Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.1928, Blaðsíða 6

Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.1928, Blaðsíða 6
214 ' KSBÓK MORGtJNBLAÐSlNS Þar má líta halinn hruma, horfinn gleði, dögum kvíða, og unglinginn í æskublóma eftir sínum dauða bíða. Hjer eru menn á öllum aldri, af öllum stjettum vorrar þjóðar, allir sjúkdóms ánauð seldir, allir biðja um stuudir góðar. Þar er háður hildarleikur; hels á vegum leiðir skilja; aldrei nokkur manulífs máttur má við auðvalds föðurvilja. Enginn meira öðtum ræður, okkur fangbrögð dauðans sanna: Verða allir bekkjarbræður í böli og stríði þjánínganna. Vart því skulum vera að státa, vcik sem reyrinn, eða hlynur; við bognum, ef oss blæs á móti og brotnum, ef oss liríð á dynur. llljóðnar alt í liuga mínum. Hjartað angri sem er vakið, eins og leiftur lít jeg myndir, lífsins þyngsta böl er vakið. Pram við dyrnar föl og grátin fátæk barnamóðir liggur. Sá, er kynnist hennar högum, hann mun ganga í burtu hryggur. Líkaminn er sollinn sárum, sundurkramið' hjarta í barmi; alein má lnm vonlaus vaka vinalaus, í þyngsta harmi. Liðnir tímar ljóss og skugga líða úr minuinganna hjúpi; atvik löngu liðins tíma lifa í insta sálardjúpi. Bernskau trúði á blóma vegi, bjartar þrár í sálu lilógu, en við skort og skilningsleysi, í skugga lífsins vonir dóu. Ekki er vért að ýfa sárin, eða lieiminn við að kvarta, oft það hefði hún áður fundið inst í sínu mædda hjarta. Fyrir blessuð börnin smáu bænir alla daga vaka: lát ]>au ekki, ljóssins faðir, líð'a vegna minna saka. Bak við tjöldin tíðum falla tárin hljótt um miðjar nætur; þar eru helgar bænir beðnar, bljúgri lund við drottins fætur. Himnafaðir, þú einn þekkir þjáningar og hugraun mína; jeg kem með öll mín tár og trega í trú á náð og miskunn þína. O, þú faðir föðurlausra, findu hæli í brjóstum manna fyrir þá, sem.ennþá eru úti í kulda lífsins fanna. Breið þeim faðminn blítt á móti, bú þeim ylríkt föðurhjarta; lát þá finna, faðir hæða, að' fyrir þjer er gott að kvarta. Þjer að trúa og treysta, faðir, tekur frá mjer allan kvíða. Síðan hefi jeg sjeð og fundið, sælast er að mega líða. Kraftar þverra, kveldið líður, komið er að dauðans nóttu; sálin mun í sælli heima svífa fyrir miðja óttu. Úti í garði cr lítið' leiði, lágt og vanrækt fram úr máta, þangað koma engir utan umkomulaus börn að gráta. Guðrún Jóhannsdóttir. frá Brautarholti. Óskemtileg heimkoma eftir 12 ára fangavist. Þýskur hermaður frá þorpinu Kees í Hannover kom nýlega heim eftir 12 ára fangavist í Síberíu. Rússar höfðu handtekið hann í stríðinu og flutt hanu til Síberíu — og þar gleymdist hann. Fjöl- skylda hans hafði ekki frjett neitt af lionum síðan árið 1918 og taldi víst að liann væri dáinn fyrir löngu. En austur í Síberíu var liann þjáður sem þræll, og átti mjög illa æfi. Loksins kom þó lausnarstundin og hann fjekk að' fara heim. Glaður í skapi og fagn- andi fór hann rakleitt til þess húss, sem liaun liafði áður átt lieiina í. Og þar hitti hann konu Marie Solovieff dóttir Rasputins. Hún liefir vakið á sjer athygli með því að krefjast 25 miljón franka skaðabóta af þeim furstunum Pavlovitsj og Jussopoff fyrir það að þeir drápu föður hennar. sína — en það varð euginn fagna- fundur, því að nú var liún gift öðrum. Hafði hún senj aðrir ætlað að maður sinn væri dáinn, og giftist öðrum og eignaðist með honum börn. Vesalings heimkomni fanginn vildi ekki gera kröfu til konu og heimilis, sem nú var ann- ars manns, fór burtu og settist að á öðru landshorni. Manntal í Rússlandi. Samkvæmt seinasta manntali í Rússlandi hefir það komið í ljós, að þar voru 5 miljón fleiri konur en karlmenn. Alls eru íbúar þar 147miljónir og af þeim eru 30 þús- und eldri en 100 ára.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.