Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1933, Síða 4
324
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Gullkóróna fundin í Danmörku. Pyrir skömmu var verið að grafa
kjallara að nýju húsi í Middelfart. Rakst þá einn verkamaðurinn
á kórónu úr gulli og gullfesti og á henni kross með Kristsmynd.
Festin er 75 cm. á lengd og krossinn 8 cm. á lengd. Kúrónan er
nógu stór til þess að lifandi maðui hafi borið hana, en þó er það
ætlan manna að hún hafi verið á dýrlingslíkneski. Þykir líklegt að
henni hafi verið stolið, og þjófurinn falið hana þarna, en ekki þor-
að að vitja hennar aftur. Br hún nú og festin komin á þjóðminja-
safnið í Kaupmannahöfn-
inn og áttu þar hvergi friðland
fyrir blóðþyrstum fuglamorðingj-
um, innlendum og erlendum og
flýðu því hæinn og tjörnina. Nú
er þetta, sem betur fer, breytt
mjög á annan og betri veg.
Frekari umbætur. Fuglalífíð eykst.
Nú á síðustu tveim árum hefir
ónefndur bæjarmaður einn komið
því til leiðar, að hólminn í tjörn-
inni hefir verið stækkaður að mikl-
um mun frá því sem hann áður
var: Grjóti og mold hefir verið
ekið utan að honum á. alla vegu,
og síðan tyrft yfir að vorinu til.
Er hann nú meira en ferfalt stærri
að flatarmáli en hann áður var,
fyrir 2—3 árum, enda hefir sú
breyting á orðið, að hann hefir,
einkum nú í sumar, verið alsetinn
af ýmsum fuglum, en þó einna
mest af kríunni, sem engan á sinn
líka að fimi og fjöri, en jafnframt
að dugnaði og ráðríki, þar sem
hún sest að og vill ríkjum ráða.
Það var ánægjulegt að sjá svörtu
kollhúfurnar á mjallhvítu búkun-
um gægjast upp úr grasinu í vor,
þegar hólminn var þjettsetnastur
af nýkomnu gestunum fögru og
fjörugu, sunnan frá Afríkuströnd-
um og Miðjarðarhafi, er þeir voru
að búa um sig í hinu víðlenda(!)
ríki sínu, sem þeir áttu ekki von
á að væri orðið svona stórt og því
síður á hvem hátt þeir höfðu eign-
ast það. Svo spánskt kom þeim
það fyrir sjónir, að þeir virtust
vera feimnir við að leggja það
undir sig, því full vika var liðin
frá því þeir sáust hjer (14. maí),
þangað til þeir fluttu sig þangað
og virtust una sjer hið besta, sem
m. a. sást af því, að þegar þýskur
maður, er hjer var á ferð í sumar,
fór út í hólmann, til þess að skoða
hann og taka myndir af hreiðr-
unum, sá hann, sjer til mikillar
undrunar, að í flestum hreiðriui-
um voru 3 egg, en eins og kunn-
ugt er, á krían venjulega aðeins
1 egg eða 2. Hreiðrin vom þá um
80 að tölu og tæplega rúm fyrir
fleiri og er augljóst af þessu, að
hólminn er enn of lítill.
Það er eins með kríuna og ýmsa1
aðra fugla, að þeir virðast því
fjölskyldufleiri og frjósamari, sem
þeir njóta meiri kyrðar og næðis.
Jafnframt því sem jeg álít að
þörf sje á, að hólminn í tjöminni
verði stækkaður að mun, virðist
mjer einnig nauðsynlegt, að bygðir
verði 2 eða 3 hólmar í viðbót,
sunnar í tjörninni; mætti þá einn
þeirra vora í syðri tjörninni, fyrir
sunnan Tjarnarbrú. Skyldum vjer
þá sjá, að fuglalífið í bænum yrði
brátt ánægjulegt og fjörugra en
það liefir verið og til mikils gagns,
sem ágætt uppeldismeðal fyrir
börn og ungmenni bæjarins, enda
mörgum hinna eldri fremur til
yndisbóta en ama-
Þá má og gera ráð fyrir, að
mönnum kunni að vaxa kostnað-
urinn í augum, en ekki get jeg
skilið, að neinn setji hann fyrir
sig, enda yrði hann alls ekki til-
finnanlegur. Utan með tjörninni,
einkum að austanverðu, er nóg af
meðfærilegu grjóti, sem flytja
mætti í bílum eða s.leðum út á
tjörnina, þegar ísar eru, hlaða því
í hrúgur á ísnum og láta það síð-
an sunka niður jafnskjótt sem ísa
leysir að vorinu til og að því búnu
flytja þangað mold og torf til
yfirbreiðslu. Hygg jeg margri dýr-
tíðarvinnu bæjarins ver varið en
til þessa, og ólíklegt mjög, að
bæjarbúar teldu hana eftir.
Hagkvæm uppfinning fyrir þá,
sem nýtrúlofaðir eru.