Vísir - 17.12.1975, Side 4
4
Lona Ranger kúrekinn fæst i Leikfanga-
búöinni að Laugavegi 72. Auk hans eru alls
konar menn úr villta vestrinu sem þarna
fást. Eins og þeir eru á myndinni kosta þeir
1.350 og hesturinn 2.750/ en svo er hægt að f á
alls konar aukabúninga fyrir þá.
Þessi baðsloppur drengja er úr frottéefni
og fæst i stærðum frá nr. 4—18. Hann er
hægt að fá hvítan með bláum leggingum og
gulan með hvítum leggingum. Verðið er f rá
2.710—4.990, fer eftir stærð sloppsins. Hann
fæst í Kerinu, Laugavegi 66. Drengurinn er
einnig með baðhandklæði um öxl. Það er
182x95 sm og til í ótal litum. Þetta er ósvikið
cannon handklæði og kostar 3.520 krónur.
RiTsnm
Sigiírtijanfíar totitimmm
I
B4ENA
SÖf rl íít
I bókabúð Æskunnar fást I. og II. bindi rit-
safnsins Barnasögur. Sögurnar í ritinu eru
eftir Sigurbjörn Sveinsson, sem eldra fólkið
man örugglega vel eftir. Bækurnar eru báð-
ar505 blaðsíður og kosta saman 1.000 krón-
ur.
fw> baíf g.->'
TOLF
TIL
NÍTJAN
ÁRA
Domus, Laugavegi er mjög alhliða verslun,
þar er mjög auðvelt að koma inn tómhentur
og koma út aftur með fangið f ullt af vörum
og vera þá búinn að kaupa allt serh vantar
til jólagjafa. Á myndinni sjáum við örlítið
brot þess úrvals sem er í leikfangadeild
búðarinnar. Kúluspilið kostar 185 krónur en
þau er hægt að fá fullkomnari fyrir 485
krónur. Brúðan kostar 590 krónur og brúðan
i kassanum kostar með fötum 895 krónur.
Brúðuhúsið sem við sjáum inn í er sænskt
og kemur f rá Lundby. Það kostar 7.200, hæð
og ris, án húsgagna og rafmagns. Síðan er
hægtað bæta við kjallara og „mublera" upp
hjá sér og setja raf magn. Þetta fæst í Leik-
fangabúðinni, Laugavegi 72.
Annað hvort borgarðu mér hundrað kall eða ég
segi mömmu að þúhafir klipiðmig í rassinn.
Nýttfyrirbæri hefur skotið upp kollinum og
öðlast vinsældir en það eru tásokkar fyrir
ungar stúlkur. Sokkar eru nú orðnir eins og
hanskar og fást í ’alls konar litum og
munstrum á 665 krónur í Snyrtivörubúðinni
Laugavegi 78 og Völvufelli 15, Breiðholti.
Hl jóðfæraverslunin Rin, Frakkastíg 16 býð-
ur upp á Kimbargítara eins og þann sem við
sjáum á þessari mynd. Verð þeirra er frá
9.800 upp í 35.000 krónur.
Kimbara gítararnir eru japanskir en auk
þeirra er hægt að fá fínnska og ítalska
gítara auk annarra hljóðfæra.