Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1931, Síða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 05.07.1931, Síða 2
202 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS Háskólinn. Carolina Rediviva. pess dvelja þar mestan hluta árs- ins, nm fjórar þnsundir stúdenta. IJppsaiir eru all mikill ferða- mannabær. Plestir erlendir og innlendir snillingar, er Stokk- þólm gista, koma til Uppsala, og láta heyra sig þar og sjá. Kæðu- snillingar, ldjómlista- og vísinda- menn allsko'nar sækja Uppsali heim. Sporvagnar hruna um göturn- ar, ]>ægilegir til að flýja upp í ] egar ferðinni er heitið miHi út- kjálka bæjarins, sem er dreifður, en falla ekki alstaðar Öem best saman við liinar gömlu, þröngu götur. Járnbrautarlestin frá Siokk- hólmi til Norður-Svíþjóðar íiggur gegn um bæinn. Uppsalir eru mj all mikill iðn- aðarb'ær, en háskólalífið mótar þó bæinn með öllu, og fyrir það er ltann frægastur, bæði meðal Svía og annara ]).jóða. Um eitt skeið var bærinn kon- ungssetur og erkibiskupssetur, og erkibiskupssetur er hann enn þann dag í dag. Núverandi erkibiskup er hinn alkunni skörungur og lærdcxmsþulur, Nathan Söderblom. Hefir hann margar sæmdir hlotið að verðleikum, og nú síðast friðar- verðlaun Nobels, fyrir 1930. Býr biskupinn á erkibiskupssetrinu, sem er gömul bygging og fögur. Rjett hjá erkibiskupssetrinu, en steinsnar frá ánni, er dómkirkjan mikla. Bæði hún og þrenningar- kirkjan eru mjög fagrar bygging- ar, og eru talandi vottur um hinn mikla trúaráhuga miðaldanna, sem m. a. fann útrás og lýsti sjer í fögrum og vönduðum kirkjubygg- ingum og musterum. Dómkirkjan er stærsta kirkja á Norðurlöndum, tlm 120 metrar á lengd; hæð vesturturnsins, sem er hæsti turn kirkjunnar, er tals- vcrt yfir hundrað metrar. Byrjað var að byggja hana skömmu f}rr- ir 1300, en ekki var smíðinni lok- ið fyr en nokkuru fyrir miðja 15. öld. Síðan hafa stórbrunar eyðilagt vissa hluta hennar, en þeir hafa v.erið " bygðir aftur, í sama stíl, gotneskum, en í þeim slíl er kirkjan bygð. Eins og gefur að skilja, liggja mörg stórmenni grafin í kirkju ]>essari. Má þar m. a. nefna: Cíústaf konung Vasa, og JóhaUn konung III., son hans. A veggnum fyrir ofan grafkór Gústafs Vasa enp málaðar freskómyndir af merknstu viðburðum úr lífi hans. í kirkjunni eru enn fremur grafnir Carl von Linné, grasafræðingur- inn mikli, Jakob erkibiskup Ulfs- son, sem talinn er stofnandi Upp- salaháskóla og dulspekingurinn Emanuel Swedenborg. Voru lík- amsleifar hans fluttar til Upp- 'sala 1910, frá Lundúnum. Flestum mun það ógleyman- legt að vera við guðsþjónustn í Uppsaladómkirkju. Söngurinn er fiábær, enda mjög til hans vand- að. Auk hins fasta kórs, er stárf- ai’ viðj Jíirkjuna, sýngur drengja- kór um föstuUá. Prestarnir við kirkjuna eru úr- valsmenn, en þeir eru ekki einir um að flytja „orðið“, heldur prjedika prófessorar guðfræði- deildar háskólans altaf öðru livoru , og erkibiskup á hátíðum og við sjerstök tækifærj. Kirkjugangari er líka í besta lagi, og unga fólk- ið sækir kirkjuna engn síður en liið gamhu Efst í hallarbrekknnni (Slots- backen) stendur höllin. Gústaf Vasa hóf byggingu hennar uih miðja 16 öld, en byggiugunni var ekki-lokjð fyr en á dögutn Krist- ínai’ drotningar. Árið 1702 brann talsvert af henni, en endursmíði liefir farið fram, og heídur höll- in að miklu leyti sínum uppruna- lega svip. Nú er höllin aðsetur landsthöfð- ingjans á Upplöndum. í höllinni er salur einn mikill, mjög merki- legur sögulega sjeð. Þar var Jó- liann III. krýndnr til konungs og þar afsalaði Kristín drotning sjer ríkistign, er hún liafði kastað trú sinni og gerst katólsk. Fór hún síðar til Róm og ljest þar, svo sem kunnúgt er. Á stalla einum vestan við höll- ■na standa nokkrar gamlar fall- (öyssur. Þær eru herfang frá stórveldisdögum Svía. Byssur þess- ar eru hálfryðgaðar og fá að hvíla árið um kring, nema 31. maí, ]>egar nýju doktorarnir eru útskrifaðir frá háskólanum. Fallbyssuskot frá Slottsbacken ]>ýðir, að nýr doktor sje útskrif- aður frá Uppsalaháskóla. Yfir fallbyssunnm stendur dá- lítill klukknaturn. I honum er Gunnhildarklukkan (kend við drotningu Jóhanns III.), slær hún tvisvar á sólarhring, klnkkan sex að morgni og níu að kvöldi. Neðan undir hallarbrekkunni er svanatjörnin (Svandámmen), með- fram henni er „rúnt“ Uppsala- búa. Við enda tjarnarinnar renn- Ur Fýri og myndar ])ar dálítinn foss. Yfir fossinum liggur brú yf- ir ána, sem kölltið er Islandsbrúin. En ekki er rnjer kunnugt um hvaða ástæður liggja fyrir ]>ví, að hrúin. hefir verið nefnd svo.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.