Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1927, Page 2

Lesbók Morgunblaðsins - 23.01.1927, Page 2
18 LtóSBÖK Mö BNLLAÐSLNa 23. jan. ’27. Skipverjar horfðu á þá fjeLiga berjast við dauðann rjett utan við borðstokkinn, en þa,ð ljetu þeir ekki á sig fá. — En í landi sáu menn aðfarirnar og var skotið fram tveimur bátum til þess að reyna að bjarga þeim fjelögum. Þá er bátar þessir voru komnir miðja vega milli lands og skips, var svo að sjá, sem skipverjar iðruðust framferðis síns, því að þeir gerðu sig líklega til þess að skjóta út björgunarbáti. Bn þó hættu þeir við það aftur og fleygðu út kaðb og bjargliring til hinna druknandi manna- Þá voru sokknir þeir 3, sem ekki náðu í bátinn. Þeim Jóni Gunnarssyni og Guðjóni tókst að ná í bjarghringinn, en Hannes Hafstein náði í kaðalinn og brá honum utan um sig. Mátti ekki tæpara standa, því að um leið o§ hann hafði bundið sig þannig, leið yfir hann. Var hann örmágna af sjávarkulda og áreynslu og vissi ekki af sjew fyr en nokkru síðar. Höfðu skipverjar þá dreg- ið hann og hina 2 upp á þilfar. Lágu þeir þ.ar milli heims og helj- ar þangað til bátarnir komu frá landi. Með þeim fluttust þeir í land og voru borniír heim til Matt- hiasar Ólafssonar í Haukadal. Þegar. er skipið hafði losnað við menn þá, er björguðust, ljet það í haf og höfðu menn ekki meira af því í þ.að sinn. Bjuggust marg- ir við, að ekki yrði hægt að hafa hendur í hári sökudólganna, því að þeir höfðu málað yfir suma stafi í nafni og númeri skipsins. Gátu þeir sýslumaður eigi iesið .annað en þetta: O-YALI H 42. Á þessum árum var. hjer eng- inn ritsími nje talsími og bárust því fregnir seint og illa yfir land- ið. En hjer stóð svo á, að skip kom frá Vestfjörðum hingað til Reykjavílavr fáum dögum seinna og flutti fregnir af þessum atburði- •— Hinn 26. októb°r sigldi Tíryggvi Gunnarsson bank.a- stjóri hjeðan með „Laura“ til Kaupmannahafnar og hafði frjett um atbiwð þennan rjett áður en hann fór. „Laura“ kom til Kaup- mannahafnaæ 8. nóv. og þann sama dag varð Tryggva gengið þar inn á veitingahús. Þar voru dagblöðin til sýnis og í þeim sá Tryggvi smáfrjett um það, að enskur botnvörpungtw, „Royalist“ .að nafni, hefði verið tekinn að ó- löglegum veiðum hjá Jótlands- skaga og fluttur til Frederiks- havn. Sagan um viðureign Hannesar Hafstein við botnvörpunginn á Dýrafirði, var .Tryggva enn í fersku minni, þa*r sem hann hafði hejTrt iiana rjett áður en hann steig á skipsfjöl í Reykjavík. — Kemur honum þá undir eins til hugar,- Þetta skyldi þó aldrei vera sama skipið? „■— OYALI----------“ hjet það —- og mun þá eigi hafa vantað R fyrir framan og ST fyr- ir aftan — að málað hafi veæið vfir þá stafi? Tryggvi ljet ekki við það sitj i að draga þetta tvent saman í huga sínum. Hann símaði þegar til Ólafs Halldórsson.ar, sem þá var á íslensku skrifstofunni í Kaupmannahöfn, og sagði honum frá grun sínum. Ólafur var held- ur eigi sá maðu*', að hann hleypti þessu frarn ,af sjer, hversu ótrúlsg, sem honum hefir sagan virst. — Hann sneri sjer þegar til hmna dönsku stjórnarvalda. Þá var svo komið, að Nilsson skipstjóri á „Royalist“ hafði gengið inn á sætt í F»rederikshavn fyrir landhelgis- brot og var í þann veginn að fara þaðan. Stóð aðeins á því, að hann hafði eigi fengið skipsskj'ölin af- hent- Var hann nú kyrsettur að nýju °g kom þá upp úr kafinu, að þetta var sama skipið sem valdið hafði manndrápunum á Dýrafirði 10. október þá um haust- ið. Voru nú þríjr .af skipverjum, Nilsson skipstjóri (sænskur), Polm grén stýrimaður og Rugaard mat- sveinn settir í varðhald og mál höfðað gegn þeim. Vegir forlaganna eru órannsak- anlegir. Eftir hermdarvarkið á Dýr.afirði lætur skipið í haf og bjó.st víst enginn við því, að hægt mundi að hafa hendur í hári sökudólg- anna. En það er alveg eins og forsjónin hafi ætLast td þess að málið kæmist upp. Nilsson fer ut- an, en getur eigi stilt sig um að fara í landhelgi Danmerkur. Þa«' er hann tekinn. Tryggvi Gunnars- son siglir um sarna leyti, en frjett- ir áður á skotspónum um Dýra- fjarðarslysið. Af tilviljun írekst hann á frjettina um landhelgis- brotið hjá Jótlandi, og dettur það þegar í hug — sem fæstum mundi þó haf.a hugkvæmst — að hjer sje sama skipið og var á Dýrafirði. Ef honum hefði eigi dottið það í hug og ef þeir Ólafur Halldórs- son hefði eigi báðvr brugðið eins fljótt við og þeir gerðu, mundi 'Nilsson hafa sloppið frá Frede- rikshavn. Er það undarleg atvika- keðja, sem verður þess valdandi, að sökudólgunum er náð. Skal nú fljótt yfir sögu fa*'ið í bili. Hinn 27. mars 1900 voru þeir fjelagar þrír dæmdir í und- irrjetti, Nilsson í 18 mánaða betr- unarhússvinnu, 3000 kr. sekt til landsjóðs fslands og 200 kir. sekt til ríkissjóðs D.ana fyrir landhelg- isbrot hjá Jótlandi um haustið. Stýrimaður var dæmdur í 3 x 5 daga upp á vatn og brauð, og mat sveinn í 4 x 5 daga upp á vatn og brauð. Svo fór málið til hæst.arjettar í Danmcrku. Var Nilsson þá dæmd- ur í tveggja ára betrunarhúss- vinnu; 3000 kr. skyldi hann greiða landsjóði íslands, og ríkissjóði Dana 200 kr. Auk þess skyldi hann greið.a Hannesi Hafstein 750 kr. í skaðabætur og ekkjum 2 þeirra manna, e," druknuðu, ann- ari 3600 krónur, en hinni 1100 kr. Dómur hinna var staðfestur í hæstarjetti, en Nilsson v.ar dæmd- ur til þess að flytjast af landi burt eftir úttöku hegningar, vegna þess að hann var útlendingnr, Svíi. Vitum vjer nú eigi hveirnig fór með hegningu Nilssons, en hitt er víst, að hann er kominn til Eng- lands öndverðan vetur 1901 og fær þar nýtt skip til forráða. — Hjet það „Anlaby“. Sigldi hann því skipi þegar til veiða hjá ís- landsströndum. Um miðjan jan. 1902 sáust tveir botnvörpungar undan Grindavík og voru þar að veiðum, sjálfsagt í lándhelgi. Um kvöldið gerði af- spyrnurok á landsunnan og dimm- viðri. Æsti þá mjög sjó þar syðra, eins og vant er, þótt í hægar.a. veðri sje. Hættu skipin þá veiðum sam- tímis og hjeldu til hafs. Af afdrifum þeirra er það að

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.