Vísir - 17.12.1975, Page 8
í
LOTboy
SchrKMlLötgerát
Á þessari mynd gef ur að líta lóðbolta á 3.340
krónur og brennslusett fyrir hluti úr tré/
leðri og korki á 2.210 krónur. Þessar vörur
eru vestur þýskar og fást í versluninni
Brynju, Laugavegi 29.
Hjartarbúð/ Suðurlandsbraut 10 er lands-
þekkt fyrir pípurnar, sem hún hefur sér-
hæft sig með en þar er líka hægt að fá þessa
ferðabari eins og þann sem er á myndinni.
Slíkur bar kostar 7.235 krónur, en þeir fást
upp í 16.530,- Ronson borðkveikjarinn kost-
ar 8.945, Diplómatkveikjarinn, þessi fer-
kantaði 6.020 krónur og pfpustatívið kostar
1.885 krónur.
Á rakarastofu Ágústar og Garðars Suður-
landsbraut 10 er ekki einungis hægt að fá
klippingu, heldur einnig gjafasett með
snyrtivörum fyrir herra. Hjá Ágústi og
Garðari getur konan skroppið og fundið
geysilegt úrval allskonar slikra snyrtivara
eins og sjá má á myndinni.
Gjafakassar með snyrtivöru karla er í
geysilegu úrvali hjá snyrtivörudeild Slátur-
félags Suðurlands í Glæsibæ. Verðið er
þetta frá um 980 krónum til 2000 króna.
Margar gerðir lampa eru tilvaldar jóla-
gjafir handa honum, t.d. þessi lampagerð
sem við sjáum hérna. í Ljósi og Orku, Suð-
urlandsbraut 12 fást borðlampar af mörg-
um gerðum og stærðum á verðinu frá krón-
um 3.740 til 19.000.00. Lampinn á myndinni
kostar 9.140.
Á þessari mynd sést straufrí herraskyrta
sem fæst í Domus Laugavegi og hún kostar
2.200 krónur. Bindin kosta frá 850 krónum
og greiðslusloppar 3.995.
Nú er hægt að segja að maður ætli í ríkið án
þess að fara í áfengisverslunina, því nýtt
ríki hefur hafist til virðingar á Snorra-
brautinni. Það er Herrarikið, sem opnaði
fyrir hálfum mánuði, kannski síðasta vígi
karlanna. Þar fást þessir flauelsjakkar í
sex litum og er verð þeirra 13.950 krónur.
Skyrtur áþekkar þeirri sem viðsjáum kost-
ar um 3.000 krónur.
Gunnar Ásgeirsson, Suðurlandsbraut 16 sel-
ur hinarþekktu Bosch Combi borvélar ásamt
ýmsum fylgihlutum. Verð borvélanna er
f rá 10.700 krónum og auk þess er hægt að fá
um 20 gerðir fylgihluta. Þessar vélar henta
manninum vel, ef hann hef ur áhuga á smíð-
um af einhverju tagi.
Terelyn- og bómullarnærföt þessi eru mjög
vinsæl í dag. Þau er hægt að fá í þremur lit-
um og sex stærðum. Verð þeirra er 1.990
krónur settið og þú færð þau hjá Andersen &
Lauth, Laugavegi 39 eða Álfheimum 74.