Vísir - 06.12.1975, Qupperneq 16
16
Laugardagur 6. desember 1975. VISIR
n □AG | D KVÖLD | Q □AG | U KVÖLD | Q □AG |
Sjónvarp, laugardag kl. 18,30:
Stigamannaforinginn
Þátturinn i dag um Dominik ævintýrum og hrakningum.
heitir stigamannaforinginn. Þátturinn er fyrir börn og ung-
Minnisleysið háir honum enn. linga en margur fullorðinn mun
örlar aðeins fyrir smáglætu af og örugglega tylla sér fyrir framan
til vegna atburða liðandi stundar. sjónvarpið kl. 18.30 i dag og fylgj-
Á leið sinni aftur til fyrri vitundar ast af áhuga með rás viðburða.
lendir hann i hinum óliklegustu_— VS
Sjónvarp, sunnudag kl. 18,00:
STUNDIN OKKAR
Efni stundarinnar er fjölbreytt að vanda. Fyrst er mynd um úllu
litlu, þá ævintýri bangsans Misha i fjölleikahúsinu og þvi næst söngur
um dýr.
Rafeindaheili kemur I heimsókn til Mússa og Hrossa, Hinrik og
Marta fara I eldspýtnaleik og Guðmundur Einarsson segir söguna af
miskunnsama samverjanum.
Að lokum er svo viðtal við stráka, sem gefa út blöð I tómstundum sin-
um. -VS
SJÓNVARP •
Laugardagur
6. desember 1975.
17.00 tþróttir. Umsjónarmað-
ur Bjarni Felixson.
18.30 Dóminik. Breskur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. 4. þáttur. Stiga-
mannaforinginn. Þýðandi
Ellert Sigurbjörnsson.
19.00 Enska knattspyrnan.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
C 20.25 Oagskrá og auglýsingar.
20.35 Læknir i vanda. Breskur
gamanmyndaflokkur. Þýð-
andi Stefán Jökulsson.
21.00 James Durst. Bandariski
visnasöngvarinn James
Durst syngur og leikur
undir á gitar. Kynnir er
Arni Johnsen. Stjorn upp-
töku Tage Ammendrup.
21.30 Machbeth Leikrit eftir
William Shakespeare. Leik-
stjóri er John Gorrie, en
aðalhlutverk leika Eric
Porter, Janet Suzman og
John Alderton.
Textahöfundur Dóra Haf-
steinsdóttir. Leikritið er alls
ekki við hæfi barna.
23.40 Pagskrárlok.
Sunnudagur
7. desember
18.00 Stundin okkar. Fyrst er
mynd um Crllu litlu, þá æv-
intýri bangsans Misha i fjöl-
leikahúsinu og þvi næst
söngur um dýr. Mússa og
Hrossi fá rafeindaheila i
heimsókn, Hinrik og Marta
fara I eldspýtnaspil, og Guð-
mundur Einarsson segir
söguna af miskunnsama
samverjanum. Loks er við-
tal við stráka, sem gefa út
blöð I tömstundum sinum.
Umsjónarmenn Hermann
Ragnar Stefánsson og Sig-
riður Margrét Guðmunds-
dóttir. Stjórn upptöku
Kristin Pálsdóttir.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Dagskrá og auglýsingar
20.35 Það eru komnir gestir.
Indriði G. Þorsteinsson ræð-
ir við Guðmund Danielsson
og Guðmund G. Hagalin um
ævi þeirra og starf. Stjórn
upptöku Tage Ammendrup.
21.35 Valtir veldisstólar.
Breskur leikritaflokkur. 5.
þáttur. Siðasti keisarinn.
Alexander 3. Rússlands-
keisari deyr árið 1894, og
Nikulás sonur hans tekur
við völdum. Hann er
skemmtilegur maður og
skyldurækinn, en veikgeðja
og gersamlega ófær um að
gegna hlutverki einvalds.
Hann hefur trúlofast Alex-
öndru, þýskri prinsessu,
gegn vilja föður sins. Þegar
kemur að krýningu Nikulás-
ar, gerirhann brúðkaup sitt
til hennar. Þýðandi Óskar
Ingimarsson.
22.30 Skemmtiþáttur Tommy
Steeie. Tommy Steele syng-
ur og dansar og bregður sér
Iýmis gervi. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
23.20 Að kvöldi dags. Séra
Hreinn Hjartarson I Fella-
sókn flytur hugvekju.
23.30 Dagskrárlok
Sjónvarp, sunnudag kl. 22,30:
þáttur
Tommy
Steele
Tommy Steele er ennþá i fullu
fjöri. Á sunnudagsk völd
skemmtir hann okkur i fimmtiu
miniítur, syngur og dansar og
bregður sér I ýmis ger/i.
Langt er orðiö siðan við sáum
og heyrðum Tommy Steele, en
hann var sem kunnugt er
heimsfræg rokkstjarna hér á
árum áður. Ekki er að efa að að-
dáendur hans hér á landi, sem
örugglega eru margir, munu
hugsa gott til að heyra hann á ný
og berja hann augum.
Tommy vinnur nú i Dan-
mörku við ýmis söngleikahús
þar. —VS
Sjónvarp, sunnudag kl. 20,35:
Gestir í sjónvarpssal
Guðmundur Danielsson og Guð-
mundur G. Hagalin verða gestir
þáttarins ,,Það eru komnir gestir” i
kvöld kl. 20:35. Indriði G. Þorsteins-
son ræðir við þá um ævi þeirra og
starf.
Þessir tveir eru með vinsælustu skáldsagana-
höfundum landsins og hafa verið um árabil. Fjöl-
margar bkur hafa komið út eftir hvorn þeirra og nú
siðast i haust senda þeir frá sér sinn hvora bókina.
Eftir Guðmund Danielsson komút Oratoria, og
Segðu nú aman Pétur minn, eftir Guðmund G.
Hagaiin.
Ekki er að efa að margir munu hafa gaman af að
kynnast þessum mönnum, rithöfundana þekkja
þeir.
-VS