Lesbók Morgunblaðsins - 19.06.1932, Blaðsíða 8
188
1ÆSBÓK MORGrUNBLAÐSINS
Englandskonungnr á hersýningu
— ■ A afmælisdegi Georgs Engla-
konungs er jafnan haldin hersýn-
ing hjá Buckingham höll. Mynd
]>e.ssi er tekin á seinasta afmælis-
degi hans og er af honum sjálfum
í einkennisbúningi riddarasveitar
lífvarðarliðsins.
5mcelki.
Herra Hansen er - lcominn yfir
um og kemnr þar í einhvern stað,
sem hann veit ekki gjörla hvort
vera muni himnaríki eða kvala-
staðurinn.
Dyravörður spyr hann að nafni.
— H. G. Hansen!
— Nú, veitingamaður. Jú, þjer
eigið að vera í 68 — frúin bíður
þar.
Hansen: Jæja, þá veit jeg í
l.veru staðinn jeg er kominn.
Giimul kona inætti prestinum
og iögreglustjóra á förnum vegi.
Hún staðnæmdist, og baðst fyrir:
— Guð minn góður, taktu prest-
ir.n til þín, en láttu lögreglustjór-
ann lifa lengi.
Lögreglustjórinn var því ekki
vanur að heyra beðið fyrir sjer,
sneri sjer að kerlu og sagði:
-— Hvers vegna biðjið þjer svo
vel fyrir mjer?
—- Það skal jeg segja þjer,
sagði hún. Jeg fæ ekki betur sjeð
en að í hvert sinn, sem við fáum
hjer nýjan prest, sje hann fyrir-
rennara sínum betri, og ef við fá-
um nú prest, sem er betri en þessi,
þá hlýtur hann að vera sannkall-
aður guðs engill. En lögreglustjór-
arnir verða verri og verri, því
oftar sem skift er um, og fáum
við annan ]>jer verri, þá lield jeg
að ]>að liljóti að verða fjandinn
sjálfur.
Kalli: Mamma mín er farin að
stunda garðyrkju. Hún fekk sjer
kassa, fylti hann af mold, sáði
fræi í hann og setti hann út á
húsþakið. En hvað heldurðu að
h.afi komið upp?
Jónsi: Það veit jeg ekki.
Kal.i: Jú, ]>að komu tveir liig-
regluþjónar upp og sögðu: Farðu
inn með kassann þinn, kerling.
í samsæti nokkuru var stúlka, er
trúði á éndurfæðingu. Þar var líka
ungur spjáttungur, sem reyndi að
draga dár að henni fyrir það, og
reyndi að vera fyndin. Seinast
sagði hann að hann myndi vel
eftir því þegar hann hefði verið
gullkálfurinn hjá Gyðingum.
— Jæja, svaraði stúlkan, l>jer
liafið þá ekki mist neitt síðan
nema gyllinguna.
Pjetur litli hafði fengið" fimm
aura í afmælisgjöf.
—• Hvað ætlarðu nú að gera með
peninginn? spurði pabbi hans.
— Jeg ætla að kaupa mjer pen-
ingabuddu til að geyma Itann í,
sagði Pjetur.
Kviðdómur hafði felt úrskurð í
glæpamáli um ]>að að ákærður
væri sekur um morð.
Þá stóð verjandi upp og mælti:
— Jeg krefst þess, að þessum
úrskurði verði vísað til æðri
rjettar.
— Hvers vegna? spurði forseti
kviðdómsins.
— Ástæðan er sú, svaraði verj-
andi, að nokkrir kviðdómendur
eru ekki óvilhallir í þessu máli,
og ber þeim því ekki að 4*ma um
það. Einn er líkkistusmiður, annar
kaðlari, þriðji blómasali og sá
fjórði verslar með líkklæði og
sorgarfatnað.
Krafa hans var tekin til greina.
Kreugerhöllin í Stokkhólmi
ep mikil bygging og vönduð. Þar
hafði Ivar Kreuger skrifstofur
sínar og alt, sitt úthald. Stjórn
eldspýtnafjelagsins verður flutt til
Jönköping, svo skrauthúsið í
Stokkhólmi verði selt,. Hefir komið
til orða að gera úr höll þessari
listasafn. (Neðri myndin er tekin
úr hallargarðinum.)
Mánuð á flugi? Mynd þessi er
af flugkonu, sem lieitir Mrs. Victor
Bruce. Ætlar hún ásamt manni
sínum að setja nýtt met í þol-
flugi, og býst við að geta verið
mánuð á flugi. Bensin fá þau frá
öðrum flugvjelum, jafnharðan og
]>að þrýtur. Verða þau tvö ein í
fiugvjelinni og skiftast á að stýra.