Vísir - 10.12.1975, Page 7

Vísir - 10.12.1975, Page 7
VISIR Miðvikudagu r 10. desember 1975. RGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í Umsjón: Guðmundur Pétursson Yelena Sakharov, sem aö undanförnu hefurveriöá Italiutil lækninga, er farin til Osló. En þessi mynd var tekin af henni skömmu fyrir brottförina, þegar borgarstjóri Rómar, Clelio Darida, gaf þessum virta gesti sínum bók til minningar um Rómardvölina. VERKFÖLLIN HEFJAST Á SPÁNI í DAG Vinstrisinnaðir andófs- menn á Spáni hafa skorið upp herör gegn stjórnarfari Francotimans til að þrýsta að yfirvöldum og knýja þau fram til frjálslyndara stjórnar- fars. 1 dag hefjast verkföll verka- lýðsfélaga i Madrid, en slik samtök eru bönnuð með lögum á Spáni og starfa þau þvi neðan- jarðar. Þetta eiga að vera tveggja daga verkföll og búist við þvf að þau taki til 120.000 byggingaverkamanna fyrst og fremst. Vinstrisinnar hafa skorað á alþýðu um Spán allan að fara i samúðarverkfall til að mót- mæla harkalegri framgöngu lögreglunnar i Madrid sem um helgina hleypti upp mann- safnaði andófsmanna. Þykir viðbúið að gripið verði til mótmælaaðgerða i Barcelona og Baskaheruðunum norðan- lands. Dansi, dansi... Ford Bandarikjaforseti hafði viðkomu á Filipps- eyjum á leið sinni heim f rá Kína. Þessi mynd var tekin við það tækifæri, þegar efnt var til þjóðdansasýn- ingar til heiðurs forsetan- um. Greinilega hefur hann hrifist af dansinum, eins og myndin gefur til kynna. Hœtt við oð svelta írana en þeir vilja ekki matinn Hverjir eru þrjóskari? Það er spurningin i sam- skiptum Lundúnalög- reglunnar við þrjá sprengjuvarga írska lýðveldishersins, sem hún hefur haldið innikróuðum i ibúð i Marylebone-hverfi. írarnir halda hins- vegar lögreglunni i skefjum með eldri hjón- um, eigendum ibúðar- innar, sem þeir tóku fyrir gisla. Fyrst neitaði lög- reglan að láta þeim i té mat, en nú neita irarnir að taka við mat sem þeim hefur verið boðinn. Þeir hafa meira að segja rifið simann úr sambandi og fleygt tólinu út um gluggann. — Áður hafði lögreglan reglulegt samband við þá i simanum. Svo er að sjá. sem irsku hryðju- verkamönnunum hafi runnið i skap þegar lögreglan lét eftir sér hafa að hún væri smám saman að vinna trúnaðartraust bófanna með hjálp simans. — Skömmu siðar flaug nefnilega siminn út um gluggann. Það er grunur lögreglunnar að mennirnir séu úr hópi þeirra sem ábyrgir eru fyrir sprengjutilræði undanfarinna mánaða i London, Fingraför eins þeirra fundust i sprengjuverksmiðju sem lög- reglan fann i London, og' þau fundust aftur á dyrakarminum heima hjá Ross McWhirter sem myrtur var á dögunum. Lögreglunni snérist hugur um að svelta sprengjuvargana út úr ibúðinni, og lét siga i bandi grænmetissúðu og heitt kaffi á brúsum ofan úr næstu ibúð niður að glugga til manna. En þeir hunsuðu sendinguna algjörlega. 1 upphafi taldi lögreglan að hryðjuverkamennirnir væru fjórir i ibúðinni. Þar á meðal einn sem þeir kalla ,,herra Z”, en hans hefur lögreglan leitað dyrum og dyngjum siðustu 18 mánuði. — Nú er lögreglan ekki lengur viss um, að ,,herra Z” sitji i grildr- unni, þvi að sjónarvottur taldi sig hafa séð mann á gangi i hægðum sinum i húsasundi að baki byggingarinnar. Arafat heior- aður... Landssamtök ensku- kennara i Bandarikjunum veita árlega verðlaun þeim, sem þykir tala best 'veim tungum. Meðal þeirra sem þessa ..heiðurs” hafa orðið aðnjótandi, er til dæmis Ron Ziegler, fyrrum blaðafulltrúi Nixons. Þetta árið er það Yasser Arafat. leiðtogi þjóðfrelsis- hreyfingar Palestinu-araba og æðstráðandi hryðjut erka- samtaka þeirra sem ötuð eru blóði saklauss fólks i öll- um heinisálfum. — Tilefnið voru þessi unuuæli Arafats: ,,Við viljum enguni manni gera mein. Það er einmitt vegna þess, að við boðum friðsamlega sambúð hjónanna, að við höfum út- hellt svo miklu blóði.” Kemur ekki til greina að lóta undan rœningjunum segir fulltrúi Indónesíustjórnar, sem staddur er í Hollandi Tveir hópar suður-- mólukkanskra hryðju- verkama nna ha Ida hollensku lögreglunni enn í skefjum með meira en fimmtíu gisla á valdi sínu um borð i farþegalest norður við Beilen og inni i sendiráði Indónesíu í Amsterdam. Lögreglan i Amsterdam hefur lagt sig i framkróka við að halda sambandi við mannræningjana i sendiráðinu meöan yfirvöld norður i landi þégja þunnu hljóði og halda uppi taugastriði á hend- ur lestarræningjunum. Lestarræningjarnir hafa nú haldið 29 farþegum föngnum i lestarvögnunum i átta daga. Einu orðaskiptin við lögregluna. sem setið hefur um vagnana allan þennan tima, lúta að beiðnúm um mat og tóbak, vatn og nauðsynjar aðrar. En ræningjarnir i sendiráðinu hafa verið ófeimnir við að setja fram kröfur. Þeirra meginkröfur eru 3, allar pólitisks eðlis, en það er ekki á valdi Hollands- stjórnar að verða við neinni þeirra. Fyrst vilja þeir að Suharto for- seti Indónesiu komi til Genfar til viðræðna við sjálfskipaðan for- seta útlagastjórnar Suður - Molukkaeyja. Umræðuefnið skal vera sjálfstæði til handa Suður- Molukka. Ennfremur vilja þeir að stjórn Indónesiu láti lausa alla pólitiska fanga frá Suður- Molukka. og að málfrelsi verði leyft á Suður-Molúkka. Þessar kröfur voru lesnar upp fyrir sendifulltrúa Indónesiu- s'tjórnar af miða sem ræningjarnir létu milligöngu- mann flytja honum. Hann hlýddi á þegjandi. en sagði eftir á að ekki kæmi til greina að verða við pólitiskum kröfum ræningjanna — Bauð hann sanit Hollands stjórn liðveislu við að reyna að bjarga gislunum úr sendiráðinu.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.