Vísir - 06.12.1975, Blaðsíða 1
VISIR
G5. árg. — Laugardagur 6. desember 1975. — 277. íbl.
t , ..>——— ....... s
Að tjó sig ó myndamóli
Hrafn Gunnlaugsson stingur upp á því i ,/Flug-
unni", að myndmál verði notað í ríkara mæli fyrir
fólk til að setja fram hugmyndir sínar. Notkun
kvikmynda til að tjá sig nær oft betur tilgangi sín-
um en notkun orða, segir Hrafn.
Auglýsingar
á strœtó
„Þessar auglýsingar eru til
reynslu til að byrja með. Það á
eftir að fá mat hjá stjdrn SVR á
þetta, áður en ákveðið verður
hvort byrjað verður að selja aug-
lýsingar á strætisvagna”, sagði
Eirikur Asgeirsson, forstjóri
Strætisvagna Reykjavikur, I Við-
tali við Visi i gær.
Vegfarendur og strætófarþegar
ráku upp stór augu i gær, þegar
þeir sáu stórar auglýsingar frá
Landsbankanum á nokkrum
strætisvögnum. Erlendis er mjög
algengt að hafa auglýsingar á
strætisvögnum, en hefur aldrei
tiðkast hér fyrr. En nú á sem iagt
að prófa þetta. Fyrir þessar aug-
lýsingar má hafa dágóðar tekjur,
og veitir vist ekki af fyrir SVR,
sem sifellt þarf á miklu fé að
halda til að sinna þjónustu sinni
við borgarana.
— ÓH/Ljósm. Visis: Jim
BERJAST
GEGN NIÐURRiFI
KRISTJANÍU
1. april á næsta ári á að rifa niður Kristjaniu i Kaupmannahöfn.
ibúar þar mótmæla nú hástöfum þessari ráðstöfun, og segjast
ekki geta lifað utan fririkisins.
— sjá' bls. 5.
ÁGREININGURINN
VIÐ ÞJÓÐVERJA
ER EKKI LEYSTUR
Nú er deilt um bílastœði!
I
I
i
i
i
i
i
B
i
I
i
íbúar Hólavallagötu i
Reykjavik hafa nýlega
sent borgarráði bréf.
Kvarta þeir yfir þvi að
vestur-þýska sendiráð-
inu er ætlað bilastæði við
vestanverða Hólavalla-
götu á horninu við Tún-
götu.
Kemur þar tvennt til. Ibúarnir
eru óánægðir með að bilastæðið
sé á þessum stað. Einnig segja
þeir að of mörgum bilum sé lagt i
stæði þessi svo að örtröð myndist.
Þær upplýsingar fengust frá
Reykjavikurborg að umferðar-
deildin hefði þetta mál til at-
hugunar og meðferðar.
KEA er þegar búið
að sœkja um versl-
unarióðina umdeildu
Umsókn lögð fram um leið og óhóðum
kaupmanni var synjað í annað skipti
Kaupfélag eyfirðinga
er þegar búið að sækja
um verslunarlóðina um-
deildu i Hliðarhverfi á
Akureyri, þvert ofan i
það sem Valur Amþórs-
son, kaupfélagsstjóri,
sagði Visi siðastliðinn
miðvikudag. Beiðnin frá
KEA lá fyrir þegar i sið-
asta mánuði, en var þó
ekki lögð fram fyrr en
óháðum kaupmanni
hafði tvivegis verið
synjað um afgreiðslu.
Samþykkt og fellt
Upphaf málsins var að Þor-
bérgur ólafsson, kaupmaður,
sótti um lóð undir matvöru-
verslun i nýju ibúðahverfi sem á
að risa rétt utan við Glerárhverf-
ið. Hann fékk vilyrði hjá bygg-
inganefnd en umsókn hans lenti
útaf dagskrá á bæjarstjórnar-
fundi.
Forseti bæjarstjórnar er Valur
Arnþórsson, kaupfélagsstjóri.
Þetta var 12. nóvember og daginn
eftir itrekaði Þorbergur umsókn
sina til bygginganefndar, sem
aftur gaf vilyrði.
Aftur fellt
Þann 19. nóvember kom málið
aftur fyrir bæjarstjórn en þá fékk
það ekki afgreiðslu vegna þess að
borin var fram tillaga þess efnis
að stefnt skyldi að þvi að
verslunarlóðir yrðu hér eftir aug-
lýstar lausar til umsóknar. Einn
flutningsmanna var kaupfélags-
stjóri KEA. Það hefur ekki verið
venja til þessa að auglýsa
ver.slunarlóðir sérstaklega á
Akureyri.
KEA sækir um
Þar með var umsókn Þorbergs
aftur „frestað”. Hins vegar sendi
KEA þennan sama dag umsókn
um lóðina umdeildu. Sú umsókn
verður væntanlega tekin fyrir á
næsta fundi bæjarstjórnar hinn
16. þessa mánaðar.
— ÓT.
Slappað af eftir bálið
— Þá er þessari viðureign lokið. En hvenær kemur að þeirri næstu? Það veit eng-
inn, svo það er bara best að vera öllu viðbúinn.
Þessir þrír slökkviliðsmenn slöppuðu af smástund eftir viðureign við eld sem
kom upp í skúr í Kópavogi um hádegisbilið í gær. Glatt logaði í skúrnum, og fékk
slökkviIiðið lítið við ráðið. Skúrinn brann að mestu leyti. Eldurinn kom upp i hádeg-
inu, þegar enginn var við. — ÓH/Ljösm. Vísis: BG
— EKG