Vísir - 26.11.1975, Blaðsíða 24
vísm
Miðvikudagur 26. nóvember 1975
VARÐSKIP’
IN HALDA
ÁFRAM AÐ
KLIPPA OG
SUNDRA
HÓPNUM
Ekki eru raunir breskra togara
úr sögunni þótt freigáta sé komin
þeim til verndar. Ægir klippti á
báða togvira eins Grimsbytogar-
ans i gærkvöldi, fyrir framan nef
ið herskipinu og þrem dráttarbát-
um.
Annað varðskip sundraði hópi
niu togara sem voru að veiðum út
af Langanesi. Togararnir hættu
veiðum þegar varðskipið kom á
vettvang, og eftir nokkurt þóf
skiptu þeir sér f tvo hópa. Héldu
fjórir þeirra suðurum en fimm
norðurum.
Jón Magnússon talsmaður
Landhelgisgæslunnar sagðiVisii
morgun að stórtiðindalaust hefði
verið á miðunum i nótt. Hinsveg-
ar eru þar togarar, herskip,
dráttarbátar og svo varðskip sem
aðeins biða færis til að beita
klippunum. Það er þvi litil hætta
á að lognmolla sé framundan.
— ÓT
Skora á alla
að taka sér
frí á morgun
Samstarfsnefnd um verndun
landhelginnar, en aðilar að henni
eru ASÍ, Sjómannasamband ts-
lands, Verkamannasamband ts-
lands, Farmanna- og fiskimanna-
sambandið og Félag áhuga-
manna um sjávarútvegsmál,
ásamt fulltrúum þingflokka
Alþýðubandalagsins, Alþýðu-
flokks og Samtakanna, hafa beint
þeim tilmælum og áskorun til
landsmanna að þeir taki sér fri
frá störfum á morgun, til að
leggja áherslu á andstöðu sina
gegn hverskonar samningum við
erlendar þjóðir um veiðiheimild-
ir.
Nefndin hefur einnig boðað til
útifundar á Lækjartorgi á morg-
un klukkan 2.
■ '
Leopard
er aamail
kurniincfi
Freigátan Leopard er
„gamali kunningi” Landhelgis-
gæslunnar. Hún kom hingað i
.siðasta þorskastriði ásamt fleiri
fleytum úr siglingaklúbbi
Nelsons lávarðar. Freigátan er
vopnuð fjórum stórum fallbyss-
um. Hlaupvidd þeirra er þó sem
betur fer ekki tæpir þrir metrar
eins og segir i Morgunblaðinu.
Leopard er um 2500 lestir að
stærð, og i áhöfn hennar eru
fleiri menn en starfa fyrir is-
lensku Landhelgisgæsluna til
sjós og lands, að simastúlkunni
meðtalinni. Freigátan er ivið
hraðskreiðari en stóru islensku
varðskipin en ekki nærri nærri
eins snör i snúningum enda
rúmlega 100 fetum lengri.
Þessimynd afhenniar tekin
i siðasta þorskastriði, og er hún
að ösla upp að hliðinni á Ægi.
-ÓT.
„Hœttulegt að hafa hita-
poka í gangi án gœslu"
liitapokinn sem kviknaði I um helgina, liklega vegna þess að hann bil
aði og yfirhitnaði. Hann hafði verið skilinn eftir i sambandi án eftirlits
smiA iul MiTi—A mjbbuh stað.
OG VBU HAMH GEGM UIA OG SVTTA T. D. HD
VATMSHKLDU VKHL
CJBTA SKAL ÞESS. AS HANN SÉ KUI LKNGI 1
SAHBAJQH ÁM GÆZLU.
KKKI HÁ BKJÓTA EÐA VKTJA HANM SAMAM,
MCGAA HAMN KK í NOTKTJN. OG KKKI UA 8TJNCA
1 HANN NÆLUM KÐA PBJÓNUM.
Þessi miði fylgir
öllum latinagns-
hilapokum, sem
Halfanga-
prófunin hefur
viðurkennt.
VISIR
VANN
GERÐAR-
DÓMSMÁLIÐ
Gerðardómur i deilu Vlsis
og Dagblaðsins um viðskipta-
kjör I Biaðaprenti var birtur i
morgun. Niðurstaða gerðar-
dómsins er sú að Iteykjaprent
hf. fyrir hönd dagblaðsins Vísis
eigi að njóta viðskiptakjara
samkvæmt samþykktum Blaða-
prents.
1 ágústmánuði siðastliðnum
kröfðust aðstandendur Dag-
blaðsins þess að blað þeirra yrði
prentað i Blaðaprenti i stað
Visis. Samkomulag náðist milli
aðila 8. september um að leggja
ágreininginn fyrir gerðardóm.
Blaðaprent samþykkti fyrir sitt
leyti að prenta bæði blöðin þar
til niðurstöður gerðardómsins
lægju fyrir.
t forsendum gerðardómsins
segir m.a., að fjögur dagblöð
séu sérstaklega nafngreind i
þeim grundvallarskjölum, sem
Blaðaprent er reistá, þ.e. sam-
starfsyfirlýsingu, stofnsamn-
ingi og samþykktum, og sé dag-
blaðið Visir eitt þeirra auk Al-
þýðublaðsins, Timans og Þjóð-
viljans. Samkvæmt stofnsamn-
ingi eigi dagblaðið Visir rétt til
prentunar i Blaðaprenti. Þá
segir i forsendum dómsins að i
félagssamþykktunum sé tiltekið
að sömu viðskiptamenn og rétt
eiga til prentunar samkvæmt
stofnsamningi skuli njóta tekna
umfram arðgreiðslur i hlutfalli
við viðskipti þeirra við Blaða-
prent. Með hliðsjón af þessu
féllst gerðardómurinn á þá
kröfu Reykjaprents, að Visir
ætti rétt til viðskiptakjara sam-
kvæmt samþykktum Blaða-
prents.
1 gerðardómnum áttu sæti:
Stefán Már Stefánsson, settur
prófessor, Arnljótur Bjömsson,
prófessor og Guðmundur Jóns-
son borgardómari. Lögmaður
Reykjaprents var Jóhannes
L.L. Helgason hrl. en lögmaður
Dagblaðsins hf. var Magnús
Óskarsson hrl. — ÞP.
Kviknaði í einum sem
hafði verið skilinn
eftir eftirlitslaus
„Þaö er full ástæða tii að vara
fólk við notkun rafmagnshita-
poka. Þetta eru hættuleg tæki ef
ekki er rétt farið með þá”.
Þetta sagði Magnús Guð-
mundsson, forstöðumaður Raf-
fangaprófunar Rafmagnseftir-
iits rikisins i viðtali við Visi i
gær.
Um helgina kviknaði i raf-
magnshitapoka á heimili i
Kópavogi. Hann var skilinn eftir
i sambandi uppi i rúmi. Svo
virðist sem hitaliðir sem
tempra rafstrauminn hafi bilað,
og pokinn yfirhitnað. Talsvert
logaði i rúminu, þegar að var
komið. Snögg viðbrögð unglings
piits a heimilinu komu i veg
fyrir stórtjón.
Varasamt aö
hafa hitapoka í
gangi án gæslu
„Mjög varasamt er að hafa
rafmagnshitapoka lengi i gangi
án gæslu,” sagði Magnús
Guðnason.
„Nokkrar meginreglur gilda
um notkun þeirra, og nauðsyn-
legt að fólk fari eftir þeim.
Fyrst og fremst má aldrei
skilja poka eftir i sambandi án
þess að eftirlit sé með honum
haft. Þá er lika varasamt að
mjög veikt fólk hafi hitapoka,
án gæslu, sérstaklega ef stillt er
á mesta hita. Ég hef heyrt dæmi
þess að fólk hafi hlotið bruna-
sár, af þvi að það hafði ekki
rænu á að slökkva á hitapokun-
um.
Ekki má brjóta saman hita-
pokana eða vefja þá saman,
meðan þeir eru 1 sambandi.
Ekki má heldur vefja neinu utan
um þá”, sagði Magnús.
Hættulegt að svitna
meö hitapoka
Hann sagði ennfremur að
hættulegt gæti verið, ef fólk
svitnaði mikið með hitapoka á
sér. „Þeir eru fæstir rakaheldir.
Ef raki kemst i pokana, geta til
dæmis hitaliðir bilað. Þá halda
pokarnir áfram að hitna, og það
geturendað með þvi að kviknar
i þeim”.
Magnús sagði að gömlum og
slitnum pokum væri hættara við
bilunum en nýjum.
Eitt dauðaslys hefur orðið,
þar sem grunur leikur á að poki
hafi bilað og kviknað i rúmi út
frá honum.
„Það er alls ekki æskilegt að
fólk sofi með rafmagnshita-
poka, til þess eru hætturnar of
margar”, sagði Magnús.
— ÓH |
Brjósta-
haldara
stolið fró
nektar-
dansmey
Brjóstahaldara var
stolið frá dönsku
nektardansmeynni,
Mariu Teresu, í Hlé-
garði fyrir helgi.
Að afloknu stripiatriðinu
hverfur hún af sviðinu smá-
stund og skilur fötin eftir
liggjandi á gólfinu. Mikill
fjöldi unglinga var i Hlégarði
þetta kvöld, og hefur einhver
þeirra notað sér tækifærið
meðan Maria Teresa fór a£
sviðinu, og stolið brjósta*
haldaranum. Einnig var stolið
jakka.
Siðari fréttir af fötunum eru
þær að unglingur i leigubil var
að gorta af því að hafa framið
þetta „afrek”.
Ekki er hægt að sýna
nektardans án fata! svo að
Maria Teresa varð að fara á
stúfana, til að finna svipað
efni til að sauma ný brjósta-
höld. Það tókst, en auðvitað
eru gæði nýju fatanna ekki
þau sömu og hinna.
Umboðsmaður hennar bað
Visi að koma þvi á framfæri
að sá sem stal fötunum, skili
þeim aftur.
— ÓII
Flugur
og
brennivín
Fyrir nokkru fór kona i eina
af versiunum Afengis- og
tóbaksverslunar rikisins og
Ijárlesti i einni flösku af is-
lensku brennivini. Flaskan
var sett i poka og konan setti
liana i geymslu er heim kom,
ætlaði aö opna hana við.gott
tækil'æri.
Þegar liún svo ætlaði að
gripa til flöskunnar sá hún, að
i henni var lirúga af dauðum
llugum. Konan vildi nú leita
rcttar sins, hafði samband við
vcrslunina og sagði farir sinar
ekki sléttar. Henni var bara
sagt að koma með flöskuna,
iiún lcngi aðra hreinni i stað-
inn. Lengra náði það ekki. En
eiltlivað er lireinsun á flöskun-
um ábótavant.
Á myndunum má sjá
flugnagcrið i flöskunni, og
skýrt skal tekið fram að tapp-
inn cr ólireyíður.