Vísir - 11.12.1975, Blaðsíða 7

Vísir - 11.12.1975, Blaðsíða 7
VISIR Fimmtudagur 11. desember 1975. 7 RGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND Í Umsjón: Guðmundur Pétursson Yelena Sakharov viö komuna til Osló þar sem hiín veitti viötöku friöarverölaununum fyrir mann sinn sem ekki fékk fararleyfi frá sovéskum yfirvöldum. Sjaldan inni- legra lófatak við afhendingu friðarverðlauna Nóbels, sem fram fór í Osló í gœr þegar eiginkona Sakharovs veitti þeim viðtöku Meðan Yelena Sak- harov veitti viðtöku friðarverðlaunum Nób- els fyrir hönd eigin- manns sins stóð hann sjálfur úti i kuldanum fyrir utan dómhúsið i Vilna i Lettlandi þar sem þingað var i múli eins vinar hans, andóf smannsins Sergei Kovalev. Honum haföi ekki verið leyft að fara úr landi til þess aö taka viö verölaununum sjálfur, og honum var heldur ekki leyft að vera viö réttarhöld Kovalevs. En kona hans flutti Nóbels- verölaunanefndinni þakkir bónda hennar og hugur viö- staddra til verðlaunaveitingar- innar kom greinilega i ljós i kröftugu lófataki sem menn minnast naumast aö hafa heyrt i annan stað jafn innilegt þótt viö svipuö tækifæri væru. Eftir athöfnina fylktu Oslóbú- ar liöi f blysför sem lá framhjá svölum Grand-hótels þar sem Yelena heldur til þá daga sem hún verður i Osló. Nokkur stórblaöanna tóku fyrir i leiöurum sinum i dag þá afstööu Sovétstjórnarinnar aö neita Sakharöv um feröaleyfi. The New York Times kvað þaö algert þrot á Helsinki-sam- komulaginu og á mannréttinda- yfirlýsingu Sameinuðu þjóð- anna. „Mundu svo aö viö látum konur og börn ganga fyrir!” — Þannig litur teiknarinn á hryöjuverkamenn öfgasamtaka eins og írska lýöveidishersins (IRA) og þjóöfrelsissamtaka Palestinuaraba (PLO). Almenningur er fullur heiftar oröinn i garö þessara morö- sveita, og á Bretlandseyjum er mikill meirihluti fylgjandi þvi aö dauöarefsingin veröi endurvakin sem viöurlög viö slikuni illverk- um. Verður aálainn reistur að nýju? Atkvæðagreiðsla verður i breska þinginu i dag um það hvort irskir hryðjuverkamenn verði sendir i gálgann fyrir morð á óbreyttum borg- urum. Skoðanakannanir hafa leitt i ljós að almenning- ur á Bretlandseyjum er fullur heiftar i garð sprengjuvarganna og 88% vilja að gálgarnir verði reistir aftur til þess að hengja hryðju- verkamennina. Um 50 manns hafa látið lifið i 150 sprengingum á Bretlandi síö- ustu þrjú árin. Óttinn við sprengj- ur og vitisvélar morðingja irska lýðveldishersins hvildir eins og mara orðið á ibúum stórborg- anna. Opinberir samskomustaðir hafa tekið á sig svipaö sniö og væru striðstimar. En þrátt fyrir hatriö sem andar i garö ofstækismannanna telja stjórnmálaspekingar aö tillagan um endurvakningu dauðarefsing- ar viö slikum hryðjuverkum verði felld i þinginu. Andstæðingar dauðarefsingar- innar hafa harmað á þeim kviöa að IRA mundi njóta samúðar ef flugmenn samtakanna yrðu pislarvottar gálganna. En það er talið að m jótt verði á mununum, mjórra heldur en i desember i fyrra þegar svipuð til- laga var felld með 317 atkvæðum gegn 219. Samtimis þessari tillögu er til umræðu önnur sem felur i sér, aö stjórnvöld leggi 50.000 sterlings- punda verðlaun til höfuðs hryðju- verkamönnunum. Þá hugmynd átti Ross McWhirter, sem morðingjar IRA skutu til bana á tröppunum á heimili hans á dög- unum. Rceningi- arnir fara ekki einu sinni að tilmœlum leiðtogans Skæruliðarnir frá Suður- Molukkaeyjum sem hafa á valdi sínu meira en 50 gisla i Hollandi hafa ekki látið sér segjast/ þótt landar þeirra hafi reynt að tala um fyrir þeim og fá þá til að gefast upp. Forseti útlagastjórnar Molukkamanna, Johannes Manu- sama, skoraði i gær á skæruliö- ana að gefa sig á vald lögreglunni án frekari mótþróa, en i morgun höfðu ræningjarnir enn ekki sýnt viðbrögð við þeim tilmælum. Manusama sagöi við fulltrúa þeirra 40.000 innflytjenda frá Molukkaeyjum sem búa i Hol- landi að aðgerðir ræningjanna væru að visu réttlætanlegar, en þær spilltu málstað þeirra samt. Hann varaöi aðra unga Molukkamenn viö þvi að fara aö ráði þessara manna. Sagði hann að nóg væri að gert. Vakin heföi verið athygli umheimsins á sjálf- stæðisbaráttu Molukkamanna, og þar meö tilganginum náö. Skæruliöahóparnir tveir hafa annarsvegar á valdi sinu járn- brautarlest við Beilen, og hins- vegar sendiráð Indónesiu i Amsterdam. Lögreglan stendur i stöðugu simasambandi við ræn- ingjana i sendiráðinu, en heldur uppi taugastriði gegn lestar- ræningjunum. 1 nótt varnaði hún þeim svefns með vélarskr ilti og ljóskösturum, og er það þriðja nóttin i röð sem þannig er þjarm- að að skæruliðunum. ÖSKUTUNNAN HÆTTULEGUR SVEFN- STAÐUR Flækingur sem sofnað hafði i öskutunnu i fjölbýlishúsi i Frankfurt bjargaðist á sið- ustustundu áðuren hann lenti I brennsluofnum með öðru rusli. Hann hafði lagst til svefns i öskutunnunni til að sofa úr sér áfengisvimu og setti yfir sig lokið. Hann rumskaði naumast, þegar öskukallarnir tæmdu tunnuna i öskubiinum og óku ruslinu til brennslustöðvar. þar sem úrgangnum er brennt við upphitun vatns sem aftur er notað til upphitunar stórs hluta Frankfurts. Sá sem stóð við að moka i ofanana heyrði veinin i mann- inum þegarhann kom rúllandi með ruslinu á leið inn i logana. Dró hann flækinginn út á siö- ustu stundu. Boli í bœjarferð Þaö þurfti tíu menn til i miðborg St. Louis. að stöðva bola sem brá Lames Liszewski lög- sér á dögunum i visitasiu regluþjónn var meðal þeirra sem eltu tudda og mátti forða sér upp á vélarhús bifreiðar sinn- ar, þegar boli var ekki á því að láta sig. — Nautið hafði sloppið út úr gripa- flutningabifreið sem valt á einu strælinu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.