Vísir - 07.11.1975, Side 8
8
VÍSIR. Föstudagur 7. nóvcmber 1975.
Stœrsta einka-
verslun í eigin
húsnœði og
greiðir tekjuskatt
Vörumarkaðurinn hf. i
Reykjavik cr uú orðinn stærsta
einkaverslun i eigin liúsnæði á
islandi. Vcrslunin er nú að taka
i notkun (»00 lermetra viðbót við
inatvöruverslun á fyrstu hæð,
seni nú er oröin 900 fermetrar.
1 þessu nýja húsnæði verður
sérstök kjötdeild, þar sem fryst
og nýtt kjör verður selt i sjálf-
sölu. Þá er gert ráð fyrir mjólk-
ursölu. Þess má geta, að kæli-
og frystibúnaður vegna þessar-
ar viðbótar kostaði 15 milljonir
króna.
Xorskur sérfræðingur
innrétlaði
Norskur sérfræði'ngur frá
þarlendum kaupmannasamtök-
um var fenginn til að hanna inn-
réttingar og niðurröðun þeirra.
Tveir kæliklefar og einn frysti-
klefi eru til hliðar við verslun-
ina. Þar eru geymdir ávextir og
annar viðkvæmur varningur.
Þessir klefar voru keyptir til-
búnir og tók um 3 klukkustundir
að ganga frá hverjum eirra.
Steypiböð
fyrir starfsfólk.
Á jarðhæð verslunarinnar er
nú verið að ganga frá 500 fer-
metra verslun, þar sem verða
húsgögn og heimilistæki. Þar
verður einnig góð aðstaða fyrir
starfsfólk, meðal annars steypi
böð, sem er nýlunda i verslun
hérá landi. Þá verður bilastæð-
um fjölgað og hringakstur verð-
ur um húsið.
Mikil aukning hefur orðið i
allri verslun fyrirtækisins. Hef-
ur hún verið nærri tvöföld á
hverju ári, og á þessu ári hefur
orðið 92% söluaukning á mat-
vöru.
Stofnandi og eigandi verslun-
arinnar er Ebeneser Asgeirs-
son. Verslunin var opnuð 8.
september 1967, og var þá 100
fermetra matvöruverslun á 1.
hæð, Siðan var sú deild stækkuð
i 300 fermetra, opnuð var 500
fermetra deild með heimilistæki
á 2. hæð. Þar voru einnig seld
húsgögn. Þvi næst var opnuð 300
fermetra deild á 3. hæð, þar sem
seld hefur verið vefnaðar- og
gjafavara.
Kaupandi sparar
vinnuafl og peninga
Þegar Ebeneser opnaði Vöru-
markaðinn lagði hann áherslu
á, að hann myndi leggja minna
Myndin er af Kbeneser Ásgeirssyni i nýja hluta matvöruverslunarinnar, sem nú hefur verið tekinn i
notkun.
á vöruna en aðrar verslanir.
Ýmsir tóku þessu illa, jafnvel
forystumenn i yerslunarstétt.
Grundvöllurinn að hugmynd
Ebenesar var sá, að kaupandi
sparaði vinnuafl verslunarinnar
með þvi að afgreiða sig sjálfur
að verulegu leyti. Ebeneser seg-
ir, að á þennan hátt hafi verið
hægt að bjóða vöruverð, sem sé
að jafnaði 10% lægra en leyfi-
legthámarksverð. Veltuhraðinn
i versluninni sé það mikill að
laun starfsfólks séu 4% af heild-
arveltu. 1 öðrum verslunum er
þessi liður 10 til 12%. — Ebenes-
er þakkar einnig starfsfólki sinu
að verulegu leyti vöxt og við-
gang fyrirtækisins. Hjá honum
starfa um 30 manns, og flestir
hafa unnið frá byrjun.
Erfitt i byrjun
Ebeneser segir, að nýjung
hans i verslunarháttum hafi átt
erfitt uppdráttar fyrstu árin,
meðal annars vegna mikillar
andstöðu keppinautanna. Al-
menningur hafi litið hugsað um
vöruverð i góðærinu. Nú hafi
hins vegar orðið breyting á.
Skilningur hafi vaxið og mót-
mælaraddir hljóðnað.
Greiðir tekjuskatt
Ebeneser tekur fram, að
Vörumarkaðurinn sé ekki á
skrá yfir þau fyrirtæki, sem
ekki greiði tekjuskatt.
Blóma-
búð
I fjosi
Blómabúðin Alaska
opnar nýja verslun i
Breiðholti. Nýja
verslunin verður til
húsa þar sem var fjós
og hlaða gamla Breið-
holtsbæjarins meðan
þar var enn stundaður
búskapur.
Mikil vinna liggur að baki
þeim breytingum sem gerðar
hafa verið á húsinu. Verslunin
er á tveimur hæðum. Skipt
hefur verið um þak á húsinu
og veggir allir klæddir að
nýju.
Alaska hóf starfsemi sina
árið 1953. Siðan hefur rekstur-
inn tekið miklum breytingum.
1 nýju versluninni i Breiðholti
verða seldar gjafavörur og
blóm.
Alls munu vinna þar fimm
manns. Verslunarstjóri er
Aad Groeneweg. EKG
Selja nœr ein-
göngu norskan
varning
Ný verslun, sem ein-
göngu, eða nær ein-
göngu, verslar með
norskar vörur, var
opnuð um siðustu mán-
aðamót að Laugavegi
48 i Reykjavik. Henni
var gefið nafnið Norð-
foss, og er eigandi
samnefnt hlutafé-
lag . Forstöðumenn
verslunarinnar eru hjónin
Kristján Guðmundsson og Elsa
Baldursdóttir. 1 versluninni er
seldur norskur kristall og gler-
vörur frá þekktum norskum
framleiðendum og norskir grip-
ir úr messing og smiðajárni.
Einnig er á boðstólum keramik
og fleira.
A myndinni eru þau Kristján
og Elsa i nýju versluninni.