Vísir - 07.11.1975, Blaðsíða 10

Vísir - 07.11.1975, Blaðsíða 10
10 VISIR. Föstudagur 7. nóvember 1975. HVAR EIGA Við höfum litið haft af snjó að segja enn sem komið er. Hann hefur nú samt sem áður gert vart við sig, og ef að likum lætur verður ekki langt i það að allt verði hvitt. Það er vafamál að allir fagni snjókomunni. Það vill stundum bregða við að þeir fullorðnu bölvi og ragni. En sömu sögu er ekki að segja um krakk- ana. Þá loks gefst tækifæri til verulega skemmti- legra leikja. Þá er timi til þess kominn að draga fram skiði og sleða, þá er hægt að fara i snjókast og fleira mætti upp telja. En ekki gefst alltaf tækifæri til þess að fara út fyrir borgina með sleða eða skiði. Börnin reyna þvi að finna sér hentugar brekkur og staði til þess að renna sér á. Oft erú þessir staðir bara hreint ekki öruggir. Að komast langt og hratt............. Sleðinn skiptir barnið þó ef til vill minna máli en það að finna góðan stað, hæð eða bakka, þar sem hægt er að renna sér. Hafi börnin ekki sleða eða þotu til ráðstöfunar, þá renna þau sér bara eins og þau koma fyrir hverju sinni. Aðalatriðið er að komast langt og hratt. Ar hvert verða fleiri eða færri slys vegna sleða- ferða barna. Til að forðast slikt, og jafnvel koma i veg fyrir að dauði hljótist af sleðaferð, er einfald- ast að hugsa sem svo: Við verðum að neita börn- unum að renna sér á sleða. En flestir eru liklega sammála þvi, að slik ströng fyrirmæli eru neikvæð, og i sjálfu sér létt- væg lausn á þessu vandamáli. Sleðaferð er bæði heilbrigð og skemmtileg, það er að segja, þegar hún á sér stað i öryggi fyrir umferðinni. Börnin verða að fá að renna sér, en hvar? Samvinna foreldra, kennara og yfir- valda Markmiðið hlýtur að vera að útvega börnunum öruggan samastað til sleðaferða, nægilega trygg- an fyrir umferðinni, og þarf að takast þar um góð samvinna foreldra, kennara og yfirvalda. Aðalatriðið er að útvega börnunum annan stað en götuna til að renna sér á. Þvi næst að fá börnin til þess að nota hina tilteknu staði. Sem málamiðl- un mætti hugsa sér að banna umferð um vissar götur og vegi. Það er skylda samfélagsins að veita yngstu borgurunum sem besta vernd. Þvihefur lika verið beint til þeirra fullorðnu að láta samfélagið heyra frá sér, ef þeir vilji fá fram breytingar. Börn búa sér til dæmis til svell hvar sem þau finna hentugan stað til þess, og hvort sem þau eiga sleða eða ekki. Abyrgðin hvilir á þeim fulloðrnu, og þeir þurfa að vera vel á verði. Endar svellið úti á götu? Börn spyrja aldrei hvar öruggast sé að renna sér. Þau spyrja: Er fint svell hér? Ætli maður renni hratt? Sumum finnst það kannski ekki timabært að vera að fjalla um svell og snjó á meðan við finnum ekki verulega fyrir honum. En er ekki of seint að byrgja brunninn þegar barnið er dottið ofan i.? — EA mí&ms, Þýskt geim- líkan f tilefni 200 ára afmælis Bandarikjanna þann 4. júli á næsta ári, ætlar Þýska sam- bandslýðveldið að gefa banda- rikjamönnum þettá geimlikan, sem er af gerðinni Zeiss Model VI. Hún verður geymd i hinni nýju álmu bandariska geim- ferðasafnsins i Washington. Sýningarsalurinn verður 21 metri i þvermál og rúmar 250 manns i sæti. Á likaninu sjást um 8.900 stjörnur, sumar þeirra i eðlilegum litum, Vetrarbrautin, Stjörnuþokurnar i Magellan- merkinu, sautján sólkerfi, Orion og Andromeda, Sólin og tunglið, Merkúr, Venus, Mars, Júpiter og Satúrnus. Þetta nýja geimlikan frá Zeiss er svo nýlega tilkomið, að það hefur enn ekki verið sett upp I Evrópu. Hjálparsveitir hermannanna Strútarnir stóðust ekki frcistinguna, þegar hermennirnir voru á eftirlits- ferð um þjóðgarðinn i Nairobi. Góðir liðsinenn geta þeir þó tæplega talist, þvi þcir stinga hausnum i sandinn um leið og hættu ber að höndum. Mannfórnir g „Ég elska þig. Ég elska þig.” „Ég elska þig lika. Og ég elska barnið okkar.” Þetta voru siðustu orðaskipti rússnesks geimfara og eiginkonu hans. Orðin hljómuðu milli geims og jarðar i þeim mikla harmleik er var að gerast. Sovéski geimfarinn Vladimir Komarof barðist örvæntingarfullri baráttu við að ná aftur stjórn á geimfari sinu, Soyuz fyrsta, sem hrapaði stjórnlausttil jarðár. Hann fann dauðann nálgast. Eftir að kona geimfarans hafði rætt við hann fékk forsætisráð- herra Sovétrikjanna, Alexei Kosygin orðið. Og I Tyrklandi fylgdist einn sér- fræðinga bandaríkjamanna þar, Winslow Peck, með endalokum Komarofs i hlustunartækjum sin- um. Peck, sem nú er 28 ára, minnist enn þessa dags, 23. april 1967, er hann fylgdist með slysinu. „Við vorum að taka upp fyrir öryggisþjónustuna, aðeins venju- leg skyldustörf, og þá segir einn strákanna: „Hér er nú eitthvað. Þeir eiga i vandræðum með geim- far.” „Og það varð stoóugt ótrúlegra. Við vorum sem bergnumdir.” „1 fimm klukkustundir reyndu sovéskir geimtæknifræðingar að koma geimfarinu á rétta braut að nýju — að reyna að afstýra voðan- um”. „Komarof reyndi að framkvæma uppástungur þeirra, en kallaði aft- ur og aftur i örvæntingu: „Ég er að reyna, en það dugar ekkert.” „Komarof spurði oft: „Hvað er langt þangað til ég skell á jörð- ina?” Þeir gáfu honum það upp I klukkustundum og minútum. Það var næstum hægt að finna, hve hræddur hann var. Andrúmsloftið var rafmagnað.” Eftir þvi sem klukkustundirnar liðu, versnaði martröðin — og rússarnir náðu i konu Komarofs. 1 fyrstu virtisthún ekki vita, hve al- varlegtástandið var, þótt geimfar- inn gerði sér bersýnilega sjálfur grein fyrir þvi, að hann var dauða- dæmdur,” sagði Peck, sem yfirgaf flugherinn árið 1969, og gekk i þjón- ustu leyniþjónustunnar. „Siðustu tvær klukkustundirnar varð harmleikurinn hvað átakan- legastur. t::: : : ■ llin syrgjandi ekkja geiinfarans kyssir mynd hans, eftir að aska hans hefur verið múruð inn i veggi Kreml.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.