Vísir - 07.11.1975, Blaðsíða 17

Vísir - 07.11.1975, Blaðsíða 17
VtSIR. Föstudagur 7. nóvember 1975. 17 í PAG | í KVÖLD | í DAG [ Útvarp, kí. 22,15: Fyrsti leik- listarþáttur vetrarins... Leiklistarþáttur er á dagskrá útvarpsins i kvöld, og er það Sigurður Pálsson sem sér um þáttinn. Þetta er fyrsti þátt- urinn um leiklistarmál i vetur, en þátturinn verður á dagskrá hálfs mánaðarlega og tekur hálftima i hvert skipti. í þessum fyrsta þætti verður fjallað um verkefnaval Leik- félags Akureyrar, Þjóðleikhúss- ins og Leikfélags Reykjavikur á almanaksárinu 1975. Farið verður lauslega yfir það sem sýnt hefur verið og svo það sem sýnt verður fram til ára- móta. Þá verða viðtöl við leikhús- stjórana og gera þeir grein fyrir verkefnavalinu. „Þetta er svona almenn og litt nákvæm kynning á verkunum”, sagði Sigurður. t framtiðinni er ráðgert að i þættinum verði nákvæmari kynning á einstökum verkum og kaflar Ur þeim, umhugsunarefni i leiklistarmálum sem eru ofar- lega i umræðum, það sem er að gerast erlendis i leiklistarmál- um og eitthvað verður fjallað um starfsemi áhugaleikflokka. Þátturinn i kvöld er á dagskrá kl. 22.15. — EA. <1 Sigurður Pálsson sér um leiklistarþátt i útvarpinu i kvöld. Sá verður á dagskrá hálfsmánaðarlega. Útvarp, kl. 20,30: Keypti sinn fyrsta bíl á 1600 krónur Pétur Pétursson rœðir við Gunnar Ólafsson ökumann Ef bilstjórann vantaði, þá var allt ómögulegt, heitir þáttur i útvarpinu i kvöld. Pétur Pétursson útvarpsþulur ræðir þar við Gunnar Ólafsson ökumann. „Ég hugsa að bilstjórar hafi sérstaklega gaman af þvi að heyra Gunnar segja frá,” sagði Pétur þegar við höfðum sam- band við hann. Gunnar er nú á niræðisaldri, en hefur frá mörgu skemmti- legu að segja og segir hressilega frá. Hann var eini næturlæknabil- stjórinn i Reykjavik i áratugi, en fékk siðar mann með sér. Gunnar er útlærður húsgagna- smiður og keypti sinn fyrsta bil af húsgangasmið, sem var Kristján Siggeirsson. Bilinn keypti hann á 1600 krónur á striðsárunum fyrri. ' Gunnar vildi heldur vera á ferðinni heldur en að stunda húsgagnasmiðina eingöngu og hefur lent i ýmsu á ævinni. En meira um það fáum við að vita klukkan 20.20 i kvöld. — EA. Pétur Pétursson spjallar við Gimiiar ólafsson, ökuntann, i kvöld. „Ég liugsa að bilstjórar liafi sérslaklega gaman af þvi að lieyra Gunnar segja frá”, sagði Pétur. Sjónvarp, kl. 20,40: Reykingar, fiskverð og Ármannsfellsmólið — ó dagskró í Kastljósi í kvöld frystihúsanna og Ingólf Ingólfs- son sem á sæti i yfirnefnd verð- lagsráðs sjávarútvegsins. Kastljós er á dagskrá sjón- varpsins i kvöld. Umsjónar- ntaður að þessu sinni er Eiður Guðnason. Þrjú málefni verða á dagskrá, og er þá fyrst að nefna reyking- ar skólabarna. Rætt verður við unglinga sem reykja. Þeir verða meðal annars spurðir hvers vegna þeir reykja og af hverju þeir byrjuðu. í skýrslu frá borgarlæknisem- bættinu hefur meðal annars komið fram að niu ára börn eru byrjuð að reykja. Þá verður gerður samanburð- ur á fiskverði i Færeyjum og á tslandi. Fiskverð er miklu hærra i Færeyjum en hér og i þessu sambandi verður rætt við Eyjólf tsfeld Eyjólfsson for- stjóra Sölumiðstöðvar Hrað- Að lokum tekur Vilmundur Gylfason svo fyrir lyktir Ar- mannsfellsmálsins og ræðir i þvi sambandi við prófessor Ólaf Ragnar Grimsson m.a. um lög- gjöf i öðrum löndum um slik efni. Kastljós er á dagskrá klukkan 20.40. —EA — Skyldu sendiferöabilar matv.örufram.leiðenda ekki vera nteð talstöðvar til að geta jafnan feng- ið nýjustu fréttir af verðhækkununuin...??! SJÚNVARP • 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Pagskrá og auglýsingar. 20.40 Kastljós. Þáttur um inn- lend málefni. Umsjónar- maður Eiður Guðnason. 21.30 Saga loftskipanna. Sænsk mynd um ævintýra- legan þátt i loftferðasög- unni, sem virðist að fullu lokið. Þýðandi Hallveig Thorlacius og þulur ásamt henni Ingi Karl Jóhannes- son. (Nordvision — Sænska sjónvarpið). 22.25 Elmer Gantry. Banda- risk biómynd frá árinu 1960, byggð á sögu eftir Sinclair Lewis. Leikstjóri Richard Brooks. Aðalhlutverk Burt Lancaster, Jean Simmons og Arthur Kennedy. Aðal- persónan, Elmer Gantry, er bandariskur farandprédik- ari seint á öldinni sem leið. Hann er sjálfur meir en litið blendinn i trúnni, en predik- anir hans hrifa almenning með meiri krafti en hann gat sjálfan órað fyrir. Þýð- andi Jóhanna Jóhannsdótt- ir. Aður á dagskrá 17. ágúst 1974. 00.45 Pagskrárlok. ÚTVARP • 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „A fullri ferð” eftir Óscar Clausen Þorsteinn Matthiasson les (16) 15.00 Miðdegistónlcikar John de Lancie og Sinfóniu- hljómsveit Lundúna leika „L’Horologe de Flore” — „Blómaklukkuna” —, tónverk fyrir óbó og hljóm- sveit eftir Jean Francaix, André Previn stjórnar. Hljómsveit undir stjórn Stanley Black leikur „Spartacus”, balletttónlist eftir Aram Katsjatúrian. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphorn 17.10 Útvarpssaga barnanna: „Tveggja daga ævintýri” eftir Gunnar M. Magnúss Höfundur les (6) 17.30 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Þingsjá Kári Jónasson sér um þáttinn. 20.00 „Athvarf”, tónverk eftir Herbert H. Ágústsson við kvæðið „Sýn” eftir Jóhann Hjálmarsson (frumflutn- ingur). Sinfóniuhljómsveit Is.lands leikur. Einsöngvari: Elisabet Erlingsdóttir. Framsögn: Gunnar Eyjólfsson. Stjórn- andi: Páll P. Pálsson. 22.20 „Ef bílstjórann vantaði, þá var allt ómögulegt” Pétur Pétursson ræðir við Gunnar Ólafsson ökumann. 21.20 Kórsöngur Kór Howard-háskólans syngur amerisk trúarljóð. 21.30 Utvarpssagan: „Fóstbræður” eftir Gunnar Gunnarsson Jakob Jóh. Smári þýddi. Þorsteinn ö. Stephensen leikari les (12). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Leiklistarþáttur Umsjón: Sigurður Pálsson. 22.50 Skákfréttir. 22.55 Afangar Tónlistarþáttur i umsjá Ásmundar Jónsson- ar og Guðna Rúnars Agnarssonar. 23.45 Fréttir i stuttu máli Dagskrárlok.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.