Vísir - 06.12.1975, Page 11

Vísir - 06.12.1975, Page 11
Laugardagur (>. desember 1975. VISIR BLAA LAUFIÐ STOÐST PRÓFIÐ EN NÁKVÆMN- ISLAUFIÐ FÉLL... Nú dregur til úrslita i sveita- keppni Bridgefélags Reykjavik- ur og er aðeins einni umferð ólokið. Sveit Stefáns komst á toppinn eftir stórsigur gegn sveit Helga, en sveit Hjalta, félagsmeistar- arnir, réðu ekki við sveit Jóns, íslandsmeistarana. bað er ekki algengt, að á öðru borðinu séu spilaðir fjórir, en hinu sjö. Það kom samt fyrir i leiknum milli sveita Stefáns og Helga. Staðan var allir á hættu og suður gaf. A G-7-6-5-3 V A-K-D-10-8-7 ' ♦ enginn * K-5 * D-9 V 9-5-3 * D-9-7-6 * 10-6-4-3 4 A-8-4 V G-2 ♦ A-K-G-4-3-2 * A-G A K-10-2 y 6-4 ♦ 10-8-5 + D-9-8-7-2 Sveit Stefáns er efst hjá Bridgefélagi Rvíkur Að sex umferðum loknum er sveit Stefáns orðin efst i sveita- keppni Bridgefélags Reykjavikur. Orslit einstakra leikja f sið- ustu umferð voru þessi: Jón — Hjalti 19—1 Stefán — Helgi 20-^3 Einar — Alfreð 19—1 Benedikt — Gisli 20-r5 Gylfi — Lárus 20—0 Birgir — Ólafur H. 20-h5 Gunngeir — Ólafur V. 10—0 Esther — Þórður 11—9 Þórir — Gissur 15—6 1. Sveit Stefáns Guðjohnsen 91 stig 2. Sveit Einars Guðjohnsen 90 stig 3. Sveit Jóns Hjaltasonar 81 stig 4. Sveit Hjalta Eliassonar 76 stig 5. Sveit Gylfa Baldurssonar 74 stig 6. Sveit Benedikts Jóhannssonar 67 stig 7. Sveit Birgis Þorvaldssonar 63 stig 8. Sveit Gunngeirs Péturssonar 58 stig I næstu umferð, sem jafnframt er úrslitaumferðin, spila sam- an m.a. sveitir Stefáns og Gylfa, Einars og Jóns, Hjalta og Bene- dikts, Birgis og Gunngeirs. Fjórar efstu sveitirnar eiga ennþá möguleika á þvi að vinna mótið, en besta möguleika á Guðjohn- sen. Spilað er á miðvikudögum i Domus Medica. Frá sveitakeppni BR. Sveit Helga Jóhannssonar að spila við sveit Einars Guðjohnsen. Talið frá vinstri: Helgi Sigurðsson, Þorgeir Eyjólfsson, Helgi Jónsson. Hinn kunni handknattleiksmaður Guð- mundur Sveinsson snýr baki i ljósmyndarann. I opna salnum sátu með n-s spilin Guðmundur Sveinsson og Þorgeir Eyjólfsson. Þar var Precision sagnserian þannig: Suður Norður 1* 2* 2 V 2G 3 A 3G 4 V P Mér er ekki full-ljóst hvor á sökina, en alla vega á suður fyr- ir einni sögn i viðbót. t lokaða salnum sátu með n-s spilin Hallur Simonarson og Simon Simonarson. Nú var það Bláa laufið og það stóðst prófið: Suður Norður 1 * 2G 2 ♦ 3 V 4 + 4* 5G 7¥ Enginn vandi var að vinna al- slemmuna, þvi að aðeins þurfti að trompa tvo tigla. Það er at- hyglisvert, að engin leið er að vinna sex spaða, sem hæglega gæti orðið lokasamningur. Af- gerandi er, aö noröur tekur strax þá stefnu að týna spaða- litnum, ef makker getur ekki sagt hann. Reykjavíkurmeist- aramótið hefst í dag i dag kl. 13,30 hefst Reykjavikurmót i tvimenning og er spilað í Domus Medica. Rétt tii þátttöku hafa 28 pör — tuttugu og sjö úr undankeppni sem er nýlokiö og núverandi Reykjavikurmeistar- ar Stefán Guðjohnsen og Slmon Simonarson frá Bridgefélagi Reykjavikur. Úrslit undankeppni urðu annars þessi: 1. Gylfi Baldursson — Sveinn Helgason BR 395 Ásmundur Pálsson — Hjalti Eliasson BR 380 Guðmundur Sveinsson — Þorgeir Eyjólfsson BR 379 Guðlaugur R. Jóhannsson — Orn Arnþórsson BR 376 Daniel Gunnarsson — Steinberg Rikarðsson BR 375 Jón Ásbjörnsson — Sigtryggur Sigurðsson BR 374 Guðjón Kristjánsson — Þorvaldur Matthiasson BDB 373 Sigurður Sverrisson — Sverrir Ármannsson BR 356 Jóhann Jónsson — Þráinn Finnbogason BR 356 Hörður Arnþórsson — Þórarinn Sigþórsson BR 353 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. Ólafur og Vigfús efstir hjú TBK Hjá Tafl- og bridgeklúbbnum stendur vfir jólatvímen»ings- keppni og er staðan þessi cftir fyrstu umferð: Ólafur Lárusson — Vigfús Páls- son 215 Sigurjón Tryggvason — Sig- tryggur Sigurðsson 209 Bragi Jónsson — Dagbjartur Grimsson 197 Hilmar Ólafsson — Ingólfur Böðvarsson 193 Gisli Viglundsson — Þórarinn Árnason 183 Hrafn Gunnlaugsson skrifar SNÆLDA Fyrir tveim árum kastaði ég fram gamalgrónu islensku orði, sem þýðingu á kassetu — hér á ég við orðið snælda. Siðan hef ég séð orðið á við og dreif á prenti i þessari merkingu. Hugmyndin byggir á þvi að snældan snýr upp á sig þræði og sama gerir kassetan. Snældan sem eitt sinn var hluti i lifi flestra heimila, er nú orðin rykfallið safnorð, en gæti fengið nýtt lif með breyttri merkingu. Það væri gaman að heyra skoðun málvisindamanna á þessari hugdettu. Að tjó sig Sú var tiðin, að lestur og rit- mál voru einkaeign hástétt- anna. I dag er lestrarnám og skriftigerð skylda i uppeldi hvers einstaklings. Ritmálið hefur smám saman orðið eign allra þjóðfélagsþegna. En rit- málið er aðeins eitt af tján- ingarformum mannsins, hljóð og mynd eiga einnig sitt mál. Þvi miður er myndmálið samt enn einkaeign örfárra einstakl- inga og stofnana. Hér ræður stöðnuð hefð. bvi ekkert er auð- veldara en að læra þetta mál og beita þvi. Myndmálið teygir sig inn á æ fleiri svið og viða erlendis hafa menntaskólar tekið upp mynd- málið sem valgrein. Allt stefnir að þvi, að innan fárra ára þyki jafn sjálfsagt að geta sett fram hugmyndir sinar i mynd og i orði. Æskulýðsráð og æskulýðs- samtök hafa forystuhlutverki að gegna i þessu máli og eiga að efna til námskeiða i 8 mm kvik- myndun og beitingu myndmáls- ins. Tjáning flestra manna er rig- bundin við orðið, enda hafa allar aðstæður miðast við það. Áþreifanlegt dæmi um þetta eru islensk sjónvarpsleikrit. Höf- undum hættir til að hugsa ein- ungis i orðum en ekki athöfnum. Hér erum við komin að kjarna málsins: myndmálið getur sýnt athafnir sem orðið nær aldrei að lýsa. 1 heimi aukinnar tækni er myndmálið oft hentugra til kennslu en talað eða ritað orð. Myndin ryður sé æ viðar til rúms innan skóla og mennta- stofnana. Hingað til hefur sá mikli kostnaður er fylgir kvikmynd- um háð framsókn myndmáls- ins. Framfarir á þessu sviði hafa hins vegar orðið glfurlegar á fáum árum. Mjög ljósnæmar filmur, fullkomnar smámynda- vélar og ný hljóðsetningar- tækni, hafa lækkað kostnaðinn margfalt. Það er ekki meira fyrirtæki að eiga góðan 8 mm útbúnað en fullkomið segul- band . Myndmáliö á að verða eign allra og islenska sjónvarp- inu er i lófa lagt að flýta fyrir þeirri þróun, ef vilji er fyrir hendi. Til allra Erlendis er mjög algengt, að útvarpsstöðvar kaupi upptökur á útvarpsefni frá sjálfstæðum einkaaöilum og sendi það meðal fastra dagskrárliða. A siðustu árum hafa komið á markaðinn ódýr segulbönd, sem uppfylla öll þau skilyrði um hljóðgæöi sem útvarp gerir til talaðs máls og einfaldari tónflutnings. Sænska útvarpið hefur fastan þátt á dagskrá sinni, sem nefn- ist Bandet gat, en þar eru ein- ungis spiluð hljóðbönd, sem fólk sendir inn jafnt frá landsbyggð- inni sem borgunum. Hér er um að ræða útvarpsefni, sem unnið er á mjög ólikar gerðir segul- banda, allt frá fullkomnum stereoböndum til einfaldra snældurokka (kassetubanda). Þátturinn nýtur mikilla vinsælda, enda afkvæmi fólks- ins sjálfs. Auk þess kaupir sænska út- varpið inn stærri þætti og flytur þá á dagskrá sinni. Fram- leiöendur þáttanna fá þá greitt visst gjald fyrir upptökuna. 1 þessu felst um leið mikill sparn- aður, þvi stór hluti i útgjöldum hverrar útvarpsstöðvar er rekstur upptökuherbergja. Islenská rikisútvarpið berst i bökkum vegná húsnæðisleysis og ónógra upptökuherbergja. Það ætti þvi að standa þvi miklu nær en þvi sænska að reka dag- skrárpólitik er miðaðist við að örva sjálfstæða framleiðslu á efni fyrir utan veggi stofnunar- innar sjálfrar. Slikt yrði lika til að veita gamalgróinni dagskrá og stirðnuðum formum strangt og heilsusamlegt aðhald. En til að þessi hugmynd verði að veruleika þarf að hleypa af stokkunum sérstökum þætti. þar sem veittar yrðu almennar upplýsingar um upptökutækni mismuriandi hljóðnema. ólikar gerðir hljóðbands. segulbands- tæki, hljóðstyrkleika o.s.frv. Útvarpið þyrfti að koma sér upp fullkomnum snælduútbúnaði (kassetutækjum) og kynna sið- an fyrir hlustendum hvernig hægt er að vinna efni á snældur. Liklega þyrfti árs undirbún- ing til að hleypa af stokkunum þætti, sem byggist eingöngu á innsendum upptökum. en aðal- atriðið er. að nú þegar verði hafinn undirbúningur sliks þátt- ar og aö útvarpið endurskoðaði dagskrárpólitik sina með tilliti til þess að örva einstaklinga til sjálfstæðs framtaks á sviði upptöku og dagskrárgerðar.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.