsson. Hann sagði að klippingin aftan af ensku knattspyrnunni stafaði einfald- lega af þvi að tfminn væri þrot- inn. Hins vegar hvað hann styttri leikinn stundum settan inn i fyrri þáttinn þ.e. milli 5 og 6.30. Varðandi kjaftavaðalinn sagði Ómar að ef þeir töluðu minna með myndunum fengju þeir upphringingar og ægilegar ákúrur frá áhorfendum þátt- anna. ómar sagði að vissulega hefði verið reynt að fá efni t.d. frá skotum og belgum en slikt væri hreint ekki eins auðvelt og fólk virtist halda. Of dýrt væri að kaupa heila leiki og ekki hlaupið að þvi að fá erlendar stöðvar til að senda glefsur úr leikjum, auk þess sem margt af þessu efni væri sent út beint erlendis og væri þvi ekki til á böndum. Leiðin til úrbóta væri að fá beina linu hingað, en þá þarf jarðstöð sem kostar nokkur hundruð milljóna. Þegar mikið er að gera hjá stöðvun úti fá is- lendingar þvert nei við ósk-, um um að efni sé tekið upp og sent. Skortur á skólatanniœknum: Vangefnu' bömum er vísað f rá „Okkur vantar sjö til átta tannlekna i viöbdt til aö geta sinnt fyllilega hlutverki okkar. Fimtn tannittknar hættu I fyrra, og ekki hefur tekist aö fyila I skarö þcirra." Þetta sagöi Óli A. Bieltvedt yfirskólatannleknir I Reykjavlk I viötaii viö VIsi I morgun. ' Hann sagöi, aö vegna þessa gstu skólatannlekningar Revkiavikur llkleca ekki sinnt aldrinum 6 til 15 ára. „Eldri'börnin veröa I vetur aö sekja til annarra' tannlækna I borginni. En Sjúkrasamlagiö greiöir aö sjólfsögöu tannviö geröirnar," sagöi Óli. Skortur á skólatannleknum hefur m.a. valdiö því aö þurft hefur aö vlsa vangefnum börn- um frá. Styrktarfélag vangef inna hefur bent foreidrum van- Hœttulegir ökumenn Meiri frœðslu í fjölmiðlanna Villandi fyrirsögn... Oli A. Bieltvedt hafði samband við blaðið og sagði að fyrirsögn i VIsi á þriðjudag gæti hafa virk- að villandi á einhverja af les- endum blaðsins. Með frétt um skólatannlækningar stóð fyrir- sögnin „Vangefnum börnum er vísað frá”. Til að forðast allan misskilning, skal tekið fram, að það er að sjálfsögðu ekki af mannvonsku sem vangefin börrj fá ekki tannviðgerðir hjá skóla- tannlæknum. Astæðan er fyrst og fremst sú að skólatannlækningar i Reykjavik anna ekki einu sinni þvi sem þeim ber skylda til, að gera við tennur allra skóla- barna á aldrinum 6 til 15 ára. Þvi er ekki smuga á að taka inn vangefin börn til tannviðgerða hjá skólatannlækningum. ,,jón” skrifar: Mikil alda umferðarslysa dynur nú yfir og flettir fólk varla blaði svo ekki sé sagt frá banaslysi i. umferðinni. Októ- bermánuðir hafa jafnan verið mestu slysamánuðirnir og er siðasti mánuður liklega með þeim verstu i fjöldamörg ár. Það kemur alltaf upp i huga manns hverjar séu ástæðurnar fyrir þessum slysum og hve lengi slepp ég. Ég segi það alveg satt að suma dagana þegar ég er á leið heim úr vinnunni verð ég að sæta lagi til að komast heim og mikið lifandis ósköp getur verið notalegt að sleppa inn I innkeyrsluna. Astæðurnar, það er nú það. Auðvitað verða menn aldrei sammála um þær en mig langar að nefna hér nokkur dæmi sem ég held að hljóti að verða þung á vogarskálinni: Ég held að á undanförnum ár- um hafi enginn umferðar- fræðsluþáttur verið i dagblöð- unum — enda þótt flest ef ekki öll blöðin hafi staðið opin fyrir slikum þáttum. Umferðarreglur ganga úr sér eins og aðrar reglur og verður að endurskoða þær með fárra ára millibili — jafnvel árlega. Þær reglur sem við þurfum að fara eftir i dag eru margar hverjar svo úreltar að útilokað er að fara eftir þeim. Og illt er þegar settar eru reglur til að láta brjóta þær. Hæfnispróf verður að taka upp eins fljótt og unnt er, og mæli ég með aðþeir sem að ekki standistprófiðfáimiða sem þær geti limt aftan og framan á blla slna sem á stendur: HÆTTULEGUR. Okumenn — þökkum guði fyrir þegar við erum komnir heim án þess að hafa lent i óhappi. Að lokum þetta: I sjónvarpi hefir verið þáttur um umferðar- mál sem hefir náð til mjög margra bilstjóra og t.d. er allt annað og mikið betra að aka Keflavikurveginn eftir að kennsla i notkun akstursljósa fór fram i þættinum. Visir vill I þessu sambandi benda á þátt um umferðarmál i blaðinu I dag. Meiningin er að gera eitthvað frekar i þessum málum á næstunni I blaðinu.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.