Vísir - 10.12.1975, Page 3

Vísir - 10.12.1975, Page 3
VISIR Miðvikudagur 10. desember 1975. 3 Guðni Þórðarson situr fyrir svörum á fundi með fréttamönnum á Borginni í gær. — Ljósm. BG ,Ég krefst saka- dómsrannsóknar' — segir Guðni Þórðarson — Telur Seðlabankasfjóra handbendi Flugleiða — Ég mun snúa mér til sak- sóknara rikisins og krefjast op- inberrar rannsóknar, sem leiða mun I Ijós að það eru banka- stjórar Seðlabankans sem eru höfundar og stjórnendur þess- ara ofsókna. Þeir munu verða dregnir til ábyrgðar gagnvart réttvisinni fyrir öllu þvi mann- orðs og fjártjóni sem þessar gerræðisiegu aðgerðir þeirra óumflýjanlega valda. Þetta, meðal annars sagði Guðni Þórðarson, forstjóri Air Viking og Sunnu á fundi með fréttamönnum í gær. Samvinna Flugleiða og Seðlabanka Guðni hélt þvi fram að banka- stjórar Seðlabankans, sérstak- lega þeir Jóhannes Nordal og Davlð Olafsson væru með þessu að reka erindi Flugleiða, sem vildu Air Viking feigt. Flug- rekstur Air Viking hefði gengið mjög vel og á þessu ári hefðu farið með flugvélum félagsins fjórði til fimmti hver íslending- ur æm fór á milli landa. Auk þess hafi þær flutt nokkur þús- und erlenda ferðamenn. Þessa samkeppni hefðu Flugleiðir ekki þolað og þvi ákveðið að bola Air Viking burt. Fiögurra milljarða blóðgjöf Eftir að seðlabankastjórarnir hefðu hlaupið um lönd og álfur á siðasta ári til að Utvega Flug- leiðum fjögurra milljarða blóð- gjöf, hefði svo striðið hafist. Flugleiðir hefðu lækkað verð á sólarlandaferðum um tiu til fjórtán þUsund krónur á hvern farþega, i þeim tilgangi einum að ýta Air Viking Ut af innan- landsmarkaði. Þessi óheiðarlega samkeppni hafi valdið Air Viking tekju- missisem svaraði tiu til fjórtán þUsund krónum á hvern farþega, en þeir voru allsum sjö þUsund talsins. Vilja sjötiu prósent hækkun Guðni sagöi að þegar þetta hafi ekki borið tilætlaðan árang- ur hafi góð ráð verið orðin dýr. „Óskabörn seðlabankavaldsins i flugmálum” hafi nU beðið um sjötiu prósent hækkun flugfar- gjalda milli Islands og Norð- ur-Evrópu. Það sé ljóst að þetta sé ekki mögulegt nema einasta keppnisaðilanum sé rutt úr vegi. Þvihafi sú herferð sem nú standi yfir, verið hafin. Kúgunaraðgerðir Seðlabankans í skjóli valds sins yfir banka- kerfinu hafi Seðlabankinn lagst á Alþýðubankann og stjórnend- ur hans með kúgunaraðferðum sem miðist að þvi að gera rekst- ur fyrirtækja sinna tortryggi- legan og stöðva eðlilega banka- fyrirgreiðslu. „Mér er einnig kunnugt um að Seðlabankinn hefur gengið svo langt að seilastinn i Samgöngu- ráðuneytið f leit að aðstoð og stuöningi við að koma ofstækis- aðgerðum sinum fram,” sagði Guðni Þórðarson. Engar óeðlilegar skuldir Guðni sagðiað engar óeðlileg- ar skuldir hvildu á fyrirtækjum slnum. Hann vildi ekki nefna neinar tölur i þvi sambandi en sagði að þær kæmi fram við rannsókn málsins. Hann fullyrti hinsvegar að viðskipta og rekstrarskuldir væru óveruleg- ar. Hann sagði ennfremur að að sinu áliti lægju fyrir fullnægj- andi tryggingar. Hann hefði lagt að veði fast- eignir sem hann á I Reykjavlk sem væru tæplega hundrað milljón króna virði, samkvæmt brunabótamati. Þar að auki væri veð i flugvélunum. Engin vanskil Guðni sagði að hvergi lægju fyrir eðlilegar greiðslukröfur sem ekki hefði veriö mætt. Fyrirtæki hans ættu engar van- skilaskuldir útistandandi. (I fréttatilkynningu Seðlabankans er þvi ekki haldið fram að Air Viking sé I vanskilum. Aðeins að tryggingar fyrir skuldum séu ekki nægilega góðar). Mikið fjármágn til Alþýðubankans Hann fullyrti að hann hefði engin óeðlileg viðskipti átt við Alþýðubankann. Með viðskipt- um sinum hafi hann beint þang- að miklu fjármagn og fyrir- greiösla bankans hafi að sinu áliti verið fullkomlega eðlileg. Leyfissviptingin ólögleg Guðni sagði að enginn laga- bókstafur væri fyrir þvi að svipta ferðaskrifstofuna Sunnu rekstrarleyfi, vegna þessa máls. t tilkynningu samgöngu- ráðuneytisins hefði aðeins verið talað um skuldir hennar. t lög- um væri hinsvegar leyfð leyfis- svipting ef um VANSKIL væri að ræða. Það væri ekki hjá Sunnu. Tryggingaupphæðin sem miðað er við er aðeins 1,5 mill- jónir króna. SU upphæð var ákveðin fyrir einum tiu árum og á sér þvi ekki stoð lengur. Sagði Guðni að allar ferða- skrifstofurnar yrðu að loka ef skuldir þeirra mættu ekki fara uppfyrir þessa upphæð. Krefst rannsóknar Guðni sagði að hann vildi láta rannsaka þetta mál niður i kjöl- inn. Hann sagði orðrétt: Ég mun sjálfur krefjast rann- sóknar á öllum bankaviðskipt- um minum og fyrirtækja þeirra sem ég veiti forstöðu, til þess að fá tækifæri til að sanna óheilindi þau sem að baki þessara of- sókna liggja. Ósk min er að rannsakað verði hvers vegna afskipti Seðlabanka tslands beinist fremur að viðskiptum minum við Alþýðubankann h/f en ann- arra stórra viðskiptaaðila bank- ans. Rannsakað hvort afskipti Seðlabankans af málefnum Air Viking kunni að standa I sam- bandi við hagsmuni hans (Seðlabankans) við aðra aðila i flugrekstri, þar sem stöðvun á rekstri mundi skapa þeim ein- okunaraðstöðu i Islenzku utan- landsfluti. Rannsakað verði hvort Seðlabanki tslands hafi með þessum siðustu ofbeldisað- gerðum sinum og kúgunum misbeitt valdi sinu. Rannsakað verði hvort Seðlabankinn hafi beitt Alþýðubankann, banka- ráði og stjórn A.S.l. þvingunum til að fá fram aðgerðir gegn Air Viking og þá á hvern hátt þeim þvingunum hafi verið beitt. Kaupin á Hótel Esju Guðni vildi einnig að: — Rannsökuð verði ýmis at- riði sem verði talin máli þessu viðskiptalega tengd, svo sem af- skipti og fyrirgreiðsla banka- stjóra Seðlabankans við bygg- ingu Hótel Esju og afhendingar hótelsins siðar á silfurfati án Ut- borgunar. Þar sem ofaná tert- una var lagt þar að auki rekstr- arlán, sem á núverandi gengi nemur um þrjú hundruð mill- jónum króna. Rannsakað verði til að sanna misbeitingu valds, fyrirgreiðsla Seðlabankastjór- anna við ýmis fyrirtæki sem upp verða talin. Svo sem Alafoss, sem njóta mun lánafyrir- greiðslu sem nema mun allri ár- legri umsetningu fyrirtækisins. Loks sagði Guðni Þóröarson: Ég trúi þvi fastlega að hér bafi verið gengið það langt út fyrir allt velsæmi i glórulausum ofsóknum og valdniðslu, að ekki verði hjá þvi komist að þessir herrar hafi nú reitt sina eigin öxi sjálfum sér til fallst i nafni réttlætis og laga. — fJr þvi mun verða skorið á næstu vikum og mánuðum. —ÓT Fréttaþjónusta Flugleiða furthermore 1 nave another guestlon and i kindty ask youto ánswer by teLes obday: Loftleidir igeLandic sais that air vikina and sunna traveL are ' near a bank ruotcy and that everybody in lceLandlc traveL business is taLklng about thls matter during the Last few week. what do you say? we are Looklng forward your fair answer. thanks and best reqards. e. diet'rich / generaL manaqer / lmhoLZ traveL zurich 20ft1 sunna is 57/*a? tmho ch Þetta telex skeyti fékk Guðni á hádegi I gær frá stórri svissneskri ferðaskrifstofu. Hann er búinn að gera samning við hana um að flytja tólf hópa svissneskra ferðamanna til islands næsta sumar. t skeytinu segir: „Loftieiðir Icelandic segja að Air Viking og Sunna séu á barmi gjaldþrots og aðallir i islenskum ferðamáium hafi verið að tala um þetta undanfarnar vikur. Hvað segir þú? Væntum hreinskilins svars frá þér. Þakkirog bestu kveðjur, E. Dietrich, framkvæmdastjóri Imholz Travel, Zúrich.” Þykir Guðna sem fréttaþjónusta Flugleiöa við viðskiptavini sina sé með eindæmum góð. Guðni sýnir fréttamönnum skeytið, sem sagterfrá hér aðofan. TÍSKUVERSLUN UNGU KONUNNAR KIRKJUHVOLI SÍMI 12114

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.