Vísir - 10.12.1975, Síða 17

Vísir - 10.12.1975, Síða 17
VISIR Miðvikudagur 10. desember 1975. 17 OAG í DAG | I KVOLD | í DAB | Sjonvarp kl. 20.40: ## MARGT ER í MORGU Bókmenntir og listir á liðandi stund verða kynnt i Vökui kvöld að venju. Er þar fyrst litið inn á æfingu sinfóniuhljómsveit- arinnar á oratoriunni Karmina Burana eftir Carl Orf. Söngsveitin Filharmonia og Stúdentakórinn eru flytjendur ásamt hljómsveitinni. Rætt verður við Carsten Andersen, stjórnanda hljómsveitarinnar, og Jón Asgeirsson, sem æft hefur kórinn. Björn Vignir gerir þvi næst úttekt á nýj- ustu mánudagsmynd Háskólabiós, Sunday, Bloody Sunday. Þjóðleikhúsið og Iðnó verða heimsótt og litið verður inn á æfingu á jó.la- leikritum þeirra. Fylgst verður með undirbúningi þeirra, leikmyndum og sýnd verða atriði úr þeim. Heljarmikil bóka- umfjöllun verður i þættinum. Verða helstu bækurnar tekn- ar þar fyrir — skoðað- ar sumar og lesið úr öðrum. Talað verður við nokkra rithöfunda eins og Thor Vilhjálmsson, Stefán Júliusson og Þorgeir Þorgeirsson. Þættinum lýkur með hljómplötukyningu. Kynntar verða nokkr- ar bestu islensku hl jómplöturnar á markaðinum. Umsjónarmaður þáttarins er Aðal- steinn Ingólfsson. — VS Sjónvarp kl. 22.50: Fœreyjar — lond og þjóð Dönsk fræðslumynd verður um frændur vora Færeyinga, land og þjóð i kvöld kl. 22.50. Langt viðtal verður við William Heinesen, sem m.a. fjallar um nokkur skáld færeysk eins og Janus Djurhuus. Johannes Paturs- son og Christian Matras. Lesið verður úr ljóðum þeirra. Loftmyndir teknar yfir Færeyjar verða sýndar. Þótt furðulegt megi telja, þá vitum við harla litið um Færeyinga yfirleitt. Við vitum jú að þeir eru okkar nánustu frændur en ekkert þar fram yfir almennt talað. Það er vonandi að við verðum ein- hvers visari eftir kvöldið i kvöld. Vs Útvarp kl. 19.35: Er launþegi bundinn þagnarskyldu um laun sín? Þessari spurningu og fleir- um leita þeir svara við lög- fræðingarnir Gunnar Eydal og Arnmundur Backman i þætt- ingum Vinnumál i kvöld. Þátturinn byrjar á að fjalla um trúnaðarmanninn á vinnu- stað, starf hlutverk og réttar- stöðu hans, hvenær má segja honum upp og hver eru tengsl hans við stéttarfélagið. Talað verður við tvo trúnaðarmenn um störf þeirra. í annan stað verða ræddar þær meginreglur, sem gilda um launagreiðslur i veikinda- tilfellum. Einnig verður svaraðspurningum hlustenda. Leitað verður svara við tveim spurningum: Er launþegi bundinn þagn- arskyldu um sin laun, og hver er réttarstaða stundakennara. Að lokum verður starf og skipulag Vinnuveitendasam- b'ands fslands kynnt. Rætt verður við Barða Friðriksson skrifstofustjóra i þvi augna- miði. — VS Sjónvarp kl. 21.50: „Sér grefur „Shootable forframing” heitir myndin um Columbo i kvöld. Listgagnrýnandi drepur auðug- an frænda sinn, sem á afar verðmætt einkasafn listaverka. Hann er ekkert ánægður með það að frændinn ætlar að taka saman við konu sina á ný. Reitunum yrði þá skipt i fleiri staði og það finnst honum ótækt — best að fyrirbyggja það strax. Hann hefur með sér unga stúlku til aðstoðar við verknaðinn. gröf....." Columbo fær nú það verkefni sð upplýsa málið. Hann verður gripinn geysilegum listaáhuga og á við listgagnrýnandann viðtal, sem er auðvitað ekkert nema menntahrokinn eins og allir list- gagnrýnendur. Annars gengur myndin út á vopnaviðskipti þeirra og er ekki vert að vera að taka spennuna úr henni frá fólki, en biða kvölds og æsa sig þá fyrir framan sjónvarpið. — VS Boggi — Ég er sammála. Þetta gerir sálfræðinga óþarfa. ÚTVARP # 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Fingramál” eftir Joanne Greenberg. Bryndis Viglundsdóttir les þýðingu sina (13) 15.00 Miðdegistónleikar. Italski kvartettinn leikur Strengjakvartett nr. 6 i F-dúr op. 96. „Ameriska kvartettinn” eftir Dvorák. Kornél Zempleni og Ung- verska rikishljómsveitin leika Tilbrigði um barnalag op. 25 fyrir pianó og hljóm- sveit eftir Dohnányi, György Lehel stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir) 16.20 Popphorn. 17.10 tJtvarpssaga barnanna: „Drengurinn i gullbuxun- um” eftir Max Lundgren. Olga Guðrún Arnadóttir les þýðingu sina (11) 17.30 Framburðarkennsla i dönsku og frönsku. Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Vinnumál.Þáttur um lög og rétt á vinnumarkaði. Um sjónarmenn: Lög- fræðingarnir Gunnar Eydal og Arnmundur Backman. 20.00 Kvöldvaka. a. ■Einsöngur. Sigurv. Hjalte- sted syngur, Ólafur Vignir Albertssonleikur ápianó. b. Fjárgötur/hjarðmannsins spor.Gunnar Valdimarsson les úr minningaþáttum Benedikts Gislasonar frá Hofteigi fyrri hluti. c. Ort i draumi og vöku. Ljóð og laust mál eftir Þórunni Elfu Magnúsdóttur. Höfundur les. d. Dagstund við Djúp. Hallgrimur Jónasson flytur ferðaþátt. e. Um islenzka þjóðhætti. Arni Björnsson cand. mag. segir frá. f. Kor- söngur. Telpnakór Hliða- skóla syngur. Þóra Steingrimsdóttir leikur á pianó. Stjórnandi: Guðrún Þorsteinsdóttir. 21.30 Útvarpssagan: „Fóst- bræður” eftir Gunnar Gunnarsson. Jóhannesson Smári þýddi. Þorsteinn O. Stephensen les sögulok (25) 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Kvöld- sagan: „Kjarval” eftir Thor Vilhjálmsson. Höfundur les (24) 22.40 Jazzþátturi umsjá Jóns Múla Árnasonar. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. SJÚNVARP • 18.00 Björninn Jógi. Bandarisk teiknimyndasyrpa. Þýðandi Jón Skaptason. 18.25 Kaplaskjól. Breskur myndaflokkur byggður á sögum eftir Moniku Dick- ens. Hundrað punda hestur. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. 18.50 Laumufarþeginn. JVIynd um ungan laumufarþega um borð i fiskiskipi, sem fer á veiðar i Norður-Atlants- hafi. Þýðandi Gréta Hall- grims. Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.30 Dagskrá og auglýsingar 20.40 Vaka.Dagskrá um bók- menntir og listir á liðandi stund. Umsjónarmaður Aðalsteinn Ingólfsson. 21.50 Columbo. Bandariskur sakamálamyndaflokkur. Þýðandi Jón Thor Haralds- son. 22.50 Færeyjar. Dönsk fræðslumynd um land og þjóð. M.a. er viðtal við William Heinesen um skáld- skap i eyjunum, gamlan og nýjan. Lesin ljóð og kveðið. Einnig er rætt við nokkra Færeyinga um tengslin við Danmörku. Þýðandi Jó- hannes Helgi. Þulur Krist- inn Reyr. 24.00 Dagskrárlok Flýttu þér nú Jónas, — ég gæti alveg gengið jafnhratt!

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.