Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1933, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 22.10.1933, Page 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 327 hann sýndi þessi verk sín opin- berle"a. Samkvæmt ósk þeirra sýndi hann svo þessar myndir sínar á merku safni hjer í borg- inni, því svo er litið á, sem þær geti haft þjóðfræðilega þýðinfíu. Eru nú 2ð af öskjum hans til sýn- is í þjóðminjasafninu í keisara- höllinni hjer í Vínarborg. Eru það myndir frá Japan, Samar- kand, Kamerun, Mexieo, fslandi, Færeyjum, Grænlandi og Jan Mayen. Alls hefir hann fullgert 80 slík- ar myndir. Eru myndirnar auk þeirra staða sem fyr eru nefndir, frá Vínarborg og víðar úr Austur- ríki, Sviss og Þýskalandi. Meðal annars hefir hann gert mynd af húsi Goethe í Weimar og af her- bergi í því húsi, af húsi Schillers i Weimar, gömlum húsum í Rot- henburg, af ráðhúsinu í Lindau, af borgarhliði í Stralsund o. m. fl. íslenskar myndir hefir hann gert þessar: Víkingaskip, Geysir, Gamall bóndabær, Hús í Reykja- vík, Klettaboginn í Þjórsárdal. Frá Færeyjum hefir hann gert tvær myndir: Hvalbeinahliðið í Þórshöfn og Dómkirkjurústir í Kirkjubæ. Þá hefir hann gert mynd af grænlenskum Eskimóa- kofa og mynd af kofa austurrísku pólleiðangursmannanna á Jan Mayen, frá árunum 1882—1883. Myndagerð þessi hefir orðið dr. Jaden því auðveldairi sem hann er hagur maður enda hefir hann fengist mikið við útskurð. Hefir hann t. d. skorið mikið út af hús- gögnum sínum, og ýmislegt ann- að merkilegt, sem er að finna á heimili þeirra hjóna. Er það alt sjerlega vel og smekklega gert, og ber þess ljósan vott, að maður- inn er listfengur mjög, og hefir í engu kastað til þess höndunum. Dr. Röek, forstjóri þjóðminja- safnsins (Völkermuseum) er nú að undirbúa sýningu á byggingalist ýmissa þjóða á mismunandi tím- um. Hefir hann óskað eftir, að dr. Jaden verði honum hjálplegur við það starf. Wien, 9. ág. 1933. A. Blöndal. Ríkisfjehirðir. Fyrir kvenfólkið. Ásta Magnúsdóttir. Þegar Jón Halldórsson ríkisfje- hirðir ljet af því starfi um sein- ustu áiramót, var ungfrú Asta Magnúsdóttir sett til þess að gegna því til bráðabirgða, enda var hún því starfi allra manna kunnugust, Hún hefir starfað í skrifstofú ríkisfjehirðis síðan 1910, f fyrst 7 ár hjá Valg. Claessen og síðan 16 ár hjá Jóni Halldórssyni. Rækti hún allan þennan tíma starf sitt af hinni mestu samvisku- semi. Var það því áf mörgum talið sjálfsagt að hún tæki við ríkis- gjaldkeraembættinu er það losn- aði, enda gaf fráfarandi ríkisfje- hirðir henni bestu meðmæli, er hún sótti um það. Hinn 3. þ. mán. var hún svo skipuð ríkisfjehirðir, og er það eina konan í Evrópu, sem hefir sljkt embætti. Ásta er dóttir Magnúsar Ólafs- sonar ljósmyndasmiðs. — Nei, þakka yður fyrir herra lögregluþjónn; þjer megið gjama slökkva ljósið, jeg ætla ekki að lesa í rúminu. V. Hárvöxtur í andliti. Margar konur og stúlkur verða fyrir því, að þeim vex hár á höku, liálsi, vöngum og efri vör. Þær reyna ótal ráð til þess að losna við þetta, en það gerir aðeins ilt verra. Fullþroska konur fá stund- um skegg og þær auka aðeins á vöxt þess með því að slíta skegg- hárin af sjer. Læknar hafa komist að raun um, að þessi óeðlilegi hárvöxtur stend- ur í sambandi við óreglu á starfi kynfæranna og því verður aldrei of vel brýnt fyrir konum þessum að biðja lækni sinn um „Ovarien- extrakt“, og þess lyfs verða þær að neyta reglulega að minsta kosti í hálft. ár, eða lengur. Meðan aðeins er um fínan hár- vöxt að ræða, er best að skifta sjer ekkert af honum og hugga sig við það, að hans vegna tollir andlits- duftið betur á hörundinu. Ef hárin eru dökkleit þá er hægt að upplita þau á þennan hátt: Maður tekur 20 vol. vatnsefni (brint) og setur í það eins og tollir á hnífsoddi af COs Na II (Soda Bicarbonate) eða nokkra dropa af salmiakspiritus. Þetta ber maður á sig 3—4 sinnum í mánuði. Ef uiul- an svíður, má bera smyrsl á liúðina á eftir. Jeg get ekki nógsamlega varað kvenfólk við að nota „pincette ', eins og nú er algengt. Með því móti verða hárin æ grófgerðari. Þjer slítið upp mörg hár í einu og þau verða öll grófgerð þegar fram í sækir, þjer særið hixðina, og það versta er, að þjer breytið vaxtar- stefnu háranna, með því að slíta þau sitt á hvað. Þegar svo er kom- ið er örðugt að uppræta hárvöxt- inn. Best og einfaldast væri að klippa hárin með bognum naglaskærum, þangað til maður getur gengið að því að uppræta þau alveg, og að- ferðinni til þess mun jeg lýsa í næstu grein. Ef hárvöxturinn er of mikill, og húðin getur þolað það, getur mað- ur með varkámi notað einhverja af þeim mörgu aðferðum, sem hafðar eru til þess að uppræta hár-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.