Vísir - 06.12.1975, Blaðsíða 15
VISIH/Laugardagur 6. desember 1975.
15
Leikarar á Norðurlöndum hræðast Bengt Jahnsson.
Hann efast um
leikhœfileika
Liv Ullmann
Hún
er
eini
vinur
Bron
Charles Bronson,
hæstlaunaðasti leikari
heims, getur leyft sér
að gera kröfur þegar
hann leikur i kvik-
mynd. Vissulega gerir
hann það. Ef hann þarf
að taka þátt i ástarat-
riðum, vill hann sjálfur
ákveða hver mótleikari
hans er. Bronson vill
ekki koma nálægt
neinni konu nema eig-
inkonu sinni.
Hronson leikur ekki i ástaratriðum nema með konuna sina sem
mótleikara.
Eins og stendur leika þau
saman i kvikmyndinni „Frá há-
degi til kl. 2”. Bronson leikur
þar forhertan bankaræningja en
Jill Ireland, kona hans, leikur
blásaklausa ekkju sem þvælist
fyrir honum i þann mund sem
hann tekur við fjárfúlgunni hjá
gjaldkeranum.
Bronson vill lifa i friði og ró og
er meinilla við alla blaðamenn.
Hann hefur einu sinni haft við
þá viðtal. Þar útskýrði hann,
hvers vegna hann væri dulur.
„Þegar ég var 9 ára gamall
seldi móðir min mig bónda frá
Ungverjalandi. Ég þrælaði fyrir
hann i fimm ár og talaði ekki við
nokkurn mann. Ég gleymi þvi
aldrei...”
Jill Ireland og C. Bronson
giftust fyrir tólf árum þegar
hann vann sem i ihlaupaleikari i
Hollywood. Nú hefur hann rif-
andi tekjur.
Þetta er fáránlegt starf en
óneitanlega vel borgað segir
Bronson.
Kjarnorku-
stöðvum
fjölgar
ört
Arið 1985 munu kjarnorku-
stöðvar geta annað helmingi
orkuþarfar Vestur-Þýskalánds.
Þetta er markmiðið með orku-
áætlun Bonnstjórnarinnar sem
gerð var i kjölfar oliukreppunn-
ar áriö 1973. Til þess að mæta
þessu verður að byggja fjörutiu
kjarnorkuver á komandi ára-
tug, til viðbótar þeim tiu, sem
nú þegar starfa.
Hvort sem mönnum likar bet-
ur eða ver, þá er kjarnorka að
vinna sér stöðugt meira fylgis út
um allan heim. Samningur sá,
sem vestur-þjóðverjargerðu viö
brasiliumenn um byggingu
kjarnorkuvera er næstum eins
og dropi i hafið sé litiö á hann i
alþjóðlegu samhengi. 1 lok fyrra
árs voru 163 kjarnorkuver i
notkun um allan heim, og 32 til
viöbótar voru annað hvort i
smiöum eöa nýpöntuð.
Bandarikin eiga flestar kjarn-
orkustöðvar og munu liklega
halda því sæti i fyrirsjáanlegri
framtið. Helmingur kjarnorku-
vera i heiminum er i Bandarikj-
unum, og það hlutfall er áætlað
munu haldast. Vestur-Þýska-
land er i fjórða sæti, en mun
lenda i öðru sæti þegar þær
sextán stöðvar sem áætlað er að
byggja á næsta áratug, verða
fullgerðar.
Bráðum koma
blessuð jólin...
Aðventan er hafin og senn liður að jólum. t gamla daga var að-
ventan i hávegum höfð, sem undirbúningur undir hina miklu jóla-
hátið, en gamlar hefðir devja ört og fátt eftir sem minnir á mikil-
vægi aðventunnar. Aðventukransinn er eitt af þvi fáa. hann er
einvinsælasta jólaskreytingin i Norður-Evrópu og sést viða i kirkj-
um, dagstofum. skrifstofum og búðum. Það er almennt talið að hefð
þessi hafi myndast i skóla i Hamborg um 1860. — Englaspilið til
hægri er allmiklu eldra.
Skilningsríkur dómari
Innbrotsþjófi nokkrum, sem
er það sem kallað er „sibrota-
maður”, var nýlega sleppt fyrir
tilstilli dómara, svo hægtyrði að
lækna hann af þessari áráttu
með dáleiðslu.
Dómurunum var skýrt frá
þvi, að innbrotsþjófurinn, David
Brown, 36 ára, hafi byrjað að
brjótast inn i hús, vegna þess að
söknuður hans hafi verið svo
mikill, eftir að heimili hans
brann. A sex árum framdi hann
um 200 innbrot, og var fyrir það
dæmdur i þriggja ára fangelsi.
Brown hlaut þriggja ára skil-
orösbundinn dóm, en hann fær
nú meðferð sálfræðings, þar eð
dómararnir álitu hann „þess
mjög þurfandi”.
Ég hef aldrei borgað neitt
meö jafn mikitli ánægju sagði
Ingimar Bergman þegar hann
greiddi 140 þús. kr. I skaðabætur
fyrir að hafa slegið leikhús-
gagnrýnandann Bengt Jahnsson
niður.
Bergman lamdi hann duglega
— og borgaði siðan „reikning-
inn”.
Bengt Jahnsson, sem hefur
verið leikhúsgagnrýnandi Dag-
ens Nyheters i 10 ár, lætur þétta
ekkert á sig fá.
Jahnsson er mikilsvirtur
gagnrýnandi hjá stærsta blaði
Skandinaviu og hann nefnir
hlutina sinum réttum nöfnum
þegar hann skrifar gagnrýni
sina.
Henning Moritzen sá um upp-
setningu leikritsins „Pygmal-
ion” þar sem Liv Ullmann
leikur aðalhlutverkið. Bengt
Jahnsson klipur ekki af þvi i
skrifum sinum um leikritið.
Hannsegir að framlag Moritzen
sé glappaskot — algjört glappa-
skot og hann efar að Liv Ull-
mannhafi nokkra leikhæfileika.
Erland Josephson, sem sjón-
varpsáhorfendur þekkja úr
„þættir úr hjónabandi” leikur i
Pygmalion og hann fær lika sinn
skammt. Hann er einskisnýtur
gutlari, segir Johnsson.
Norðurlandabúar kalla
Jahnsson mannætuna. Hann er
ósköp venjulegur maður i útliti
og ekki truflar of mikill hár-
vöxtur heilastarfsemina. Johns-
son er múrarasonur frá Uppsöl-
um, meðlimur jáfnaðarflokks-
ins, lektor i sænsku og sögu og
leikhúsgagnrýnandi siðan 1965.
Hann er mest umtalaði mað-
urí Sviþjóð fyrir utan Olav
Palme auðvitað og að lokum
hefur hann ótrúleg áhrif á allt
leiklistarlif á Norðurlöndunum.
Liv UHmann og Henning Moritzen fá lélega dóma fyrir þátttöku
sina i „Pygmalion”.