Vísir - 26.11.1975, Blaðsíða 13
ivikudagi
Vilmundi vegnar
vel í Englandi
— Hann hefur verið mjðg sigursœll á skólamótum og
bœtir órangur sinn stöðugt I
Vilimiiidur Vilhjálmsson hefur
æl't sig mjög vel i Englandi i vctur
|iar sem liann stundar nti nám og
virftisl liklegur til stórafreka i
suina r.
liinn snjalli frjálsiþróttamaður
Vilmundur Vilhjálmsson úr KK
dvelur i Knglandi i vctur og
stundar nám við COLLEGE OF
EHUCATION i Loughborough.
Lætur Vilmundur vel af dvölinni
og segist stunda æfingar af kappi
samhtiða náminu sein sé æði
strembið.
„Æfingarnar hafa gengið mjög
vel,” sagði Vilmundur i viðtali
við Visi. „Veðrið hér hefur verið
mjög gott hiti og logn. En nú er
veðráttan að breytast, hann fer
kólnandi og rignir mikið. Ég bý
hér i hálfskritnu húsi — það er
hringlaga turn, sem er 21 hæð og
heitir East Tower, þar sem við
búum, en West Tower þar sem
kvennavistin er. Maturinn er
sæmilegur, en þó finnst mér
heldur mikið lagt upp úr þvi að
fylla mann af „Chips”. Ég fæ
tvöfaldan matarskammt
(v/iþróttanna) en það dugar ekki
til og ég rnalla' mér oftast fjórðu
máltiðina i eldhúsi sem við höfum
hér á hæðinni.”
Vilmundur sagði að hann hefði
litið keppt, þvi að hann hefði
meiri áhuga á að stunda
æfingarnar. bó hefði hann keppt á
þrem mótum i haust.
„Fyrsta mótið var skólamót og
setti ég nýtt skólamet
(COLLEGE og UNIVERSITY) i
40 m hlaupi, hljóp best i fjórum
hlaupum á 4.5 sekúndum. Þá
keppti ég i kúluvarpi og varð
annar — kastaði 15 m og i
stökkunum, þristökki,
fjórstökki og fimmstökki sam-
fætis, varð ég fyrstur.”
Næst tók Vilmundur þátt i móti
i Cosford. bar er stærsta innan-
húss-hlaupabraut i Bretlandi og
keppti Vilmundur i 60 m hlaupi.
„Ég var taugaóstyrkur og þjóf-
startaði”, sagði Vilmundur.
„Siðan komu þrjú þjófstört i
viðbót,” en að lokum fórum við af
stað, ég var seinn upp, en vann
vel i lokin og kom fyrstur i mark
á 7.0 sekúndum”. Um helgina
keppti svo skóli Vilmundar við
CAMBRIDGE UNIVERSITY og
keppti hann i fjórum 40 metra
hlaupum og voru gefin stig eftir
röð 4-3-2-1. Vilmundur fékk 16
stig, sigraði i öllum hlaupunum
og jafnaöi skólamet sitt i siðasta
hlaupinu — hljop þá á 4.5 sekúnd-
um.
Næsta mót hjá Vilmundi verður
•ekki fyrr en um miðjan desem-
ber. Þá ætlar hann að hlaupa 400
metra á stóru brautinni i Cos-
ford. -BB.
Celtic
topaði í
Birmingham
Jóhannes Eövaldsson og félag-
ar hjá Celtic léku vináttuleik I
gærkvöldi við 1. deildarlið
Birmingham á St. Andrews leik-
vellinum i Birmingham.
Ekki tókst leikmönnum Celtic
sem best upp og urðu að sætta sig
við að tapa 1:0, þó svo að þeir
ættu mun meira I leiknum. Mark
Birmingham skoraöi Trevor
Francis um miðjan siðari hálf-
leik.
Hvað geta danir nú lœrt
af okkur í handbolta?
Ilandknattleikssambaud
Islands hélt í gær hlaöamanna-
fund þar sem landsliö tslands I
handknattleik sem leikur viö
Luxcmborg i undankcppni
Olympiuleikanna á sunnudag-
inn var tilkynnt.
Er þaö skipað eftirtöldum
leikmönnum: landsleikjafjöldi
fyrir aftan i sviga. Markveröir:
ólafur Benediktsson Val (45),
Guðjón Erlendsson Fram (6) og
Gunnar Einarsson Haukum
(24). Aðrir leikmenn eru: Páll
Björgvinsson Vikingi (12),
Viggó Sigurðsson Vikingi (5),
Björgvin Björgvinsson Fram
(71), Hörður Sigmarsson, Hauk-
um (22), Ingimar Haraldsson,
Haukum (3), Stefán Gunnars-
son, Val (33), Árni Indriöason,
Gróttu (9), ólafur H. Jónsson
Dankersen (85), Axel Axelsson,
Dankersen (48) og Jón Karlsson
Val (21). Kemur Jón i stað
Einars Magnússonar, Ham-
burger SV, sem er illa meiddur
á fingri (tvibrotinn) og mun
hann ekki leika handknattleik
næstu vikurnar.
beir Ólafur 'II. Jónsson og
Axel Axelsson munu halda strax
utan aftur að leik loknum við
Luxemborg og verða þeir ekki
með i landsleikjunum gegn
norðmönnum 2. og 3. desember.
Gunnar Einarsson fær ekki leyfi
frá félagi sinu Göppingen, en
Ólafur Einarsson er vænlan-
legur á sunnudaginn og mun
hann verða með i leikjunum
gegn norömönnum.
Fyrr má nú rota
en dauðrota
Enn eru þeir HSt menn við
sama heygarðshornið og hrósa
sér upp I hástert fyrir góöan
undirbúning landsliðsins og I
íréttatilkynningu frá samband-
inu segir m.a.i
„Nokkuö hefur verið deilt á
Handknattleikssambandíð fyrir
undirbúning, sem landsiiðið
hefur fengið og fær fyrir
Olympiukeppnina, en við viljum
halda fram, að hann sé eins og
best verður á kosið. Eitt blað
hérlendis kallar undirbúning
okkar hlægilegan, en á sama
tima skrifar Politiken, að is-
lendingar hafi gefið dönum
fyrirmynd hvernig undirbúa
eigi þeirra lið”.
Fyrr má nú rota en dauðrota.
HSI fór þess á leit við danska
handknattleikssambandið i
haust að það útvegaði islenska
liðinu æfingaaðstöðu og bað
jafnframtum landsleik. Þessari
beiöni uröu danir óðar við þeir
komu á „turneringu” með þátt-
töku tveggja sterkra 1. deildar-
liöa auk landsliða tslands og
Danmerkur. Ætli það sé ekki
nær að halda að blaðið sé að
skamma danska handknatt-
leikssambandið fyrir að það
skulu vera islendingar sem áttu
upphafið, en ekki danir?
Hvaö geta danir lært?
Ef við litum á undirbúning is-
lenska liðsins fyrir landsleikinn
við Luxemborg á sunnudaginn,
þá er hann þessi: Þrjár æfingar
eöa æfingaleikir þar sem
næstum allir leikmenn liösins
veröa samankomnir.
Fyrir landsleikinn gegn
júgósiövum er undirbúningur-
inn þessi: Tveir landsleikir við
norðmenn 2. og 3. desember, en
þvi miöur vantar okkur þá þrjá
lykilleikmenn — Ólaf H. Jóns-
son, Axel Axelsson og Gunnar
Einarsson. Svo mun landsliðið
halda til Danmerkur og dvelja
þar i æfingabúðum i viku og
leika sex erfiða leiki, sem er
lokaundirbúningurinn.
Ef við miðum undirbúning
okkar við undirbúning
júgóslava, þá er hann „hlægi-
legur”, þvi aö júgóslavar hafa
núveriðnæstumheilu ári fyrr tii
aö gera landslið sitt sem best úr
garði. llafa þéir engu til sparaö
og færa heilu mótin til — ef þess
þykir þörf. Er nema von að
manni sé spurn: Hvað skyldu
danir geta lært af undirb'úningi
okkar? — BB.
Aðeins sjö mœttu!
Nú liafa farið fram tvær
la ndsliðsæfingar fyrir
væntanlegan landsleik við
Luxeinborg i bandknattleik á
sunnudaginn, en þær liafa
báðar oröið að litlu gagni
vegna þess bvc fáir lands-
liðsincnn mættu.
Á mánudaginn var fyrsta
ælingin og inættu þá átta
landsliðsmenn. i gær var svo
aftur ælt, en þá inættu aðeins
sjö, þar af tveir markverðir.
Lék landsliðið þá æfingaleik
við IK og varð aúnar mark-
vöröurinn, Guðjón Erlends-
soii að leika sem linumaður
til að fylla upp i.
Engin æfing verður i
kvöld. en fyrirbugaö er að
liala þrjár æfingar til viöbót-
ar. á fiinintudag, föstudag og
laugardag. V'eilir af?
— BB.
Viðskulum lála þetta '
nægja Tommy....eg hef ekki
áhuga a ah hitta þig framar,
t>ú verhur að afsaka þaðl/
s* Kemur
mer sérlega
vel fröken!
. nóvember 1975.
VISIR
VÍSIR
Miðvikudagur 26. nóvember 1975
Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn B
mm
Koland Collombin er al'tur kominn i lið Sviss eftir að liala verið Irá keppni allt siðasta keppnistimabil. Hann
segist ætla að taka beimsmeistaratitilinn af Franz Klammer frá Austurriki i bruni, og það eru margir sem
spá þvi að lionum takist það i vetur.
Thoeni á eftir meti Jean Killy
Heimsbikarkeppnin á skíðum hefst í Val d'lsere í nœstu viku
og allir bestu eru mœttir í slaginn
ítalski skiðakappinn
Gustavo Thoeni, sem er
álitinn besti skiðamaður i
heiminum i dag, fær
tækifæri til að sýna það og
sanna, að hann tilheyri
mestu skiðamönnum allra
tima i hinni hörðu skiða-
keppni sem hefst i næsta
mánuði og nær hápunkti
sinum með Vetrar-
Ólympiuleikunum i Inns-
bruck í febrúar n.k.
Thoeni segist ætla að gera eins vel
og frakkinn Jean-Claude Killy, og
verða þannig annar maðurinn, sem
hlýtur heimsbikarinn og þrjú gull-
verðlaun á Olympiuleikum á sama
árinu.
Thoeni, sem er 24 ára gamall,
stendur á hátindi frægðar sinnar —
eins og Kelly var árið 1968 og austur-
rikismaðurinn Toni Sailer árið 1956
— þegar þeir sigruðu i svigi, stór-
svigi og bruni á OL.
Thoeni hefur þegar unnið heims-
bikarinn fjórum sinnum, og hann
hefur einnig unnið tvenn gullverö-
laun á Ólympiuleikunum. En hann
vonast til að ná enn meiri frægð með
þvi að sigra i heimsbikarkeppninni,
sem hefsti Val d’Isere þann 3. des.
n.k. og mun einnig spanna yfir
Olympiuleikana — áður en þeim
lýkur i Kanada 8. mars á næsta ári.
Klammer tromp
Austurrikis i bruni
Hvort sem draumar Thoeni rætast
eða ekki — og þvi búast sérfræðingar
varla við — þá er eitt vist um þessa
keppni: — austurrikismenn munu
ekki einkenna hana i eins rikum
mæli og áður.
Svigkapparnir itölsku báru sigur
úr býtum yfir austurrisku skiða-
mönnunum fyrir tveim árum, og
þegar Anne-Marie Moser-Proell —
fimmfaldur sigurvegari i heims-
bikarkeppninni — ákvað að draga sig
i hlé, var stórt skarð höggvið i raðir
austurriskra skiðakvenna.
Með Proell hafa austurrikismenn
ekki einungis misst mikinn skiöa-
kappa,heldureinnigmikla uppörvun
og stoð öðrum skiðamönnum Austur-
rikis.
Það er ekki vitað um neinn, sem
boðlegur er í hennar sæti og með
þeirri vitneskju hafa austurrikis-
menn hafið æfingar miklu fyrr en
vanalega, til þess að reyna að finna
annan afburðamann.
En þeir hafa eitt gott tromp á
hendinni, F’rans Klammer, sem er
snillingur i bruni, og er liklegur til að
verða Thoeni mjög skæður keppi-
nautur.
,,Sprengjan Collotnbin”
aftur með i ár
Afturför austurrikismanna getur
liklega valdið þvi að nýir og efnilegir
skiðamenn koma fram, og ætti þvi
heimsbikarkeppnin i ár að geta
orðið mjög spennandi.
Lið Sviss ætti eflaust að vera
sterkast, en þar eru margir skiða-
menn á heimsmælikvarða, sem biða
eftir sæti á olympiuliðinu. En sviss-
neskir iþróttafrömuðir telja það ólik-
legt, að þeir muni endurtaka sömu
afrekin, og á vetrarólympiuleikun-
um i Sapporo fyrir fjórum árum.
Lið þeirra mun eflast mjög, þegar
gamli heimsbikarhafinn i bruni,
Roland Collombin bætist i hópinn,
eftir að hafa verið ófær til keppni
siöan i fyrra, eftir. meiðsli er hann
hlaut i fyrstu keppninni. Collombin
sem hlaut silfurverðlaun á OL i
Sapporo ætlar sér fyrst og fremst að
ná heimsmeistaratitlinum ibruni frá
Frans Klammer.
Nú þegar „sprengjan Collombin”
— eins og hann er kallaður — er
mættur til leiks að nýju — ásamt
Bernard Russi, Walter Westi,
Philipe Roux og Rene Berthod — eru
svisslendingar taldir sigurstrangleg-
ir i bruni, þótt itölsku meistararnir i
sömu grein — Erwin Stricker og
Herbert Plank — geti orðið þeim
hættulegir.
Stenmark og Haker
geta sett strik
í reikninginn
Svisslendingar eru ekki jafn-öflug-
ir i svigi karla, en italir virðast hins
vegar hafa þar ótakmarkaðan fjölda
skiöafólks i heimsklassa — Thoeni,
Piero, Gros og Paolo di Chiesa ættu
að geta tryggt yfirburði itala i þeirri
grein, en sviinn Ingemar Stenmark
og norðmaðurinn Erik Haker, geta
þó komið i veg fyrir algjört „ein-
veldi” þeirra.
Svissnesku stúlkurnar Lise-Marie
Morerod, Marie-Therese Nadig og
Bernadette Zurbiggen, eru taldar
öruggar með að halda nafni Sviss á
lofti meðal kvenfólksins.
Frakkar eru þvi eina þjóðin, sem
getur komið fram með fólk sem jafn-
fært er i öllum greinum, að austur-
rikismönnum, itölum og sviss-
lendingum frátöldum.
Aðrar þjóðir geta aðeins státað af
sérhæfðum einstaklingum — Cindy
Nelson frá Bandarikjunum, Betsy
Clifford frá Kanada, Stenmark
Sviþjóð, Haker, Noregi, Christa
Zachmeister frá V-Þýzkalandi og
Jan Bachleda frá Póllandi.
En lokakeppnin um gullverðlaun i
Innsbruck og Kristalsheimsbikarinn
mun standa á milli örfárra karl-
manna og kannski tylft kvenna. -klp-
Guxtavo Thoeni ætlar ekki að ráðast
á garöinn, þar sem hann er lægstur i
vetur. Ilann ætiar að leika sama
lcikinn og Jean-Claud Killy — taka
hcimsbikarinn og þrjú gull á
olympiuleikunum i Innsbruck.
RE YKJ AVÍKU RMÓTIÐ
í BLAKI Á FLAKKI!
Allt í handaskolum með mörg mót þar sem nýja íþróttahúsið
við Hagaskólann hefur enn ekki verið afhent
Drátturinn á afhend-
ingu á hinu nýja íþrótta-
húsi Hagaskólans, sem
átti að vera tilbúið fyrir
a.m.k. tveim mánuðum,
Júgóslavar
sigruðu
Júgóslavneska liðið Mladost
sigraði i Evrópukeppni hikarhafa
isundknattleik, með þvf að sigra i
4ra liða úrshtum keppninnar,
sem háð var í Júgóslaviu og lauk
um helgina.
t síðasta leiknum lék Mladost
við hollenska liðið Neptun og
sigraði 8:3, en hafði I leiknum þar
á undan sigrað ungverska liðið
DSC Budapest 6:3.
Everton
úr leik!
Everton tapaði mjög óvænt 2:0
fyrir 2. deildarliði Notts County i
deildarbikarkeppninni i gær-
kvöldi. Leikið var á heimavelli
Notts County, Meadow Lane i
Nottingham. Leikmenn Notts
County léku mjög vel i gærkvöldi
og verðskulduðu fyllilega að sigra
i leiknum. Notts County leikur
gegn Newcastle á útivelli i undan-
úrslitunum.
Nokkrir leikir voru leiknir i
Englandi i gærkvöldi og urðu úr- slit þeirra þessi: Deildarbikarinn
Notts County—Everton Bikarkeppnin 2:0
Millwall—Yeovil Town 2:2
Rochdale—Workington 2:1
Swindon—N e wport C 3:0
Þá kemur frammistaða Yeovil
Town i bikarkeppninni á óvart.
Yeovil — sem leikur utan deilda
— hefur oft staðið sig með mikl-
um ágætum i bikarkeppninni og
var liðið óheppið að ná aðeins
jafntefli við Millwall i gærkvöldi.
Eftir venjulegan leiktima var
staðan jöfn 2:2 og þá framlengt i
2x15 minútur. t framlengingunni
sótti Yeovil mun meira og voru
leikmenn liðsins óheppnir að
skora ekki. T.d. bjargaði varnar-
maðurinn Barry Kitchener, eitt
sinn á undraverðan hátt á mark-
linu, þegar ekkert virtist geta
komið i veg fyrir mark og mark-
vörðurinn viðs fjarri. — BB.
Perú hafði
sigur í
þriðju lotu
Það þurfti þrjá leiki til skera úr
um, hvaða þjóð sigraði I
Suður-Ameriku keppni landsliða i
knattspyrnu, sem er með svipuðu
sniði og Evrópukeppnin.
Til úrslita léku Perú og
Columbia og endaði fyrri leikur-
inn, sem fram fór I Perú með sigri
heimamanna 2:0, en sá siðari
með 2:0 sigri Columbiu.
Þriðja leikinn þurfti þvf til og
fór hann fram i Caracas að við-
stöddum 80.000 áhorfendum, sem
fengu þar að sjá stjörnu Perú frá
siðustu heimsmeistarakeppni —
Hugo Sotil — skora eina mark
leiksins. — klp
hefur komið illa við
iþróttastarfsemina hér i
Reykjavik að undan-
förnu.
Við sögðum frá þvi á laugar-
daginn, að handknattleiksmenn
hefðu orðið að flýja með Reykja-
vikurmótið i yngri flokkunum
suður I Garðahrepp!! Nú er þvi
allt komið i óefni i körfuboltan-
um, þar sem margir leikir voru
ákveðnir i hinu nýja húsi um
þetta leyti.
Blakmenn hafa einnig komist i
vandræði með sina örfáu leiki i
Reykjavikurmótinu, sem áttu að
fara fram i Hagaskólanum —
samkvæmt skránni átti úrslita-
leikurinn að vera þar i gærkvöldi.
Þeir hafa orðið að taka til þess
ráðs að koma leikjunum fyrir i
æfingatimum félaganna úti um
bæ, og hafa náð að skipta við
ýmsar aðrar deildir til að koma
þeim fyrir. Fyrstu leikirnir i
Reyk javikurmótinu verða i
Réttarholtsskólanum i kvöld. Þar
leika fyrst f S —Þróttur i
kvennafiokki og strax á eftir lið
frá sömu félögurn i karlaflokki
Hefst fyrri leikurinn kl. 20,45.
Þá hefur þeim tekist að fá tima
i tþróttahúsi Kennaraháskólans
annað kvöld og leika þar fyrst
kvennalið Vikings og Þróttar og
siðan karlaliðin. Hefst fyrri leik-
urinn um kl. 21.30, þannig að
karlaleikurinn verður þá að öll-
um likindum hálfgerð miðnætur-
skemmtun. Ekki hefur enn tekist
að fá tima fyrir þriðja og siðasta
leikkvöldið — leiki Vikings og 1S
— enblakmenn gera sér vonir um
að finna einhvers staðar lausa
tima i næstu viku fyrir þá. —klp
sjávarfréttir
SJAVARFRETTIR
sérrit sjávarútvegsins
Sjávarfréttir eru nú orðnar þrefalt útbrciddari en nokkurt annað
blað á sviði sjávarútvegs og fiskiönaöar, enda leitast blaðið viö
að Ijalla uin málefni liðandi stundar og framtiðarinnar, til
gagns fyrir aðila i þessum greinum.
i 5. tbl. seni nýlega koni út, eru m.a. hringborðsumræður um
stööu fiskveiðimála okkar i dag. Þar ræðast við Björgvin
Gunnarsson, bátaskipstjóri, Már Elisson, fiskimálastjóri, Jó-
liann K. Simonarson, togaraskipstjóri, Guðni Þorsteinsson,
fiskifræöingur og ólafur Karval Pálsson, fiskifræðingur.
i tilefni útfærslu landhelginnar er rætt við Helga Hallvarösson,
skipherra, um mannlega hlið gæslustarfanna. Sagt er frá nýjum
lausfrystitækjum hér, þeim einu á landinu. Fjallað er um mis-
munandi gæði fisks eftir árstimum og veiðisvæðum. Grein er
um lifsferil hringorms. Leiðbeiningaþáttur cr fyrir verðandi sjó-
inejin. Sagt er frá sjávarútvegssýningunni I Leningrad i sumar.
Greint frá starfseini Slysavarnafélags tslands. Erlendur frétta-
og upplýsingaþáttur er i blaöinu. Sagt er frá nýrri islenskri
sjávarisvél, nýjum öryggisútbúnaði. Sagt frá skipasmiðum
Bátalóns o.fl.
Sjávarfréttir koma út annan hvern mánuð.
Sjávarfréttir bjóða yður velkomin i hóp fastra áskrifenda.
Til Sjávarfrétta. Laugavegi 178, pósthóif 1193,
Itvik. óska eftir áskrift.
Nafn
lleimilisfang
Siini
sjóvarfréttír
L_
Laugavegi 178
Símar 82-300
og 82-302