Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.1929, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 29.09.1929, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 307 stuðst er við gripi safnsins, þeir sýndir og útskýrðir. En jafnframt þessu þarf að gangast fyrir vakningu uni ger- valt landið í því efni, að hver sá lilutur, smár og stór, sem þjóð- menningarlegt gildi hefir, verði varðveittur frá glötun. Menn verða að skílja það til fulls, að hver sá sem styður að vexti og viðgangi Þjóðminjasafns- nis, hann leggur steinvölu í þann varnarvegg, sem talað er um að gera þurfi gegn ómenningn. er flæðir inn yfir landið. Þá er enn eitt safn, sem þarf að fá framþróunarskilyrði — Nátt- úrugripasafnið. Nánar um það s'rðar. V. St. Grundvöllur vísindanna raskast. Allir hlutir eru sífeldum breyt- ingum undirorpnir. Úr fyrirlestri Bohrs prófessors á fundi náttúrufræðinganna í Kaupmannahöfn. Hinn heimsfrægi danski vísinda- maður Niels Bohr prófessor, hjelt fyrsta vísindalega fyrirlesturinn, sem haldinn var á fundi náttúru- fræðinganna í Kaupmannahöfn um síðustu mánðaðamót. Viðfangsefni iians liefir verið á undanförnum árum, að athuga eðli og gerð frum- agnanna (atómanna). Hefir hann fvrir rannsóknir sinar á þessu sviði hlotið heimsfrægð og Nobels- verðlaun. I fyrirlestri sínum á náttúrufræðingafundinum, reyndi hann að gera grein fyrir aðalnið- u.rstöðum rannsókna þessara, í svo einföldum orðum að almenningi J ' yrði skiljanlegur. En hann gat þess í upphafi, að vandkvæði væri á þessu, því hjer kæmi til greina svo mörg hugtök, sem óþekt hefðu verið áður, og væri því eigi orð til yfir þau í mæltu máli. Margt er það í náttúrunnar jríki, sagði Bohr prófessor, sem menn hafa veitt eftirtekt að er sífeldum breytingum undirorpið. En menn hjeldu, að hinar sýnilegu breytingar, gætu átt sjer stað enda þótt að frumagnirnar væru óumbreytanlegar. Alt fram á vora daga höfðu menn ekki tök á, að rannsaka frumagnirnar, vegna Jæss, hve þær eru örsmáar. Sann- anir voru því aldrei fyrir því, að irumagnir allra hluta, væru óum- breytanlegar. Menn gátu ekki greint frumagnirnar hverja fyrir sig, og athugað eðli þeirra. En rannsóknatækin hafa tekið miklum framförum á síðari ár- um. Með smásjáinni og litsjáinni (spektróskópi), hafa menn getað numið ný rannsóknasvæði. Nú er Jiægt að virða smáagnirnar fyrir sjer, athuga gerð þeirra. Og Jægar svo langt var komið, gátu menn sjeð, að gerð þeirra er ekki eins t infiild eins og menn álitu áður. í hverri frumögn (atrnói) ern svonefndir „elektrónar" að vísu ekfki margir í hverri ögn. En liver og einn þeirra er hlaðinn raf- magni. I frumögn hverri er kjarni sem er einnig rafmagnaður og hefir mótstætt rafmagn við „el- ektrónanna". Hefir hann því í1 sjer aðdráttarafl til að lialda ,,el- ektrónum“ þessum föstum. Er menn höfðu komist að raun um þetta, lá það fljótt opið fyrir, að frumefnin voru ekki hvert öðru JiarJa óskyld, eins og menn höfðu áður Jialdið, heldur mátti svo að orði leomast, að þau mynduðu £ inn ættbálk. 1 staðinn fyrir að menn hjeldu áður, að frumagnirn- ar breyttust • aldrei, þá eru menn nú lcomnir að raun um, að það eru frumpartar frumagnanna, sem Jialdast að jafnaði óbreyttir. — Kjarnarnir breytast venjulega ekki, en breytingarnar eru þá í því • fólgnir, að kjarnarnir draga .,elektrónana“ að sjer með mis- munandi móti. í sumum frumefnum eru líjarn- ar frumagnanna sífelt að breytast, á hverju augnabliki springa þeir og kubbast sundur. í radíókendum efnum gerast kjarnasprengingar þessar, án þess að efnið verði fyrir nokkrum utanaðkomandi á- hrifum. En Rutherford hefir kom,- ist að raun um, að það er stund- um hægt að koma kjarnaspreng- nm þessum af stað. — Þó era þau merkilegu tímamót upprunnin fyrir mannkynið, að hægt er að brevta frumefnunum. Er gersam- i‘-ga ómögulegt að gera sjer í hug- arlund, hve víðtækar afleiðingar s'. uppgötvun getur haft. Að lokum mintist Bohr á allra síðustu uppgötvamir á þessum svið- rm vísindanna, er gera enn þá meiri glundroða í fyrri hugmyndir manna um alt efni heimsins eii „at- f m“-rannsóknirnar. Reyndl hann að gera mönnum skiljanlegt hug- tak ]iað er hann nefndi „Virkn- ings-kvantum“ og hægt væri e. t. v. að nefna á íslenskn „áhiáfa- 1 iagn.“ Vísindalegar rannsóknir eru nú bvingaðar inn á nýjar brautir, sagði hann. Menn hafa álitið að þeir gætu athugað hlutina án þess að efnin yrðu fyrir nokkrum á- lirifum frá mönnunum sjálfum. — Allar vorar hugmyndir um hinn ( fnislega heim voru á þeim grund- v elli reistar, að við gætum athug- að umhverfi vort í náttúrunnar ríki, án þess að nærvera vor hefði nokkur áhrif á rás viðburðanna. En nýjustu rannsóknir hafa fært mönnum heim sanninn um það, ■ð þetta er hinn mesti misskilning- ur. Ef menn taka glas af vatni í hönd sjer, svo nefnt sje eitthvert oæmi. ])á breytist bæði glasið og vatnið; sem í því er, fyrir áhrif frá manninum, er heldur þvi í hendi sjer. Ahrifin á vatnsglasið eru að sjálfsögðu ekki mikil. En ]iau eiga sjer stað, og menn geta útilokað l-'U. Bohr endaði inál sitt á þá leið, að vísindamennirnir hefðu vonast eftir- því, að þeir gætu verið óvirkir áhorfendur í ríki nóttúrunnar, hefðu getað athugað ]>ar rás viðburðanna, án þess að luin raskaðist nokkuð, að öðru Jeyti en því, sem þeir sjálfir vildu »era láta. En er þessum grundvelli var burtu kipt, eru vísindamenn- irnir í meiri vanda staddir en nokkru sinni fyr. --------------------

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.