Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.1928, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 08.07.1928, Blaðsíða 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 215 Miss Amelia Earhart, sem flarig yfir Atlantshaf um dag- inn frá Bandaríkjunum til Ev- rópu. Hún er fyrsta konan, sem komist hefir í flugvjel vfir hafið. Dðmkirkian í Kirkjubæ. Verður hún fullgerð? „Tingakrossur ‘ segir frá því, að Norrænafjelagið hafi látið rann saka hve mikið það kostaði að fullgera dómkirkjuna í Kirkjubæ í Færeyjum. Hefir Johan Meyer prófessor reiknað það út, og kom- ist að þeirri niðurstöðu að það myndi kosta 252.800 krónur. Ef ráðist verður í að fullgera kirkjuna, er staðið hefir sem hálf- gerð veggjatóft í margar aldir, búast Færeyingar við því, að Norð- menn styrki það verk. Nokkrir skógaeigendur í Noregi hafa lofað að gefa við þann er til þarf. En eftir útreikningi prófessorsins næmi sú upphæð aðeins 4% af- byggingarkostnaðinum. Blaðamaður: Þjer segist vera sjötíu og níu ára. Hverju þakkið þjer það helst, að þjer hafið náð svo háum aldri? — Jeg held að það sje því að þakka að jeg fjeklt ágætt heil- þrigðissalt í fyrra, Krákódílaveiðar. Enskur ferðamaður, sem R. St. Barbe Baker heitir og mikið hefir ferðast um Afríku, hefir nýlega gefið út bók um ferðalög sin og lýsir þar meðal annars dvöl sinni hjá kónginum í Bennis-landi. — Þar er heill þjóðflokkur, sem hef- ir verið gerður að þrælum, og er hann látinn hafa þá atviunu að veiða lifandi krókódíla. Er krókó- dílum þessum síðan fórnað við blótveislur konungsins. Krókódíl- arnir eru veiddir þannig, að skurð ir eru grafnir inn í árbakkana og inst í króknum er timburbúr og geit í. Krókódílarnir finna lykt af geitinni og hugsa sjer gott til glóðarinnar. Fara þeir inn í skurð- inn og ætla að gleypa geitina, en það er sýnd veiði efi ekki gefin, því að geitin er óhult í búrinu. Þá ætla krókódílarnir að komast út í fljótið aftur, en það geta þeir ekki, því að skurðurinn er svo þröngur, að þeir geta ekki snúið sjer við, og aftur á bak geta krókódílar ekki farið. Eru þeir ]>ví þarna í sjálfheldu og eru tekn- ir þar. Atlantshafsflngin. Eins og kunnugt er ætla tveir tlugmenn, sein hafa í hyggju að fljúga yfir Atlantshaf í sumar, Hassel og Lindberg, að fara nyrstu leiðina og koma við á Grænlandi og íslandi. Nú segja dönsk blöð, að flugvjelar beggja sjeu gerðar til þess að setjast á land, en ekki sjó, en þá kemur sá bobbi í bát- inn, að hvorki í Grænlandi nje á íslandi eru neinir flugvellir. — í Grænlandi hafa þó lendingarskil- yrði verið athuguð og hefir fund- ist sæmilegur og þó hvergi nærri hættulaus lendingarstaður í botni Straumfjarðar og ætla þeir báðir að nota þann lendingarstað. En hvernig fer svo er þeir koma hing- að? Sennilega koma hingað einliverj- ir erindrekar þeirra til þess að athuga lendingarstaði og þá sjálf- sagt hjeji í nágrenni Reykjavíkur. Richard Strauss stjórnar nýjasta söngleik sínum, „Helena hin egyptska“, í ríkis- óperunni í Vínarborg. Frn X, Fyrir skömmu koin upp flók- ið mál í Svíþjóð. Fjöldi ráðsettra manna fengu eldheit ástarbrjef frá einhverri konu, er ekki vildi láta nafns síns getið, en setti bókstafinn X undir brjefin. Mót- takendur brjefanna voru æfin- lega kvæntir menn, en höfðu „verið í siglingu“ eins og gerist og gengur. „Frú X“ bað menn þessa að lána sjer 500 krónur til bráðabirgða ; gaf þeim í skyn, að |>að væri rjettara fyrir þá að lána Jiessa upphæð, því ella kynni kona ]>eirra eitthvað að frjetta. Flestir vildu mennirnir hafa einkamál sín út af fyrir sig og sendu „frú X“ peningana. — Á þennan hátt hefir „frú X“ tekist að ná í mik- ið fje af ýmsum góðum eigin- mönnum. En nú hefir lögreglan fengið mál þetta til rannsóknar, en talið er vafasamt hvort takast muni að finna „frú X“. Húsfreyja: Þú verður að hugga þig við það Vilhjálmur, að við hittumst aftur. — Æ, vertu nú ekki að ergja mig á banasænginni.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.