Vísir - 11.12.1975, Qupperneq 12
12 Fimmtudagur 11. desember 1975. vism
Nú getur KR kvott
1. deildor-vonina!
— Tapaði með einu marki fyrir Keflavík í 2. deildinni
í handknattleik í gœrkvöldi - ÍR lék sér að Fylki,
og Breiðablik nóði í sitt fyrsta stig
Þau óvæntu úrslit uröu i ts-
landsmótinu i handknattleik i
gær, aö Keflavik sigraði KR í 2.
deild, 26:25 og eru KR-ingar —
silfurliðiö úr Reykjavikurmótinu
þar með endanlega úr leik i
toppbaráttunni. Þá fékk Breiða-
blik úr Kópavogi sitt fyrsta stig i
keppninni. gerði jafntefli við
Leikni, Breiðholti 19:19 og ÍR
heldur sinu striki, sigraði Fylki
léttilega 26:12.
Það leit ekki út fyrir neitt óvænt
i hálfleik i leik KR og Keflav.,
KR-ingar höfðu yfir 14:9 og þvi
forskoti héldu þeir framanaf i
siðari hálfleik. En þá datt allur
botn úr leik liðsins, vörnin gal-
opnaðist hvað eftir annað og Kefl-
vikingar föru að saxa á forskotið.
Þegar tvær minútur voru til leiks-
loka var staðan jöfn 25:25, og
Suðurnesjamenn áttu svo siðasta
orðið — skoruðu sigurmarkið með
gegnumbroti.
Frammistaða Breiðabliks úr
Köpavogi i leiknum gegn Leikni
kom lika á óvart. Breiðabliks-
menn léku hálfgerðan „göngu-
handbolta” og sú leikaðferð virt-
ist ætla að færa þeim 2 stig, þvi
uppúr miðjum siðari hálfleik
höfðu Kópavogsmenn yfirhöndina
19:15, eftir að staðan i hálfleik
hafði verið 10:D. En endasprettur
þeirra var slakur og Leiknis-
mönnum tókst að jafna metin,
19:19, sem urðu lokatölurnar.
IR-liðið heldur sinu striki og nú
getur fátt komið i veg fyrir að
liðið endurheimti sæti sitt i 1.
deild sem það missti i fyrra. 1R
hreinlega lék sér að Árbæjar-
liðinu Fylki — og munurinn varð
14 mörk. — 26:12.
STADAN
Staðan i 2. deild eftir leikina I
gærkvöldi:
Leiknir — Breiðablik 19:19
KR — Keflavik 25:26
ÍR — Fylkir 26:12
tR 7 7 0 0 187:105 14
K A 5 4 0 1 108:91 8
Leiknir 7 3 1 3 139:152 7
KR 6 3 0 3 135:127 6
Fylkir 5 2 0 3 78:98 4
Keflavik 6 2 0 4 109:132 4
Þór 5 1 0 4 108:114 2
Breiðablik 5 0 1 4 75:120 1
Átta eftir
í körfunni
Búið er að draga i 8-liöa úrslit-
um I Evrópukeppni bikarhafa i
körfuknattleik. Þar er ieikið I
tveim 4ra liða riðlum, og eru
þessi lið I riðlunum:
A-riðill:
Aspo Tours, Frakklandi.
Olympiakos, Grikklandi
CSKA Soffia, Búlgariu.
Rabotnicki, Júgóslaviu.
B-riðili:
SSV Hagen, V-Þýskalandi.
Estudiantes, Spáni.
Sutton/C. Palace, Englandi.
Cinzano, ttaliu.
Það var mikil sorg i Frakk-
landi þegar fréttist að hinn ungi
og efnilegi skiðamaður, Michel
Dujon, hafi látist af völdum
áverka, sem hann hlaut er liann
var að æfa sig fyrir fyrstu
heimsbikarkeppnina á skiðum i
Val D'Iserc I siðustu viku.
Hann var að reyna nýjan skiöa-
áburð og féll i brautinni með
þeim afleiðingum, aö hann lést
skömmu siöar. Er talið að hann
hafi skollið með höfuðið i stein
fyrir utan brautina, og var
höggið það mikið, aö öryggis-,
hjálmurinn, sem hann var með
á höfðinu brotnaði. Efri myndin
er af Michel og er tekin rétt áður
en hann Iést, en sú neðri þegar
kista hans er borin út úr kirkj-
unni i Saint Gervais. Félagar
hans i landsliðinu bera kistuna á
öxlum sér, cn fremstur fer
fyrirliði liðsins og ber landsliðs-
peysu Dujons.
HvaB er þetta maður — hann
byrjaöi — og a6 sjálfsögöu
gaf ég honum einn á snti6inn!
Ef þú kynnir þitt fag þá /
bókaáir þú hann f n ekk
stóðst
Komdu þérútileikmann og rifursvokjaft'
viðdómarann!
af vellinum
Galt! _
Þeir hafa veriö mikil og góð auglýsing fyrir tsland atvinnumennirnir okkar I k
hafa lika staðið sig frábærlega og eru á allra vörum eftir leiki liða sinna að un
Jóhannes Eövaldsson (númer sex) I leik á milli Rangers og Celtic á dögunum,
þarna Tommy. Slærö anna
reki
Atvinnumen
okkar gera
Þeir hafa gert það gott I knatt-
spyrnunni tvö s.l. kvöld þeir Ásgeir
Sigurvinsson i Belgiu og Jóhannes
Eðvaldsson i Skotlandi. Asgeir var
stjarna Standard Liege er liöiö sigr-
aði ,,það besta i Evrópu” — Pynamo
Kiev — 2:1 i fyrrakvöld, og Jóhannes
átti stórleik þegar Celtic lék við Hibs
i Glasgow i gærkvöldi.
Leikur Standard og Dynamo Kiev
var vináttuleikur, sem háður var i
Liege, og lék Ásgeir þar einn sinn
besta leik með Standard frá þvi að
hann kom til félagsins fyrir þrem ár-
um — og hefur hann þó átt marga
góða leiki áður.
Hann átti upptökin að báðum mörk
unum sem Standard gerði. Það fyrra
kom snemma i fyrri hálfleik. Þá
braust Ásgeir i gegnum hina frægu
vörn Dynamo Kiev — sem einnig er
landslið Sovétrikjanna — og sendi
fyrir markið, þar sem austurrikis-
maðurinn Ritter, sem Standard er að
hugsa um að kaupa. var vel staðsett-
ur og skallaöi i netið.
Ásgeir Sigurvinsson
með stórleik er
Standard Liege
sigraði
Dynamo Kiev 2:1
ióhannes Eðvaldsson
lagði upp mark
Celtic, sem nú er
í efsta sœti
í Skotlandi
Siðara markiö var mjög svipað —
Asgeir komst þá aftur i gegnum
varnarvegg rússanna og sendi fyrir
— og i þetta sinn var það Garot, sem
skallaði i netið. Fyrir utan þetta átti
Asgeir dauðafæri, en var brugðið
innan vitateigs — og dómarinn
sleppti þar augljósri vitaspyrnu.
Mark Dynamo Kiev skoraði hinn
frægi Oleg Blohkin seint i siðari hálf-
leik.
Jóhannes Eðvaldsson átti enn einn
stórleikinn með Celtic, er liðið mætti
Hibs á Celtic Park i gærkvöldi að
viðstöddum um 40 þúsund áhorfend-
um.
Celtic skoraöi fyrra markið i leikn-
um, sem lauk með jafntefli 1:1, og
átti Jóhannes stóran þátt i þvi. Hann
óð fram og gaf á Dixie Deans sem
skoraði. Þannig var staðan þar til
nokkrar minútur voru eftir af leikn-
um, að Hibs jafnaði eftir mistök
markvarðarins, sem missti knöttinn
milli fóta sér og i netið.